Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Side 23
Menning 23Mánudagur 26. ágúst 2013 Blakkát á Akureyri L eikritið Blakkát eftir Björk Jakobs dóttur verður sett upp á Akureyri í september. Leikritið naut mikilla vinsælda í Hafnar- fjarðarleikhúsinu á síðasta leikári og var sýnt fyrir fullu húsi. Í tilkynn- ingu frá leikhópnum segir að „sök- um vína flensu hefur Bokka í Blakkáti misst skamtímaminnið og man því ekkert eftir seinasta leikári. Því hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn og mun partýið hefjast í Samkomu- húsinu á Akureyri 6. september. Þar verður hlegið þrjár helgar í röð, en svo verður sameinast í leigubíla í og brunað í Hafnarfjörðinn þar sem sýningar halda áfram í Gaflaraleik- húsinu í október.“ „Sýndu mér hetju og ég skrifa fyrir þig harmleik“ n Lygar Lance Armstrong afhjúpaðar í nýrri bók e f eitthvað er of gott til að vera satt þá er það yfirleitt ekki satt. Ný bók eftir blaða- manninn David Walsh sem fjallar um hjólreiðagarpinn Lance Armstrong gefur óhugnan- lega innsýn í heim íþróttamanna sem misnota lyf til að ná árangri. Bókin heitir Dauðasyndirnar sjö. Áður en Lance Armstrong fékk eistnakrabbamein og þurfti að taka sér frí frá hjólreiðum hafði hann keppt fjórum sinnum í Tour de France-keppninni og aðeins lokið þátttöku einu sinni þegar hann lenti í 36. sæti (1995). Hann var góður hjólreiðamaður en alls ekki einn af þeim allra bestu. Árið 1999 hófst sigurganga hans í Tour de France-keppninni sem stóð óslitin til ársins 2005 þegar hann vann sína sjöundu keppni í röð. Einn ótrúlegasti árangur í sögu íþrótta David Walsh var á þessum tíma blaðamaður á Sunday Times á Ír- landi og eftir fyrsta sigur Lance Armstrong hvatti hann fólk til að sýna stillingu. Það væri full ástæða til að fagna ekki of fljótt – það væri í raun ómögulegt að Lance Arm- strong hefði bætt sig á þennan hátt án þess að hann væri að nota ólög- leg lyf líkt og EPO, HGH eða stera. Fáir tóku mark á varnarorðum David Walsh. Það var þægilegra að trúa sögunni um manninn sem sigraðist á krabbanum og stóð nú á verðlaunapalli í einni erfiðustu íþróttakeppni heims. Næstu ár hélt David Walsh áfram að skrifa greinar um meinta lyfjamisnotkun Lance Armstrong – oft við litlar vinsæld- ir almennings eða kollega sinna á öðrum fjölmiðlum. Og Lance hélt áfram að vinna Tour de France-titla og raka inn peningum. Lýsingin á Lance í bók David Walsh minnir mann á einhvern hátt á stóru bankana fyrir hrun – þeir voru of stórir til að falla – sú varð raunin með Lance Armstrong. Svo margir áttu hagsmuna að gæta og svo miklir peningar voru í húfi að ekki var hægt að afhjúpa svindl- arann. Fallin hetja David Walsh vitnar í F. Scott Fitzgerald í bók sinni. „Sýndu mér hetju og ég skrifa fyrir þig harmleik“. Hann var orðinn erkióvinur Lance Armstrong – hafði skrifað um hann óteljandi blaða- greinar og gefið út bók ásamt öðrum blaðamanni þar sem hann færði rök fyrir því að Lance Armstrong væri að misnota lyf. Hann hafði komið upp um samband Lance Armstrong við Michel Ferrari, spillt- an lækni í Sviss, sem tók tíund af allri innkomu íþróttamanna gegn því að gera þá að ofurmennum með lyfjum á borð við EPO, testósterón og kortisón. Lance Armstrong uppnefndi David Walsh „litla tröllið“. Í frægri sigurræðu eftir síðasta Tour de France-sigur sinn talaði Lance Armstrong til Davids Walsh og allra þeirra sem efuðust um trúverð- ugleika hans. „Ég kenni í brjósti um ykkur. Ég vorkenni ykkur fyrir að eiga ekki stóra drauma. Ég vorkenni ykkur fyrir að trúa ekki á kraftaverk,“ sagði hann. Á endanum varð það David Walsh og efasemdarfólkið sem hafði rétt fyrir sér. Sigrar Lance Armstrong voru byggðir á svikum og lygum. Í skýrslu bandaríska lyfjaeftirlitsins var dóphring Lance Armstrong lýst sem mafíu. Liðsfélagar Lance Arm- strong þurftu að nota smink til að hylja sprautuför á handleggjum, dópi var smyglað með einkaflug- vélum, peningar millifærðir á sviss- neska bankareikninga, blóð geymt í leynilegum ísskápum, sprautur faldar á keppnisstöðum í kókflösk- um. Ljótur leikur Bók Davids Walsh lýsir ömurlegri hlið á keppnisíþróttum. Þetta er sá veruleiki sem fæstir vilja vita af og fjölmiðlar eru oft tregir að fjalla um. Það er auðveldara að fjalla um stóru sigr- ana en stóru svikar- ana. Bókin er jafn- framt persónulýsing á tveimur mönnum sem eru kannski líkari en þeir halda. Annars vegar Lance Arm- strong sem byggir líf sitt á lygi og er tilbúinn að gera hvað sem er til að sigra. Hins vegar blaða- manninn David Walsh sem helgar líf sitt sannleikanum og gerir hvað sem er til að þjóna honum – jafnvel þó fjölskyldan hans þurfi að sitja í öðru sæti. Játaði að lokum Á endanum viðurkenndi Lance Armstrong svik sín í frægu viðtali við Opruh Winfrey. Fram að því hafði hann ekki aðeins neitað stað- fastlega að hafa misnotað lyf – hann hafði lagt þá sem héldu því fram í gróft einelti, notað lögfræðingaher til að hræða fólk og haft í hótunum við sína nánustu vini. Viðtalið við Opruh átti í huga Lance Armstrong að marka nýtt upphaf en Lance var ófær um að segja allan sannleikann, ófær um að biðjast einlæglega af- sökunar og var étinn með kjafti og klóm af einum klókasta og besta spyrli í heimi. Lance Armstrong sagðist hafa tapað um 75 milljónum Banda- ríkjadala á einum degi, eftir að svik hans komust upp. Hann var svipt- ur sínum sjö Tour de France-titlum – titlum sem í huga blaðamannsins Davids Walsh eru táknmyndir fyrir dauðasyndirnar sjö. n Seven Deadly Sins My Pursuit of Lance Armstrong Höfundur: David Walsh 451 blaðsíða Bækur Símon Birgisson simonb@dv.is David Walsh Er ritstjóri íþróttafrétta hjá The Sunday Times í Bretlandi og hefur hlotið fjölda blaðamannaverðlauna fyrir sín skrif. Lance Armstrong í Tour de France Var sviptur öllum sjö Tour de France-titlum sínum. Hér sést hann í gulu treyjunni frægu. Fallegar myndir frumkvöðuls þýðufólki en þær eru yfirleitt teknar utan stúdíósins. Myndirnar sem eru teknar fyrir utan ljósmyndastofuna eru að mörgu leyti áhugaverðari því þær eru skrásetning á sögunni: Líkt og gildir um svo gamlar myndir af Reykjavík og öðrum stöðum á Ís- landi þá er alltaf forvitnilegt að sjá hvernig þekktir staðir í landinu litu út á sínum tíma og er þessi bók Sigfúsar engin undantekning: Nakin varðan stendur á Skólavöru- holtinu og ekkert í kring þar sem í dag er hjarta Reykjavíkur og Hall- grímskirkja gnæfir yfir. Textinn í bókinni er ekki lang- ur, rúmar 50 síður, og er myndum Sigfúsar leyft að tala ásamt mynda- textum á þeim 200 síðum sem bók- in spannar. Textamagnið í bókinni er hæfilegt enda eru það myndirnar sem bera hana uppi. Aftast í bókinni eru svo ítarlegir myndatextar um einstaka myndir. Þetta er falleg bók hjá Þjóðminjasafninu; eins og oft gerist þegar ég skoða gamlar mynd- ir frá Íslandi kom sú tilfinning yfir mig að allt hlyti að hafa verið betra á Íslandi á þessum tíma, undir lok 19. aldar og í byrjun þeirrar tuttug- ustu. Sú tilfinning er auðvitað röng – þetta voru tímar einna mestu brott- flutninga af landinu í sögunni líkt og Sigfús dókumentaraði í mörgum myndum af Vesturförum sem er að finna í bókinni – en það er gaman að finna hana: Fegurðin í myndunum og rómantíkin í kringum þær ýtir undir þessa tilfinningu. n Kirkjustræti Hér er horft austur Kirkjustræti í Reykjavík. Myndin er frá árinu 1883 og sýnir meðal annars Alþingishúsið sem þá var nýbyggt. Í Norðurfirði Myndin sýnir breska farþegaskipið Camoens í Norður- firði á Ströndum en það sigldi til Íslands á árunum 1879 til 1887. Thor Jensen, síðar athafnamaður, kom meðal annars til landsins um borð í skipinu árið 1883.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.