Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Qupperneq 6
6 Fréttir 26. ágúst 2013 Mánudagur
2
8 ára karlmaður telur að sér
hafi verið nauðgað í Heið
mörk aðfaranótt þriðjudags.
Maðurinn leitaði eftir aðstoð
lögreglunnar og var fluttur á
Neyðarmóttöku. Honum hefur nú
verið úthlutaður réttargæslumaður
en hann á fund með lögreglunni í
byrjun vikunnar þar sem til stendur
að leggja fram formlega kæru.
Í leit að skyndikynnum
Fyrr um kvöldið hafði maðurinn
rætt við tvo til þrjá íslenska karl
menn í gegnum stefnumótasíðuna
Gayromeo, þar sem hægt er að hitta
hóp íslenskra karlmanna. Þá hafði
hann sett inn stöðuuppfærslu á
spjallsíðu um að hann yrði í Heið
mörk á milli tvö til þrjú þessa nótt.
Stöðuuppfærsluna sáu allir notend
ur spjallsíðunnar sem tengjast hon
um og voru skráðir inn á spjallið á
þessum tíma. Flestum þeirra kynnt
ist maðurinn í gegnum áðurnefnda
stefnumótasíðu.
„Ég veit að þetta er áhættuhegð
un,“ segir hann og dæsir, „en ég var
að sækjast eftir einhverri spennu.
Þetta er nokkuð algeng leið á með
al karla sem eru á höttunum eftir
skyndikynnum. Þetta hefur alltaf
verið í Öskjuhlíðinni en hefur verið
að færast annað.
Ég hef prufað þetta áður og þetta
er þannig séð nokkuð auðvelt. Þá
bið ég þá um að blikka ljósunum
ef þeir vilja eitthvað. Yfirleitt hef ég
samt verið búinn að staðfesta það
við einhvern að hittast á ákveðn
um stað og tíma. Í þetta skiptið var
enginn búinn að staðfesta það að
hann ætlaði að koma svo ég vissi
ekki hvað yrði.“
Maðurinn segist hafa ekið eftir
veginum sem liggur í gegnum Heið
mörk og lagt bílnum úti í vegkanti.
„Þá var bíl ekið að mér og lagt út í
vegkanti fyrir framan mig. Bremsu
ljósunum var blikkað þannig að ég
drap á bílnum mínum og stökk út.
Ég bankaði á rúðuna og ökumaður
inn spurði hvort ég væri með þetta
notandanafn á netinu. Ég játti því
og settist inn.“
Skyndileg þreyta
Að sögn mannsins átti sér ekkert
kynferðislegt stað á milli þeirra eftir
að hann settist inn í bílinn, ólíkt
því sem oftast gerist í þessum að
stæðum. „Yfirleitt vindur maður sér
bara beint í það, ef ég má orða það
þannig,“ segir maðurinn. „Þegar ég
kem inn í bílinn þá fara þeir yfirleitt
beint í mig.
Í þetta sinn var þetta ekki
þannig. Ég upplifði bílstjórann svo
lítið feiminn því hann sat bara við
stýrið og horfði ekki mikið til hlið
ar. Ég hélt að hann væri bara feim
inn og hikandi og var jafnvel farinn
að velta því fyrir mér að það yrði
kannski ekkert úr þessu.
Ég sjálfur var eitthvað stressað
ur. Hann var með opinn bjór og rétti
mér hann. Við töluðum ekki mikið
saman en þegar hann talaði við mig
hálfhvíslaði hann. Ég veit ekki hvort
ég er að lesa of mikið í það en eftir
á að hyggja finnst mér eins og hann
hafi ekki viljað að ég heyrði röddina
hans.
Ég kláraði bjórinn á kannski
korteri, tuttugu mínútum – ég veit
ekki hvað það leið langur tími, en
í kjölfarið fann ég fyrir rosalegri
þreytu. Ég sagði honum að ég yrði
að fara heim en hann hvatti mig til
þess að leggjast út af og jafna mig
aðeins. Ég þáði það og lagði sætið
niður.
Hann lagði bílstjórasætið líka
niður og lá rólegur í sætinu sínu án
þess að eiga nokkuð við mig. Hann
lét mig alveg eiga sig og sagði að
hann yrði bara þarna með mér. Ég
ætlaði bara að hvíla augun í svona
fimm til tíu mínútur.“
Bað um hjálp
Eftir á að hyggja er maðurinn 100
prósent viss um að það hafi verið
eitthvað í bjórnum. Hann lýsir því
þannig að hann hafi sofnað og
vaknað upp, fullklæddur á sama
stað og þegar hann sofnaði. Bíl
stjórinn lá enn við hliðina á honum
og í fyrstu virtist ekkert athugavert
við aðstæðurnar. „Það var ekkert
öðruvísi en ég hefði bara sofnað og
vaknað aftur. Ég fattaði ekkert,“ seg
ir maðurinn sem kvaddi, fór yfir í
bílinn sinn og hélt heim á leið. „Það
var ekki fyrr en þá sem ég fann fyrir
óþægindum á tveimur stöðum, ég
var aumur í rassinum og mig sveið
í öxlina.“
Hann ók inn í Reykjavík í gegn
um Vatnsenda. Af því að hann var
ekki eins og hann átti að sér að
vera, skynjunin var skrýtin, hon
um var óglatt og hann var ekki í
neinu ástandi til þess að keyra ók
hann beint inn á næstu bensínstöð
þar sem hann leitaði eftir aðstoð.
„Ég kom inn og bað um hjálp. Ég
vissi ekki hvað hefði gerst en ég var
greinilega á einhverju og gat ekki
keyrt og sagði að ég yrði að fá að tala
við lögreglu. Starfsfólkið á stöðinni
tók vel á móti mér og leyfði mér að
setjast niður og gaf mér gos. Síðan
kom lögreglan að sækja mig.“
Þetta staðfestir starfsfólk bensín
stöðvarinnar.
Með brunasár
Lögreglan flutti manninn upp á spít
ala þar sem hann var látinn skipta
um föt og lagður upp í rúm. Þar lá
hann í smá stund áður en hann
ákvað að fara inn á bað til þess að
skoða öxlina sem hann sveið alltaf
meira og meira í. „Þegar ég stóð upp
úr rúminu sá ég blóðpoll þar sem ég
hafði legið. Þá blæddi úr rassinum.“
Eins og gefur að skilja brá mann
inum verulega. Sjónin sem blasti við
honum í spegli hjálpaði heldur ekki.
Á öxlinni var hann með brunasár,
sár sem voru ekki þar áður en hann
sofnaði. Hann telur líklegast að sár
in séu eftir sígarettu, án þess að vita
það fyrir víst. „Þó ég hafi aldrei séð
manninn reykja þá fann ég á lykt
inni í bílnum að þar var reykt.“
Á Neyðarmóttöku vegna nauðg
ana fór maðurinn í læknisskoðun.
Tekin voru sýni til þess að kanna
smit og annað auk þess sem hann
ræddi við lögregluna sem geymdi
fötin sem hann klæddist þetta kvöld
og lakið sem hann lá á á spítalan
um. Manninum var einnig útvegað
ur sálfræðingur og réttargæslumað
ur og fékk símtal seinna í vikunni
þar sem honum var tjáð að hann
ætti tíma með lögreglunni í byrjun
vikunnar þar sem hann ætlar að
leggja fram formlega kæru.
Myndin situr föst í huga hans
Enn hefur maðurinn ekki sagt sín
um nánustu aðstandendum frá
nauðguninni, aðeins besta vini sín
um. „Hann er alltaf til staðar þegar
ég þarf að tala við hann.“
Eins og gefur að skilja er maður
inn enn í talsverðu áfalli og er veru
lega órólegur á meðan hann segir
frá því sem kom fyrir hann. Hann
reynir sitt besta til þess að dreifa
huganum með því að hringja í vini
sína, lesa bækur eða vera í kring
um fjölskylduna. En minningarnar
koma alltaf aftur til hans. „Kannski
er fáránlegt að segja það en sem
betur fer hef ég ekki myndræna
minningu af því sem gerðist. Ekki
það að það sé minni nauðgun fyrir
því, en ég var sofandi. Hins vegar
situr það fast í huga mér þegar ég
stóð upp úr rúminu og sá blóðið því
það var þá sem ég áttaði mig á því
hvað hafði gerst.“
Að honum hefur einnig læðst
þunglyndi og kvíði. „Á köflum fer
hjartslátturinn bara af stað, það
tengist ekki alltaf því sem ég er að
hugsa. Eins hugsa ég alltaf um það
að ég fór þangað, ég vissi að þetta
væri áhætta en ég var ekki að biðja
um þetta.“
Mikilvæg skilaboð
Frá því að maðurinn leitaði til
neyðarmóttökunnar hefur lítið gerst
í málinu að hans mati. Hann furðar
sig á því að lögreglan hafi ekki enn
komið að sækja tölvuna til þess að
hafa uppi á gerandanum og að bíll
inn hafi ekki enn verið skoðaður.
Hann segist meðvitaður um að
það hjálpi ekki til að vita ekki nafn
hins grunaða en engu að síður komi
bara ákveðnir menn til greina. „Ég
myndi halda að lögreglan væri á
fullu að leita að þessum manni,“
segir maðurinn og bætir því við
að honum finnist eins og „allir séu
hálfslakir yfir þessu. Eins og það sé
ekkert að gerast,“ án þess að hann
viti nákvæmlega hvernig rannsókn
lögreglunnar sé háttað.
Hann tekur einnig fram að hann
hafi mætt afar vinsamlegu viðmóti
og að allir sem hann hafi talað við
fram til þessa hafi verið tilbúnir til
þess að veita honum alla mögulega
hjálp, stuðning og hlýju. „En það
er á meðan ég er á staðnum. Síð
an gerist ekkert, eða ég upplifi það
þannig. Mér líður eins og ég hafi
bara gleymst en kannski er ég bara
svona óþolinmóður.
Mér finnst allavega mikilvægt
að senda út þau skilaboð að þetta
var ekki í lagi. Það er óþægilegt að
hugsa til þess að hann sé þarna úti
og haldi kannski að hann hafi kom
ist upp með þetta. Það er rangt,
hann mun aldrei komast upp með
þetta.“ n
Kom á bensínstöðina
og óskaði eftir hjálp
n Telur að sér hafi verið byrluð ólyfjan í Heiðmörk n Vaknaði upp blæðandi og með brunasár
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
„Þegar ég stóð
upp úr rúminu sá
ég blóðpoll þar sem ég
hafði legið. Þá blæddi úr
rassinum.
„Ég vissi
að þetta
væri áhætta en
ég var ekki að
biðja um þetta
Sárin á öxlinni Maðurinn vaknaði
upp með þessi brunasár á öxlinni, sár
sem voru ekki þar þegar hann sofnaði.
Erfiðir dagar Minningin um
blóðpollinn sem hann sá eftir
sig situr í manninum og hann
vill að það sé skýrt að sá sem
gerði honum þetta muni ekki
komast upp með það.
Mynd KriStinn MagnúSSon