Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.12.1973, Qupperneq 17
15
3) Sú vörunotkun, sem fram kemur í rekstraryfirlitunum,
innifelur niðurfærslu vörubirgða samkv. lögum nr.68/1971
og lögum nr.71/1972, að því marki, sem þessi lagaheimild
hefur verið notuð.
4) Brúttóhagnaður að viðbættum umboðslaunum og aukatekjum
er það, sem kalla mætti framlag til annars kostnaðar (en
vörunotkunar) og hreins hagnaðar félaga/eigendatekna ein-
staklinga. Þess skal gætt aö rugla ekki hugtakinu brúttó-
hagnaður saman við hugtakið, "vergur hagnaður", sem sam-
kvæmt orðanna hljóöan ætti að vera hið sama, en merkir í
þessum yfirlitum í raun allt annaö, þ.e hreinn hagnaður fyrir
eða eftir skatta að viðbættum afskriftum. Ástæðan til þess
að hugtakið brúttóhagnaður er notað hér er sú, að orðið
virðist hafa náö festu í þessari merkingu í fagmáli verzlunar
hérlendis.
5) Aukatekjur þær, sem hér um ræöir, eru aö meginhluta
vaxtatekjur og leigutekjur, þó ýmislegt annað komi til, eins
og t.d. fenginn arður.
6) Með öðrum aðföngum er hér átt við eftirfarandi: umbúðir,
bifreiðakostnað (nær til reksturs eigin bifreiða, aðkeypts
aksturs og annars flutningskostnaðar á vörum, sem ekki hefur
verið reiknaður inn í kostnaðarverð þeirra), viðhald, aug-
lýsingar, ljós, hita, ræstingu, póst, síma, ritföng, prentun,
aðstöðu- og fasteignagjöld,svo og ýmsan annan kostnað.
7) Vergt vinnsluviröi er sá verðmætisauki, sem starfsemin
skilar,og sýnir framlag hverrar greinar til vergrar þjóðar-
framleiðslu (þó með nauðsynlegum leiðréttingum vegna vaxta-
munar), þ.e. mismun söluverömætis á tekjuvirði annars vegar
og verömætis aðkeyptrar vöru og þjónustu frá öðrum fyrir-
i tækjum hins vegar.
8) Leigur þær, sem hér um ræðir, eru eingöngu húsaleigu-
gjöld.
9) Hreint vinnsluvirði svarar til vergs vinnsluvirðis að
frádregnum afskriftum og leigum, og sýnir framlag hverrar
* greinar til hreinnar þjóðarframleiðslu (þó með nauðsynlegum
leiðréttingum vegna vaxtamunar).