Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Side 31
Vikublað 1.–3. júlí 2014 Sport 31
Slær út Valderrama
n James Rodriguez tengist Pablo Escobar n Borgaði fyrir aukaþjálfun sem táningur n Bestur á HM til þessa
K
ólumbíska fótboltastjarn-
an James Rodriguez hef-
ur vakið verðskuldaða
athygli á HM í fótbolta sem
nú stendur yfir og er ein
helsta ástæða þess að Kólumbíu-
menn eru komnir í átta liða úrslit.
Hann skoraði bæði mörk liðsins í
sextán liða úrslitum gegn Úrúgvæ
og annað þeirra var stórglæsilegt,
eitt af mörkum mótsins. James, eins
og hann vill láta kalla sig, hefur lagt
mikið á sig til að ná þessum árangri
og markmið hans hefur alltaf verið
að komast eins langt og mögulegt er.
James og Escobar
Þegar hann var tveggja ára fylgd-
ist hann með æfingum hjá liði bæj-
arins og hermdi eftir leikmönnum
þegar þeir gerðu upphitunaræfingar.
Aðeins fimm ára skráði hann sig í
knattspyrnuskóla en það var ekki fyrr
en árið 2004, þegar hann var þrettán
ára, sem líf hans breyttist. Hann tók
þátt í Pony-fótboltamótinu svokall-
aða, þar sem ungir drengir keppa
í fótbolta. Mótið fær mikla athygli
í Kólumbíu, er sýnt í sjónvarpinu
og útsendarar fylgjast með efnileg-
um leikmönnum. James skoraði
frábært mark beint úr hornspyrnu,
varð markahæstur og valinn maður
mótsins. Það varð til þess að tengsl
komust á milli James og eiturlyfja-
barónsins alræmda, Pablos Escobar.
Flutti til Medellin
Forseti og stærsti hluthafi í
knattspyrnufélaginu Envigado,
Gustavo Adolfo Upegui Lopez, sá til
James og fékk hann til liðs við sig.
Upegui þessi var sagður hafa tengsl
við Escobar og sjálfskipaðar aftöku-
sveitir. Hann hafði auk þess verið
fangelsaður í 21 mánuð fyrir grun
um aðild að mannráni og að hafa
komið upp her hægri öfgamanna,
en á endanum var hann hreinsaður
af öllum ákærum. Hann var á end-
anum myrtur árið 2006, rétt eins og
forveri hans hjá klúbbnum. Starf
með yngri flokka var hins vegar til
fyrirmyndar hjá klúbbnum og James
nýtti sér tækifærið sem Upegui gaf
honum. Hann fluttist til Medell-
in með fjölskyldu sinni og borgaði
sjálfur fyrir aukaæfingar með þekkt-
um knattspyrnuþjálfara þar í landi,
Omar Suarez. „Hvaða strákur á hans
aldri myndi borga fyrir aukaþjálfun
bara því hann vildi verða sá besti?“
lét Suarez hafa eftir sér.
Keyptur á 40 milljónir punda
Árið 2008 var James keyptur af
argentínska liðinu Banfield og átti
hann þátt í að lyfta liðinu upp í
hæstu hæðir. Liðið varð argentínskur
meistari í fyrsta skipti árið 2009 og
James var byrjunarliðsmaður, að-
eins átján ára. Síðan þá hefur leiðin
aðeins legið upp á við og James varð
fljótt mikilvægur í kólumbíska lands-
liðinu. Árið 2010 fór hann frá Banfi-
eld til Porto þar sem hann var í þrjú
ár. Síðastliðið sumar fór hann svo
til Monaco fyrir tæplega 40 milljón-
ir punda, sem sýnir vel hversu hátt
hann er skrifaður. Og skyldi engan
undra. Hann er nú þegar orðinn
markahæsti leikmaðurinn í sögu
Kólumbíu á HM og gæti, þegar upp
verður staðið, tekið við af Carlos
Valderrama sem besti kólumbíski
leikmaður allra tíma. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
James Rodriguez
Leikmaðurinn er sá
markahæsti í sögu Kól-
umbíu á HM, þrátt fyrir
að vera á sínu fyrsta
móti með liðinu.
Við kunnum vel að meta endurtekningar…
Sendibílar ársins 2013 og 2014
Einn sigur er glæsilegur árangur, tveir sigrar eru
enn betri! Ford er fyrsti framleiðandinn til að vinna
titilinn Sendibíll ársins - International Van of the
Year tvö ár í röð. Kíktu í kaffi og spjall. Í sameiningu
finnum við hagstæða fyrirtækjalausn fyrir þig.
FORD TRANSIT CONNECT
FR
Á 2.382.470 ÁN VSK
FORD TRANSIT CUSTOM
Ford Transit Connect, EcoBoost bensín 100 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,6 l/100 km. CO2 losun 129 g/km. Verð með bensínvél frá 2.990.000 m/vsk.
Ford Transit Connect, 1,6TDCi dísil 75 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,4 l/100 km. CO2 losun 115 g/km. Verð með dísilvél frá 3.250.000 m/vsk.
Ford Transit Connect með 1,6TDCi dísilvél og Start-Stop spartækni uppfyllir þau skilyrði sem þarf til að fá frítt í stæði í miðbæ Reykjavíkur í 90 mínútur í senn.
Ford Transit Custom, 2,2TDCi dísil 100 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 6,9 l/100 km. CO2 losun 183 g/km. Verð frá 4.390.000 m/vsk.
Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Transit Custom Transit Connect
FR
Á 3.498.008 ÁN VSK
KOMDU OG PRÓFAÐU SENDIBÍLA ÁRSINS
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17.
KR.
KR.
ford.is