Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Qupperneq 18
Vikublað 1.–3. júlí 201418 Fréttir Erlent Auðjöfur hafði úti- gangsmenn að fífli n Stórfurðuleg skemmtiatriði í Central Park n Of gott til að vera satt K ínverski auðjöfurinn Chen Guangbiao hafði hundruð heimilislausra New York-búa að fífli í síðustu viku. Hann birti, með pomp og prakt, vikuna áður heilsíðuauglýsingar í víð- lesnum dagblöðum, svo sem New York Times og Wall Street Journal, þar sem hann lofaði að gefa hverjum og einum heimilislausum borgarbúa fimm stjörnu máltíð. Auk þess lofaði hann að gefa hverj- um og einum þrjú hundruð dollara, eða tæplega þrjátíu og fjögur þúsund krónur, í gjöf. Eina skilyrði sem Chen setti var að þiggjendur kæmu í veislu hans í almenningsgarðinum fræga, Central Park. Útigangsmenn hugs- uðu sér gott til glóðarinnar og komu sér fyrir í garðinum nóttina áður til að missa ekki af vellystingunum. Lang- flestir fóru úr þeirri veislu með tóman maga og vasa. Töfrabrögð og karaókí Veislan var haldin á veitingastaðnum Loeb Boathouse og komust langtum færri að en vildu. Rýmið leyfði að- eins ríflega tvö hundruð útigangs- mönnum að fá sér sæti. Stuttu eftir að þeir sem fengu aðgang höfðu komið sér fyrir hófust skemmtiatriði, sem voru vægast sagt sérkennileg. Fyrstir á dagskrá voru kínverskir sjálfboða- liðar klæddir í hermannabúninga frá kínversku kommúnistabyltingunni. Sjálfboðaliðarnir lofsungu Maó og héldu á lofti myndum af Lei Feng, hermanni sem lést í kínverska borg- arastríðinu og hefur síðan þá verið notaður í áróðursskyni. Því næst steig Chen sjálfur á svið og söng We Are the World í þar til gerða karaókívél. Chen skemmti útigangsmönnum með töfrabrögðum og tók að lokum á móti skírteini upp á að hann væri „heims- ins mesti góðgerðarmaður“. „Ekki upp í nös á ketti“ Samkvæmt US News var þeim sem fengu sæti á veitingastaðnum boðið upp á þriggja rétta málsverð; túnfisk í forrétt, nautalundir í aðalrétt og ber með sýrðum rjóma í eftirrétt. Raun- in var þó nokkuð öðruvísi samkvæmt útigangsmönnum sjálfum. „Ég tók insúlín í morgun þar sem ég hélt að þetta yrði alvöru máltíð, en þetta var ekki upp í nös á ketti. Það eina sem ég fékk var örlítil kjötsneið. Ég fékk ekki nóg til að vega upp á móti insúlíninu svo ég þurfti að kaupa sælgæti svo ég færi ekki í dá,“ sagði einn útigangs- maður í samtali við VICE stuttu eftir viðburðinn. Misskilningur Þegar nokkuð var liðið á veisluna voru flestir utangarðsmenn orðnir óþreyjufullir að fá fréttir af peninga- gjöfinni sem þeim hafði verið lof- að. Talskona Rescue Mission-gisti- skýlisins, sem var tengiliður Chen við heimilislausa, steig á svið og til- kynnti að enginn myndi fá reiðufé. Hún sagði að allt féð myndi renna rakleiðis til gistiskýlisins. Að hennar sögn höfðu orðið mistök í þýðingu á skilaboðum Chen. „Herra Chen hefur í staðinn samþykkt að gefa verkefninu níutíu þúsund dollara. Okkur finnst miður að mistúlkun hafi átt sér stað,“ sagði í fréttatilkynningu frá Rescue Mission-gistiskýlinu sem dreift var til fjölmiðla eftir veisluna. Smalað á höfuðstöðvar Stuttu eftir að talskonan tilkynnti úti- gangsmönnum að þeir fengju engan pening fór Chen aftur upp á svið og sagði að hann ætlaði eftir allt að gefa dollarana þrjú hundruð. Chen sagði að allir gætu komið eftir skemmtana- höldin í höfuðstöðvar Rescue Mission og þar myndi hann úthluta fénu. Rúmlega tvö hundruð manns var því smalað í fjórar rútur sem keyrðu útigangsmennina á áfangastað. Það leið ekki á löngu þar til menn sáu að maðkur var í mysunni því Chen mætti aldrei líkt og hann hafði lofað. Bálreiðir útigangsmenn Meint velgjörð Chen snerist fljótlega upp í mótmæli gegn honum. Svo fór að sjálfur framkvæmdastjóri Rescue Mission, Craig Mayes, steig út úr húsi og ávarpaði viðstadda. „Þetta hefði getað verið frábær viðburður og ég held að þetta hafi verið það fram að allra síðustu mínútum. Ég held að það hafi einfaldlega eitthvað glatast í þýð- ingu. Peningar Chen hjálpa gistiskýl- inu okkar virkilega,“ sagði hann. Há- vær fúkyrði yfirgnæfðu þó ávarpið. n Umdeildur „velgjörða- maður“ Rekja má auð Chen Guangbiao að miklu leyti til endurvinnslufyrirtækisins Ji- angsu Huangpu sem hann stofnaði árið 2003. Fyrirtækið endurvinnur ýmsan iðnaðarúrgang sem og byggingarefni, sem nóg er af í Kína. Fyrirtækið er alfarið í hans eigu en Forbes áætlar að auður hans nemi fjögur hundruð milljónum dollara. Hann hefur djúp tengsl innan kínverska kommúnistaflokksins, en á síðastliðnum árum hefur hann reynt að skapa sér ímynd sem velgjörðamaður og umhverfissinni. The Epoch Times greindi frá því fyrr á þessu ári að Chen hefði ítrekað ekki staðið við loforð um gjafir eða styrki. Árið 2011 mölbraut hann Mercedes-Benz bifreið til að vekja athygli verkamanna á að nýta reiðhjól til að draga úr hlýnun jarðar. Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Það eina sem ég fékk var örlítil kjötsneið „Ég held að það hafi einfaldlega eitt- hvað glatast í þýðingu Foxillur útigangsmaður Það fauk í útigangsmenn þegar kom í ljós að Chen myndi ekki gefa pening líkt og hann hafði lofað. Hermenn alþýðulýðveldisins Sjálfboðaliðar klæddu sig í hermannabúninga og lofsungu Maó. Chen hefur sterkt tengslanet innan flokksins. Skemmtir lýðnum Chen söng lagið We are The World frá árinu 1985. Myndir rEuTErS Mamman leitaði einnig á netinu Leanna Harris, móðir hins 22 mánaða Coopers, sem lést eftir sjö tíma í heitum bíl þann 18. júní síðastliðinn, leitaði á netinu að upplýsingum um hversu langan tíma þyrfti til að barn að létist í heitum bíl. Cooper var í för með föður sínum í Atlanta-borg í Georgíu þegar hann var skilinn eftir í bíln- um, en faðir hans, Justin Ross Harris, átti að fara með hann í dagvistun áður en hann fór í vinnuna. Það gerði hann ekki og skildi Cooper eftir í bílnum í sjö tíma á meðan hann var í vinnunni. Í kjölfarið lést Cooper. Harris hefur nú verið ákærður fyrir morð en lögreglan telur að hann hafi viljandi skilið barn sitt eftir í bílnum. Meðal annars hef- ur rannsókn lögreglu leitt í ljós að Harris stoppaði á leiðinni í vinnuna til að fá sér morgunmat. Einnig opnaði hann bílinn í há- degishléinu í vinnunni. Þá hefur Harris viðurkennt að hafa farið á netið og flett því upp hvernig og hversu fljótt börn deyi í heitum bílum. Nú hefur lögreglan greint frá því að eiginkona hans, Leanna, hafi leitað að sams konar upp- lýsingum á netinu fyrir dauða Coopers, að því er Atlanta Journal-Constitution greinir frá. Lögreglan hefur hins vegar ekki viljað gefa upp hvenær nákvæm- lega umrædd leit var gerð, en fyrir liggur að Harris var hand- tekinn og ákærður fyrir morð og fyrir grimmilega meðferð á barni aðeins fimm klukkustundum eftir að Cooper lést. Leanna sagði í jarðarför son- ar síns að hún stæði með manni sínum og elskaði hann: „Hann er yndislegur faðir.“ Hún hefur ekki verið ákærð. Skildi börnin eftir og fór í ljós Tuttugu og þriggja ára barnfóstra í Portland í Bandaríkjunum hef- ur verið ákærð fyrir að skilja tvö börn í sinni umsjá, þriggja ára og eins mánaðar, eftir í bíl sínum meðan hún fór í ljós. Atvikið átti sér stað þann 15. maí síðastliðinn en hitinn umræddan dag fór í 32°C. Það var árvökull vegfarandi sem tilkynnti málið til lögreglu, en allir gluggar bifreiðarinnar voru lokaðir. Að sögn lögreglu- þjóns sem kom börnunum til bjargar var mikill hiti inni í bif- reiðinni og var eldra barnið til að mynda gegnsósa af svita.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.