Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Blaðsíða 8
V
ið erum bara ótrúlega
þakklát. Það eru nokkrar
mömmur búnar að hringja
og segja að strákarnir þeirra
vilji leika við hann, það
er búið að vera að spyrja eftir hon
um og hann hefur bara aldrei verið
ánægðari. Núna er von,“ segir Linda
Líf Baldvinsdóttir, móðir Antons
Mána Lindusonar, átta ára drengs í
Hraunvallaskóla í Hafnarfirði, sem
hefur orðið fyrir einelti síðan hann
hóf skólagöngu sína.
Fyrir helgi skrifaði systir Lindu,
Tinna Líf, færslu á Facebook þar
sem hún lýsti því hvernig komið
væri fram við Anton Mána í skólan
um. Lýsingarnar voru vægast sagt
sorglegar en hún sagði meðal annars
frá því hvernig skónum hans hefði
verið stolið og sturtað ofan í kló
settið, hann barinn og honum strítt.
Hrein martröð frá fyrsta bekk
„Þetta er búið að vera hrein martröð
síðan hann byrjaði í fyrsta bekk,“ seg
ir Linda um eineltið sem Anton Máni
hefur orðið fyrir. „Í leikskólanum hafði
hann gott stuðningsnet en þegar hann
kom í skólann þá féll hann ekki inn. Ég
fór að hafa miklar áhyggjur þegar að
skórnir hans hurfu einn daginn. Eftir
mikla leit fundust þeir ofan í einu kló
settinu,“ segir móðir hans. Anton var
að sjálfsögðu sár yfir skómissinum en
fékk nýja fína skó sem hann var afar
ánægður með. „En þeir voru líka tekn
ir og aðrir skór til viðbótar. Hann var
farinn að taka skóna með sér í tíma
eftir þetta,“ segir hún.
Anton er greindur með ADHD,
kvíða, þunglyndi og vott af áráttu.
Móðir hans segir hann geta verið erf
iðan, hann þrái mikið að eignast vini
og verði stundum of innilegur í því
þegar að hann telur sig eiga vin. Hún
segir það ekki aðeins vera bekkjarfé
laga hans sem leggja hann í einelti
heldur sé honum hvergi tekið inn
an skólans. „Þetta eru bekkjarfélagar
hans, sem og eldri og yngri krakkar.“
Vildi ekki lifa lengur
Í síðustu viku var skólasetning
hjá Antoni Mána sem var að byrja
í þriðja bekk. Flestir krakkarnir
mættu spenntir í skólasetninguna
en Anton var ekki spenntur. Það tók
hann langan tíma að manna sig upp
til að fara með móður sinni, hann
eyddi löngum tíma í að velja rétt föt
og kveið því að mæta háðglósum og
stríðni skólafélaga sinna. Á skóla
setningunni heilsaði hann nokkrum
vinum sínum. „Hann sagði hæ við
nokkra skólabræður sem stóðu 5–6
saman í hóp. Þeir sögðu; „hann sagði
hæ. Við skulum ekki segja hæ við
hann,“ og litu undan,“ segir Linda.
„Foreldrar þeirra stóðu þarna hjá
þeim og sögðu ekki neitt.“ Linda seg
ir ömurlegt að horfa upp á hvernig
börnin láti við Anton og hvernig for
eldrarnir virðast ekkert gera í því eða
taki ekki eftir því. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem hún sér hvernig krakkarnir
haga sér gagnvart syni sínum en hef
ur nú fengið nóg og er búin að skrá
hann í nýjan skóla. „Þetta er ekki
hægt lengur þó að mér finnist ömur
legt að þurfa að taka hann úr skólan
um. Þunglyndið var orðið svo mikið
hjá honum að hann sagði nokkrum
sinnum að hann vildi ekki lifa leng
ur,“ segir Linda.
Eineltið hættir ekki
Linda segist hafa reynt að vinna með
skólayfirvöldum að því að uppræta
eineltið en það hafi gengið illa. Þrátt
fyrir að rætt hafi verið við krakkana
sem og foreldra þeirra þá stoppi ekki
eineltið. „Þau eru búin að vinna með
mér. Ástæðan fyrir að ég var ekki
búin að láta hann skipta um skóla
fyrr er sú að þau lofa alltaf öllu fögru.
Skólasálfræðingurinn er búinn að
hjálpa mér rosalega mikið en þetta
er mest hjá foreldrum og börnum –
þar er vandinn.“
Linda segir að honum hafi stund
um ekki verið boðið í afmæli hjá
skólafélögunum. Honum sé þó yfir
leitt boðið en sé strítt í afmælunum.
Þegar hann hélt upp á sitt afmæli
mættu ekki allir vinir hans. „ Honum
er boðið í afmæli en ég hef þurft að
fara og fylgjast með og það hefur
alltaf verið erfitt. Hann hefur farið að
gráta, það er verið að skilja hann út
undan og segja ljót orð við hann.“
Linda segist hafa rætt nokkrum
sinnum við foreldra barna í skólan
um, þeir hafi rætt við sín börn en
þrátt fyrir það virðist ekkert breyt
ast. „Það var atvik þar sem þeir voru
fimm saman sem héldu honum niðri
og voru að kasta grjóti í hann. Hann
á það til að segja mér ekki hvað ger
ist en þarna sagði hann mér það eft
ir að ég fór að spyrja hann út í áverka
sem ég sá á honum. Ég fór og talaði
við foreldra strákanna sem komu af
fjöllum og fannst þetta bara ótrúlegt.
Þau létu þá biðjast afsökunar á þessu
en þetta batnaði samt ekkert,“ segir
hún.
Stanslaus barátta
„Þetta er bara búið að vera stanslaus
barátta og aldrei endar þetta,“ segir
hún. Nú hefur hún sótt um skólavist
fyrir Anton í öðrum skóla en segir
það vissulega vera erfitt og ósann
gjarnt að Anton þurfi að skipta um
skóla. „Það er það. Fólk áttar sig ekki
á því hvað börn geta verið grimm og
það trúir því enginn að barnið þeirra
geti gert svona. Ég er alls ekki að
segja að Anton geri aldrei neitt. En
eins og systir mín segir; hann er bara
svo misskilinn. Hann vill eignast vini
en kann ekki að fara rétt að því. Eina
sem hann vill er að eignast vini. Þetta
er búið að vera hrein martröð sem
ég vona að fari að taka enda og hann
eignist loksins einhverja vini.“
Mikill stuðningur
Svo virðist vera að einmitt eftir að
systir Lindu birti pistilinn á Face
book hafi augu barna og foreldra
opnast fyrir vandanum. Linda segist
fegin því að systir hennar hafi sagt frá
þessu en viðurkennir þó að það hafi
alls ekki verið auðvelt að stíga svona
fram í dagsljósið með vandamálið
en þetta sé eitthvað sem ekki eigi að
þegja um.
Enda létu viðbrögðin ekki á sér
standa. Stuðningskveðjur hafa borist
hvaðanæva að, krakkar í hverfinu
hafa haft samband við Anton og for
eldrar hafa talað við móður hans og
sagst ekki hafa vitað að vandamálið
væri svo djúpstætt. „Og nú er bara
að vinna rétt úr allri hjálpinni,“ segir
Linda.
Meðal þeirra sem réttu fram
hjálpar hönd var Stefán Karl Stefáns
son, forsvarsmaður Regnboga
barna, sem var væntanlegur til þeirra
mæðgina þegar DV talaði við þau á
sunnudag. „Anton er alveg ótrúlega
spenntur yfir því að vera að fara hitta
Glanna glæp,“ segir móðir hans hlæj
andi en Stefán leikur einmitt persón
una Glanna glæp í þáttaröðinni
Latabæ. „Það er líka búið að bjóða
honum að koma í Parkour í Gerplu,
landsliðsmaður í fótbolta er búinn
að bjóða honum að koma á æfingu
og ætlar að koma honum í fótbolta,
það er trommari sem ætlar að kenna
honum á trommur og þetta er bara
allt yndislegt,“ segir Linda snortin.
Hún er þó staðráðin í að koma hon
um í nýjan skóla.
„Nú er bara að einblína á það að
finna góðan skóla og koma honum
út úr þessu þannig að hann verði
ánægður í skólanum og með lífið.
Mig langar bara að þakka öllum
þeim sem hafa sett sig í samband við
okkur og sýnt okkur stuðning. Þetta
er ómetanlegt.“ n
„NúNa er voN“
8 Fréttir 26. ágúst 2013 Mánudagur
n Móðir Antons Mána er hrærð yfir viðbrögðum eftir að sagt var frá vanlíðan hans
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„Hann sagði
nokkrum
sinnum að hann
vildi ekki lifa lengur
Mikill stuðningur Linda segir það sárt að
hafa horft upp á son sinn vera lagðan í ein-
elti. Eftir að sagt frá eineltinu í fjölmiðlum
hafa þau fundið fyrir miklum stuðningi.
„Ég vil sofna að eilífu“ DV sagði frá því í
október 2011 að níu ára drengur, Gabríel Víð-
ir, hefði beðið móður sína um lyf svo hann
gæti sofnað að eilífu. Gabríel var lagður í
hrottalegt einelti af samnemendum sínum.
Svipti sig lífi 11 ára
Dagbjartur féll
fyrir eigin hendi í
september 2011.
Hann hafði fyrst
reynt sjálfsmorð
aðeins níu ára.
Dagbjartur átti
erfitt í skólanum,
var með hjarta-
galla sem háði
honum í daglegu
lífi og var lagður í einelti.
23. ágúst 2013 Sagt var frá pistli móðursystur Antons á DV.is á föstudag.