Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Page 19
Sport 19Mánudagur 26. ágúst 2013 Fíknin að fella Mike Tyson n Óttast um líf sitt vegna neyslu fíkniefna og áfengis É g óttast um líf mitt sökum þess að ég er fastur í vítahring fíknar en þannig vil ég ekki lifa,“ sagði hnefaleikagoð­ sögnin Mike Tyson í sjónvarps­ viðtali um helgina. Kappinn sagði þar að fíkn sín í áfengi og dóp væri hægt en bítandi að gera út af við hann og biðlaði til vina um aðstoð. Mörgum er kunnugt að ævi kappans, sem um tíma var talinn besti hnefaleikari heims, hef­ ur aldrei verið dans á rósum og hreint ekki eftir að hann varð milj­ arðamæringur eftir að hafa náð frægð og frama gegnum hnefa­ leika. Hann eyðilagði farsælan fer­ il með því að grípa til óhefðbund­ inna aðferða í hringum eins og að bíta eyrað af andstæðingi sínum og hann fór með sjálfan sig utan hrings með líferni sem á lítið skylt við íþróttir og einkenndist af mik­ illi drykkju og neyslu efna í veisl­ um og viðburðum dag eftir dag. Tyson er opinberlega gjald­ þrota og síðastliðinn vetur lá við að hann yrði borinn út úr húsi sínu sökum skulda. En nú segist hann hafa logið að sömu vinum og ætt­ ingjum og hann biðlar til nú. Hann sé ekki hættur í fíkniefnum eins og hann hafi haldið fram. Þvert á móti neyti hann sífellt meira magns efna og áfengis og hann sé sjálf­ ur hræddum um að dauðinn sé á næsta leiti. Þetta kom fram í vin­ sælum þætti tileinkuðum hnefa­ leikum á sjónvarpsstöðinni ESPN en þar var Tyson gestur. Stóð til að hann ræddi þar aðeins almennt um hnefaleika en það breyttist með viðurkenningunni um fíkn hans. „Mig langar til að breyta lífi mínu til hins betra og að mér verði fyrirgefið það sem ég hef gert öðr­ um. Ég var slæm manneskja lengi vel og gerði öðrum illt en nú hef­ ur mér tekist að vera án efna í sex daga og fyrir mér er það kraftaverk á langri leið. Ég bið alla fyrirgefn­ ingar.“ n Mike Tyson Þessi mikli jötunn er að láta í minni pokann fyrir fíkniefnum að eigin sögn. U m helgina fóru fram fyrstu leikirnir í helstu deildum ítölsku knattspyrnunnar og þó það hafi eflaust kætt marga hefur sennilega aldrei verið meiri skuggi yfir þeim bolta og nú. Alda spillingarmála hefur komið upp á yfirborðið síð­ ustu misserin sem enn sér ekki fyrir endann á. Allmargir leikmenn játað að hafa tekið þátt í svindli eða vitað af slíku og hvort sem þetta tengist þá mælist almennur áhugi fyrir fót­ bolta í landinu minni en nokkru sinni á sama tíma og helmingur knattspyrnuliða í efstu deild, Sería A, ramba á barmi gjaldþrots. Búið spil? Allnokkrir spekingar hafa rifið upp penna síðustu mánuði og nánast dæmt ítalska boltann dauðann og grafinn. Þannig háttar til að mynda til í tveimur nýlegum bókum sem fjalla um þennan herfilega kafla í þarlend­ um bolta. Önnur þeirra fjallar um svik, pretti og spillingu sem viðgeng­ ist hefur um árabil með samþykki allra sem að koma. Þar kemur fram að á þessari stundu er lögregla að rannsaka svik hjá helmingi þeirra fé­ lagsliða sem leika í efstu deild á Ítalíu. Hvert og eitt þeirra gæti misst stig eða verið dæmt niður um deild eða gert að greiða himinháar fúlgur fjár þegar og ef málin sem eru til rannsóknar fara fyrir dómstóla. Stóra spurningin er hvort nokkur hafi áhuga að fylgjast með slíkri deild þar sem enginn veit fyrir víst hvort leikmennirnir inni á vellinum séu raunverulega að leggja sig fram eða aðeins þykjast. Lítt varið í að veðja á leiki eða fara með börnin á völlinn þegar úrslitin eru ljós áður en leikur hefst. Gjaldþrotahrina framundan Helmingur félagsliða í Seríu A glíma einnig við þann djöful að hafa far­ ið illa með fé og standa veikum fótum. Að hluta til er það ítalska knattspyrnusambandinu um að kenna sem hefur lengi haft undar­ legar reglur um sölu sýningarréttar á leikjum. Í stað þess að greiða þeim hæst sem mest trekkja að hefur tekj­ um lengi verið skipt bróðurlega milli félagsliða ólíkt því sem gerist á Spáni, Englandi eða í Þýskalandi. Enda er það svo að ítalski boltinn hefur far­ ið mjög halloka og nú er jafnvel talið að efsta deild í Frakklandi trekki að meira fjármagn en félagslið í Seríu A. Þetta er vítahringur því sífellt minni tekjur þýða að Ítalir kaupa færri er­ lenda leikmenn og því lakari verð­ ur boltinn í landinu. Þetta er stór­ merkilegt þegar mið er tekið af því að fyrir aðeins 20 árum var Sería A deild deildanna í Evrópu þar sem all­ ar skærustu stjörnur heims léku list­ ir sínar. Ekki öll nótt úti En góðu heilli eru Ítalir að vakna til lífsins um að þeir verði að koma sér inn í nútímann. Í kjölfar spillingar­ mála hafa verið gerðar töluverðar breytingar hjá ítalska knattspyrnu­ sambandinu og félagsliðunum og á nýliðnu sumri bárust stöku fréttir af ítölskum liðum sem voru að kaupa stærri stjörnur utan en raunin hefur verið um tíma. Balo­ telli er vitanlega kominn heim aft­ ur frá Englandi en þar í landi spila nú einnig menn á borð við Gon zalo Huguín sem kaus Ítalíu fram yfir England og ein skærasta stjarna Spánar, Fernando Llorente, tók einnig þann kostinn. Þar spilar líka Carlos Teves svo fáeinir séu nefnd­ ir. Þessir menn og fleiri slíkir munu hægt og bítandi reisa ítalskan fót­ bolta upp úr þeim rústum sem hann hefur komið sér í. n Kröpp lægð en ekki dauði Spilling og áhugaleysi í ítalska boltanum: Albert Örn Eyþórsson albert@dv.is Skoðun Betri leikmenn Þetta sumarið hafa ítölsk félagslið náð til sín stærri stjörnum en raunin hefur verið undanfarin ár. Gleði og spilling Inter Milan fagnar meistara titlinum fyrr á árum meðan Adriano Galliani, forseti ítalska knattspyrnusambandsins, fylgdist með. Skömmu síðar var hann yfirheyrður vegna spillingar um árabil. Úrslit Enska úrvalsdeildin Fulham - Arsenal 1-3 0-1 Giroud (14.), 0-2 Podolski (41.), 0-3 Podolski (68.), 1-3 Bent (77.) Everton - WBA 0-0 Hull - Norwich 1-0 1-0 Brady v. (22.) Newcastle - West Ham 0-0 Southampton - Sunderland 1-1 0-1 Giaccherini (4.), 1-1 Fonte (88.) Stoke - Crystal Palace 2-1 0-1 Chamakh (31.), 1-1 Adam (58.), 2-1 Shawcross (62.) Aston Villa - Liverpool 0-1 0-1 Sturridge (21.) Cardiff - Man.City 3-2 0-1 Dzeko (52.), 1-1 Gunnarsson (60.), 2-1 Campbell (79.), 3-1 Campbell (87.), 3-2 Negredo (90.) Tottenham - Swansea 1-0 1-0 Soldado v. (58.) Staðan 1 Chelsea 2 2 0 0 4:1 6 2 Liverpool 2 2 0 0 2:0 6 3 Tottenham 2 2 0 0 2:0 6 4 West Ham 2 1 1 0 2:0 4 5 S.hampton 2 1 1 0 2:1 4 6 Man.City 2 1 0 1 6:3 3 7 Man.Utd 1 1 0 0 4:1 3 8 Aston Villa 3 1 0 2 4:4 3 9 Arsenal 2 1 0 1 4:4 3 10 Stoke 2 1 0 1 2:2 3 11 Cardiff 2 1 0 1 3:4 3 12 Fulham 2 1 0 1 2:3 3 13 Hull 2 1 0 1 1:2 3 14 Everton 2 0 2 0 2:2 2 15 Norwich 2 0 1 1 2:3 1 16 Sunderland 2 0 1 1 1:2 1 17 WBA 2 0 1 1 0:1 1 18 Newcastle 2 0 1 1 0:4 1 19 Cr.Palace 2 0 0 2 1:3 0 20 Swansea 2 0 0 2 1:5 0 Þýska bundesliga Dortmund - Werder Bremen 1-0 1-0 Lewandowski (55.) Bayern - Nurnberg 2-0 1-0 Ribery (69.), 2-0 Robben (78.) Leverkusen - Monchengladbach 4-2 1-0 Kiessling (23.), 2-0 Sam (28.), 2-1 Stranz (54.) 2-2 Arango (56.), 3-2 Sam (60.), 4-2 Castro (72.) Hannover - Schalke 2-1 1-0 Huszti (21.), 2-0 Diouf (42.), 2-1 Szalai (55.) Hoffenheim - Freiburg 3-3 1-0 Salihovic (9.), 1-1 Sorg (13.), 2-1 Volland (25.), 2-2 Guede (29.), 2-3 Freis (69.), 3-3 Strobl (77.) Mainz - Wolfsburg 2-0 1-0 Moting (60.), 2-0 Muller (78.) Hertha Berlin - Hamburg 1-0 1-0 Ramos (74.) Braunschweig - Frankfurt 0-2 0-1 Meier (52.), 0-2 Aigner (62.) Staðan 1 Dortmund 3 3 0 0 7:1 9 2 Leverkusen 3 3 0 0 8:3 9 3 Bayern M. 3 3 0 0 6:1 9 4 Mainz 3 3 0 0 7:3 9 5 Hertha Berlín 3 2 1 0 9:3 7 6 W.Bremen 3 2 0 1 2:1 6 7 Hannover 3 2 0 1 4:4 6 8 Hoffenheim 3 1 2 0 10:6 5 9 Wolfsburg 3 1 0 2 4:4 3 10 M‘gladbach 3 1 0 2 6:7 3 11 E.Frankfurt 3 1 0 2 3:7 3 12 Augsburg 3 1 0 2 2:6 3 13 Nürnberg 3 0 2 1 4:6 2 14 Freiburg 3 0 1 2 5:8 1 15 Schalke 3 0 1 2 4:9 1 16 Hamburger SV 3 0 1 2 4:9 1 17 Stuttgart 3 0 0 3 3:6 0 18 Braunschweig 3 0 0 3 1:5 0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.