Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2013, Blaðsíða 27
Fólk 27Mánudagur 26. ágúst 2013 Það leynist margt í svörtu bókinni n „Er mamma þín nokkuð í töskunni“ Þ að styttist í bókina, en hún kemur út fyrir jólin. Vinnu­ heitið er Litla svarta tísku­ bókin en nafnið er í fæðingu,“ segir Eva Dögg Sigurgeirsdóttir rit­ stýra og eigandi Tíska.is. Hún legg­ ur nú lokahönd á bók sem hún er að skrifa fyrir íslenskar konur sem hafa áhuga á tísku og almennum huggu­ legheitum. Hvað kom til að þú ákvaðst að skrifa sjálfshjálparbók um tísku? „Það er nú bara þannig að flest allir jarðarbúar klæða sig í föt á hverjum morgni og jú auðvitað er það ákvörðun hvers og eins hvað verður fyrir valinu. En mig langaði að setja saman í eina bók góð ráð og skemmtilegar en einfaldar lausnir til að hjálpa konum að draga fram það besta og verða besta mögulega út­ færslan af sjálfri sér. Við kunnum öll að klæða okkur, það lærist í leikskóla, en það er bara hvernig við setjum þetta saman sem er galdurinn.“ Skrifar fyrir allar Íslenskar konur „Ég er að hluta til að skrifa þessa bók fyrir sjálfa mig og pottþétt allar vin­ konur mínar og vinkonur þeirra, mæður, systur, ömmur og frænkur, sem þýðir í raun allar íslenskar kon­ ur. Ég er eins og allar aðrar stelpur oft í vandræðum þegar ég stend fyrir framan skápinn minn. Ég viðurkenni það fúslega að ég stend reglulega fyr­ ir framan skápinn minn og segi; „ég á ekkert til að fara í“.“ Pakkar of miklu fyrir ferðalagið „Nú svo er ég þessi týpa sem pakka oft aðeins of miklu til dæmis þegar ég fer í ferðalög og nota oft ekki nema brot af því sem ég pakkaði niður. Ég man eftir fyrsta ferða­ laginu með kærastanum mínum, þá spurði hann mig hvort mamma væri nokkuð í töskunni.“ n „Ég hef kysst konu sem kyssti Elvis“ É g þarf að gefa þeim að borða og hýsa þau, ég þyrfti eigin­ lega að fara að skoða þau mál,“ segir Helgi Björnsson og skell­ ir upp úr. Hann hefur fengið þýsku hljóm­ sveitina Capital Dance Orchestra til að spila með sér á tónleikunum Helgi syngur Hauk í Eldborgarsal Hörpu 11. október næstkomandi. Dýnur á stofugólfið Hljómsveitina, sem er gamaldags swingband, skipa 15 manns og því ekkert smámál að flytja bandið til Ís­ lands. „Ég flýg þeim til Íslands. Það kom ekkert annað til greina, ég beit þetta í mig og nú er þetta að gerast og ég verð að redda þeim gistingu. Kannski legg ég bara dýnur á stofugólfið,“ segir hann og gerir að gamni sínu. Plataður til að taka lagið Helgi komst í kynni við Captial Dance Orchestra þegar hún spilaði á opnunarhátíð Admirals Palast­leik­ hússins í Berlín árið 2006. Hljóm­ sveitin er gamaldags swingband, eða bigband eins og slíkar sveitir eru oft kallaðar. „Ég var plataður til þess að taka lagið með þeim. Ég er viss um að þeim hefur ekkert litist á blikuna. Hugsað sitt og svona. Hvað er karl­ inn að vilja upp á dekk? En þegar ég byrjaði að syngja tókst mér að koma þeim á óvart. Þeir hrifust af söngn­ um og ég tók upp nokkur lög með þeim,“ segir Helgi og segir frá því að í framhaldinu hafi hljómsveitin vilj­ að gera með honum plötu. Af sam­ starfi Helga og sveitarinnar varð fyrr á þessu ári og spilaði hún und­ ir á plötu hans með lögum Hauks Morthens. Það er langt síðan hann féll fyrir Hauki Morthens. „Ég hef verið að lauma einu og einu lagi inn á plötur Reiðmanna vindanna. Haukur var dásamlegur söngvari og lögin hans dægurperlur. Nú fannst mér tími til kominn að gera minningu hans hátt undir höfði.“ Langar í nánd Veturinn verður annasamur hjá popparanum og hann ætlar að gera róttæka breytingu á tónleikahaldi á næstunni. Hann hefur í nokkurn tíma þráð að ferðast einn um landið með gítarinn og komast í návígi við tónleikagesti. „Mig langar í þessa nánd. Langar að vera einn með gítarinn, ferðast um landið og segja fólki sögur. Ég hef verið að hugsa um þetta í dágóðan tíma og ætla að fara að láta verða af þessu. Það gerist eitthvað sérstakt á svona tónleikum og mig langar til að upplifa það.“ En hvaða sögur ætlar hann að segja? „Ef ég segi þér það, þá er ekk­ ert gaman að því að koma og hlusta á mig,“ segir hann og hlær. „En ég get sagt þér að ég hef kysst konu sem kyssti Elvis Presley,“ segir hann í stríðnistón og neitar að segja eitt orð í viðbót til útskýringar. n n Helgi Björns ætlar að spila og segja sögur n Flytur inn þýska stórsveit Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is Vill nánd við tónleikagesti Helgi ætlar að ferðast um landið með eingöngu gítar í farteskinu. MynD: Hörður SVEinSSon Frábær árangur Leikarinn Ólafur Darri þakkaði fyrir stuðninginn eftir þátttöku hans í Reykjavíkurmaraþoninu. Hann hljóp fyrir AHC­samtökin og safnaði rétt rúmlega milljón krón­ um, fleiri hlupu fyrir samtökin og söfnuðust rúmlega tvær milljón­ ir. „Þetta var í fyrsta skipti en svo sannarlega ekki síðasta sem ég tek þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, þvílík stemning hjá hlaupurun­ um og þeim sem hvöttu þá áfram,“ sagði Ólafur Darri. Jón Gunnar Geirdal sem setti markið á milljón náði einnig markmiði sínu og gott betur, á sunnudag var hann efstur í áheit­ um með eina milljón og tæplega hundrað þúsund krónur. Jón Gunnar var ófeiminn við að hringja í auðmenn landsins fyrir veik börn í Rjóðrinu og er greini­ legt að símtölin hafa skilað sínu. Charlie Sheen pósar í miðbænum Charlie Sheen kvaddi Ísland sæll og glaður ef marka má Twitter­ síðu hans um helgina. Eggert feldskeri saumaði handa honum tvær húfur svo honum ætti ekki að verða kalt þegar hann þræð­ ir barina. Leikarinn var staddur hér við veiðar og kom víða við, meðal annars við styttuna af Jóni Sig­ urðssyni, þar sem hann stillti sér höfðinglega upp. 57,14 „Búinn að vera kósí uppi í rúmi í 57 mínútur og 14 sekúndur,“ segir Óttar Martin Norðfjörð, í Face­ book­stöðufærslu sinni á laugar­ daginn síðastliðinn. Þeim sama degi og margir voru duglegir að segja frá góðum tíma sem þeir náðu í Reykjavíkurmaraþon­ inu sem var hlaupið í 30. sinn á laugardag. 14.272 manns slepptu laugardagskúri og hlupu maraþon og söfnuð áheit voru á laugardag komin upp í 68 milljónir sem er nýtt áheitamet. MynD TwiTTEr/CHarLiE SHEEn MynD Eyþór ÁrnaSon Snjöll Eva Dögg lumar á góðum ráðum. „Mig langar í þessa nánd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.