Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Blaðsíða 4
Nokkur launamunur hjá VR n 20 prósent kvenna eru uppgefin að loknum vinnudegi L aunamunur kynjanna hjá VR helst óbreyttur á milli ára, en niðurstöður launakönnunar voru kynntar á fimmtudag. Kynbundinn munur er 9,4 prósent en munur á heildarlaunum er 15,4 prósent. Í byrjun þessa árs kynnti fé­ lagið Jafnlaunavottun VR, sem á að tryggja að konur og karlar fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Níu fyrirtæki hafa á árinu fengið slíka vottun og á þriðja tug hefur sótt um. Það virðist þó enn ekki hafa haft áhrif á launa­ muninn. Heildarlaun félagsmanna VR hækkuðu um tæp 7 prósent frá janúar mánuði 2012 til sama mánað­ ar 2013. Grunnlaun hækkuðu um 7,5 prósent á sama tíma og kjara­ samningsbundnar hækkanir námu 3,5 prósentum. Grunnlaun félags­ manna eru að meðaltali 473 þúsund krónur á mánuði en heildarlaun að meðaltali 507 þúsund krónur. Vinnutími kvenna hefur lengst eftir hrun en vinnutíma karla stað­ ið í stað. Nú munar aðeins þrem­ ur klukkutímum á vinnuviku karla og kvenna. Árið 2004 var munurinn fimm klukkustundir. Konur vinna nú að meðaltali 42,1 klukkustund á mánuði en karlar 45,1 klukkustund. 57 prósent þátttakenda sögðu að vinnuálag hefði aukist milli ára. Mun fleiri karlmenn voru í þeim hópi. Þegar spurt var nánar kom þó í ljós að konur voru yfirleitt mun þreyttari að loknum vinnudegi en karlmenn. Um 20 prósent kvenna sem svöruðu sögðust of þreytt að loknum vinnu­ degi til að gera nokkurn skapaðan hlut á móti 14 prósentum karla. n Boðið er upp á tveggja vikna spænskunámskeið með menn- ingarlegu ívafi í Extremadurahéraði á Spáni. Kennt er í 3 tíma á dag utan þá tvo daga sem farið er í dagsferðir. Fyrri vikuna er dvalið í klaustri sem breytt hefur verið í þriggja stjörnu hótel í þorpinu La Parra. Þar gefst góður tími til slaka á, ná sambandi við náttúruna og kyrrðina og borða mat sem framleiddur er í héraðinu. Síðari vikuna er dvalið á undurfallegu fjögurra stjörnu hóteli á ráðhús- torginu í bænum Zafra. Leiðsögumaður og spænskukennari er Margrét Jónsdóttir Njarðvík, vararæðismaður Spánar. Haustbúðir á Spáni - fyrir fullorðna www.mundo.is 11. - 25. október 2013 Verð: 369.900 miðað við tvo í herbergi Verð: 410.000 miðað við einn í herbergi Nánari upplýsingar í síma 6914646 eða margret@mundo.is Innifalið: Flug, hótel, fæði (fullt fæði fyrri vikuna, hálft fæði síðari vikuna), rútuferðir, skoðunarferðir til Mérida og Sevilla, spænskukennsla 3 klst. á dag, gönguferðir við sólarupprás í 2-3 klst á dag, jóga þrisvar í viku, aðgangseyrir að Reales Alcazares í Sevilla og aðgangseyrir að söfnum í Mérida. Á svörtum lista og kemst ekki í aðgerð n Kristján Pétursson er áttræður og varð að sleppa augnaðgerð É g átti tíma í augnaðgerð á Landspítalanum 29. apríl og þá kom upp úr kafinu að það var búið að setja mig á svart­ an lista þannig að ég varð að sleppa þessari aðgerð,“ segir Kristján Pétursson, áttræður eftirlaunaþegi og öryrki. „Við hjónin fórum til um­ boðsmanns skuldara í fyrra, það gekk svona sæmilega en sá tími er útrunninn og það eru að koma sex bréf mánaðarlega með rukkunum frá Reykjanesbæ út af fasteigna­ gjöldum. Það er ekkert verið að spara lögfræðina, það eru tvö bréf sem koma frá bænum, tvö frá Motus og tvö frá Landslögum,“ segir Krist­ ján en hann segist eiga fjórðungshlut í húsi í Höfnum á Reykjanesi á móti eigin konu sinni og tveimur dætrum hennar. Furðar sig á rukkunum Skuldin í húsinu í Höfnum á Reykjanesi er meðal annars tilkomin vegna vangoldinna greiðslna sem aðrir skráðir eigendur af húsinu hafa ekki sinnt sem skyldi, að sögn Krist­ jáns. Það hafi verið of mikið fyrir hann einan að standa undir öllum útgjöldum á húsinu sjálfur. „Ég hef bara þessar örorkubætur og lífeyris­ sjóð,“ segir Kristján en hann segir stórt hlutfall af útgjöldunum tengj­ ast bágu heilsuástandi sínu. Hann segist ekki hafa búið í húsinu sjálf­ ur í þrjú ár og að það standi nú autt. „Það er rukkað fullt rafmagnsgjald og vatnsgjald en vatnið er ekkert notað og rafmagnið ekki neitt,“ seg­ ir Kristján og furðar sig á rukkunun­ um. Hann segist hafa rætt mál sín við bæjar yfirvöld í Reykjanesbæ en hann hafi ekki heyrt frá þeim þótt tveir mánuðir væru nú liðnir og lög­ fræðibréfin haldi áfram að streyma inn um lúguna. Bæjarstjórinn í Keflavík segir málið flókið Blaðamaður DV hafði samband við Árna Sigfússon, bæjarstjóra í Keflavík, vegna málsins en hann staðfestir að Kristján hafi leitað á bæjarskrifstofu vegna aðstæðna sinna. „Við þekkjum til Kristjáns og viljum svo gjarnan hjálpa honum,“ segir Árni. „Fasteignagjöld eru yfir­ leitt felld niður vegna mjög bágbor­ inna og erfiðra aðstæðna einstak­ linga og það er bara farið mjög vel í gegnum þær aðstæður. En í þessu tilviki er þetta mjög sérstakt þar sem nokkrir eigendur eru að húsinu og að skipta fasteignagjöldum á þá er mjög flókið. Þá er erfitt að fella niður fasteignagjöld á eign þar sem þú hef­ ur ekki upplýsingar um tekjustöðu og eignastöðu annarra eigenda,“ út­ skýrir Árni. Hann segist hafa viljað tryggja það að Kristján væri að fá sína augnskoðun og aðgerð óháð því hvort hann væri með ógreidd mál hjá Reykjanesbæ. „Þegar hann var að fara í aðgerð og ætlaði að fá lán þá var honum tjáð að hann væri á svört­ um lista. Ég fór í það að athuga hvort sá listi væri ekki frá okkur. Mér skilst að þetta sé frá bankanum komið,“ segir Árni. Fékk lömunarveiki Kristján hefur að eigin sögn þurft að glíma við þráláta sjúkdóma og margs konar áföll yfir ævina en hann er hjartasjúklingur og notast við hækjur til að komast leiðar sinn­ ar. „Ég fékk lömunarveiki þegar ég var strákur og það hefur alltaf fylgt mér og versnað eftir því sem ég elt­ ist.“ Kristján var því kominn á örorku fyrir aldur fram. „Ég er með slitgigt í baki, mjöðmum og hnjám. Þeir sem eru veikir fyrir hjarta taka svona hót­ anir mikið meira nærri sér en aðrir sem heilbrigðir eru,“ segir Kristján um greiðslukröfurnar. Missti aleiguna í snjóflóðunum á Patreksfirði Árið 1982 varð Kristján fyrir þeirri hörmulegu lífsreynslu að lenda í snjóflóðunum á Patreksfirði. „Þar missti ég móður og bróður og heim­ ili. Allt sem hægt var að missa. Þau fylgja manni nú í gröfina svoleið­ is áföll,“ segir Kristján sem segir áfallahjálp ekki hafa verið í boði á þeim tíma. Fjallað var um snjóflóðin í Kastljósi í vetur en þar kom fram að þeir eigendur sem misstu húsin sín í flóðunum hafi ekki fengið tjón­ ið bætt fjárhagslega. Kristjáni finnst erfitt að rifja málið upp. „Þetta var kært á sínum tíma því það var talið að hreppurinn bæri ábyrgð í þessu og í héraðsdómi var hann dæmdur sekur. Svo fór þetta fyrir Hæstarétt. Þá var þessu snúið við og hreppur­ inn var sýknaður. Það var engu lík­ ara þá en við sjálf hefðum komið okkur í þessar aðstæður. Alls staðar var lokað á okkur,“ segir Kristján en hann segist hafa flutt í burtu frá Pat­ reksfirði í kjölfarið og fest kaup í eign út frá loforðum um bætur sem hann segist hafa fengið á sínum tíma. „Ég er búinn að vera á svörtum lista í Landsbankanum í 30 ár af því að það sem okkur var lofað kom aldrei,“ segir Kristján. n Svala Magnea Georgsdóttir blaðamaður skrifar svala@dv.is Vonbrigði Kristján varð að víkja frá upprunalegum áformum um að komast í augnaðgerð. Mynd: dV ehF / Sigtryggur Ari 4 Fréttir 13.–15. september 2013 helgarblað Fannst kaldur og hrakinn Aðfaranótt fimmtudags fann Landhelgisgæslan karlmann sem villst hafði á milli Svínafells­ og Skaftafellsjökuls. Maðurinn var orðinn kaldur og hrakinn þegar hann fannst enda veður mjög slæmt. Þyrla gæslunnar var kölluð út rétt fyrir átta á miðvikudagskvöld þegar ljóst var að maður væri villtur á svæðinu og voru björg­ unarsveitarmenn komnir á stað­ inn um tíu leytið. Maðurinn hafði náð sambandi við fjölskyldu sína með farsíma en gat ekki sagt hvar hann var staddur. GSM­miðunar­ búnaður í þyrlunni TF­GNA kom því að góðum notum, en með honum tókst að staðsetja síma mannsins. Það tókst um ellefu leytið og var þá hægt að þrengja leitarsvæðið til muna. Skilyrði til leitar með þyrlunni voru hins vegar mjög slæm, var henni því lent og beðið átekta. Björgunar­ sveitarmenn fundu svo manninn rétt rúmlega eitt eftir miðnætti. Óbreytt á milli ára Launamunur kynjanna helst óbreyttur á milli ára hjá félagsmönnum VR. Mynd: Mynd dV Efast um endur- nýjanlega orku Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segist efast um að endurnýjanlegir orkugjafar dugi til að svara orkuþörf heims­ ins á næstu árum og áratugum. Því sé mikilvægt að ríkisstjórn Ís­ lands stuðli að nýtingu hugsan­ legra olíulinda á Drekasvæðinu, en rannsóknir benda til að þar gætu reynst stórar og miklar olíu­ auðlindir. Vefmiðillinn Austurfrétt grein­ ir frá því að þetta hafi komið fram í erindi sem aðstoðarmaður Sig­ mundar Davíðs, Jóhannes Þór Skúlason, flutti fyrir hann á mál­ þingi samtakanna Landsbyggðin lifir í síðustu viku. Þá sagðist Sigmundur telja Aust­ firðinga eiga mikil tækifæri í upp­ byggingu þjónustu við gas­ og olíuleitarfyrirtæki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.