Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Blaðsíða 20
Özil í eldlínunni E ftir landsleikjahrinu í undankeppni HM mun bolt- inn rúlla á ný í ensku úr- valsdeildinni um helgina. Á dagskránni eru fjölmargar athyglisverðar viðureignir og eiga toppliðin á hættu að misstíga sig. Liverpool er á toppi deildarinnar eft- ir þrjár umferðir og er eina liðið sem enn er með fullt hús stiga. Liðið á ekki leik fyrr en á mánudag en þá fer Rauði herinn í heimsókn til Wales og mætir Swansea. Þá mæta Aron Einar Gunnarsson og félagar hans í Cardiff Hull á útivelli á laugardag í fyrsta ný- liðaslag vetrarins. Skyldusigur United Fjórða umferðin hefst í hádeginu á laugardag þegar Englandsmeistarar Manchester United taka á móti ný- liðum Crystal Palace. David Moyes og lærisveinar hans í United hafa ekki byrjað tímabilið með glæsibrag en United-liðið situr í 7. sæti deildar- innar með 4 stig. Liðið tapaði fyrir Liverpool fyrir hálfum mánuði, 1–0, en á sama tíma vann Crystal Palace sinn fyrsta leik í deildinni þegar Sunderland steinlá á Shelhurst Park, 3–1. Ef allt er eðlilegt ætti United þó að landa öruggum þremur stigum. Fyrsti leikur Özil Um miðjan dag á laugardag fara fram sex leikir þar sem Manchester City, Arsenal og Tottenham verða öll í eldlínunni. Manchester City mætir Stoke City á útivelli en Manchester City er í 3. sæti deildarinnar og Stoke í 5. sæti. Bæði lið eru með sex stig. Arsenal, sem hefur spilað vel í undanförnum leikjum heimsækir Sunderland, en eftir tap í fyrstu umferðinni gegn Aston Villa hefur Arsenal klifrað upp töfluna og unnið síðustu tvo leiki sína. Sunderland hefur hins vegar verið í vandræðum og er liðið aðeins með eitt stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Mesut Özil, sem var keyptur frá Real Madrid á lokadegi félagaskiptagluggans, mun væntanlega leika sinn fyrsta leik með Arsenal og verður gríðar- lega spennandi að sjá hvernig hann smellur inn í lið Arsenal. Ljóst er að til mikils er ætlast af þessum lang- dýrasta leikmanni í sögu Arsenal. Loks mætir Tottenham Norwich á White Hart Lane og má liðið illa við að misstíga sig eftir tap gegn Arsenal í síðustu umferð. Tottenham er þó í ágætis málum með sex stig í 6. sæti deildarinnar. Norwich hefur byrjað tímabilið þokkalega og er með fjögur stig. Hörkuslagur í Wales Síðdegis á laugardag fer fram einn athyglisverðasti leikur umferð- arinnar þegar Chelsea heimsækir Everton. Leikir þessara liða hafa oft- ar en ekki verið frábær skemmtun. Everton hefur ekki farið vel af stað í deildinni og er enn án sigurs eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Liðið hefur gert þrjú jafntefli og þarf að fara að hala inn stig á heimavelli. Chelsea er í ágætum málum í 2. sæti deildar- innar með sjö stig og virðist til alls líklegt í vetur. Umferðinni lýkur á mánudag þegar Swansea tekur á móti toppliði Liverpool. Swansea er með þrjú stig í 16. sæti deildarinn- ar en liðið vann góðan 2–0 útisigur á WBA í síðustu umferð. Liverpool hefur byrjað tímabilið frábærlega og hefur sýnt að það getur vel blandað sér í toppbaráttuna í vetur. Mánu- dagsleikurinn ætti því, aldrei þessu vant, að geta orðið frábær skemmt- un að þessu sinni. n n Enski boltinn rúllar af stað að nýju n Liverpool heimsækir Swansea 20 Sport 13.–15. september 2013 Helgarblað D V fékk Magnús Gylfason, þjálfara karlaliðs Vals í knattspyrnu og eldheitan stuðningsmann Manchester United, til að spá í spilin fyrir um- ferðina. Magnús spáir sínum mönnum sannfærandi sigri gegn Crystal Palace og að eitt mark muni ráða úrslitum í leikjum Chelsea og Liverpool. Þá reiknar hann með að okkar maður, Gylfi Þór Sigurðsson, byrji á bekknum eftir tvo erfiða landsleiki. Laugardagur Manchester United – Crystal Palace „Þetta verður auðveldur heima- sigur, 4–0. Ef Wayne Rooney verður klár í slaginn og byrjar, skorar hann þrennu og Robin van Persie verður með fjórða markið.“ Stoke – Manchester City „Ég hef trú á að þetta verði jafn- tefli, 1–1. Stoke hefur spilað ágæt- lega og Manchester City gæti alveg lent í smá vandræðum framan af tímabili.“ Sunderland - Arsenal „Sunderland er í smá rugli og ég held að Arsenal vinni þarna sann- færandi, 3–1. Ætli Özil verði ekki maður leiksins. Ég held að það sé enginn vafi á að þetta séu bestu kaup Arsenal í mörg ár.“ Tottenham – Norwich „Þetta verður hörku leikur sem Tottenham vinnur, 2–0. Ef Villas- Boas horfði á Gylfa gegn Albaníu fær hann að spila. Hann er að vísu búinn að spila erfiða tvo landsleiki þannig að ég reikna með að hann byrji á bekknum. En hann mun koma inn á og vera öflugur.“ Aston Villa – Newcastle „Aston Villa hefur staðið vel í stóru liðunum á meðan Newcastle hef- ur hikstað. Ég held að Villa vinni þennan leik, 1–0, og Benteke skorar alveg örugglega.“ Fulham – WBA „Fulham er með Berbatov og ég spái mjög fjörugum leik. Þetta fer 2–2 og Bernbatov skorar allavega annað mark Fulham.“ Hull – Cardiff „Bæði lið vita að þau verða að vinna þennan leik og þau verða lík- lega að berjast á svipuðum slóð- um. Ég ætla að spá Hull 1–0 sigri í miklum baráttuleik og þarna mun heimavöllurinn ráða úrslitum.“ Everton – Chelsea „Mig rámar í að Chelsea hafi stund- um lent í vandræðum á Goodison Park. Ég held samt að Mourinho og hans menn merji þarna 1–0 úti- sigur – Frank Lampard skori úr víti snemma og Chelsea leiki svo agað- an varnarleik og klári þetta.“ Sunnudagur Southampton – West Ham „Southampton leikur skemmti- legan fótbolta og ég held að þeir nái að vinna þetta, 2–1. Þeir eru á heimavelli og Ricky Lambert skor- ar allavega eitt mark.“ Mánudagur Swansea - Liverpool „Þó að mínir menn hafi unnið sannfærandi sigur þarna í fyrstu umferðinni hef ég á tilfinningunni að Liverpool lendi í vandræðum. Þetta verður mjög skemmtilegur leikur en Michu skorar sigurmark Swansea mjög seint í leiknum. Liverpool getur ekki verið mikið lengur á toppnum.“ n Stórsigur United n Magnús Gylfason spáir markasúpu á Old Trafford í hádeginu á laugardag Vissir þú … … að Manchester United hefur unnið 26 af síðustu 29 heimaleikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. … að Everton hefur haldið hreinu í síðustu sex heimaleikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. … að hlutfall heppnaðra sendinga hjá Steven Gerrard er 87 prósent það sem af er tímabili. … að Stoke átti fæst skot allra liða utan teigs á síðasta tímabili, eða 31. Það sem af er hafa þeir átt flest skot allra liða, eða 8. … að leikmenn frá 50 löndum hafa spilað með West Ham frá stofnun úrvalsdeildarinnar. … að Ross Barkley hjá Everton hefur skotið 13 sinnum utan teigs í úrvalsdeildinni í vetur, oftar en nokkur leikmaður. … að Mesut Özil hefur gefið 72 stoðsendingar á síðustu fimm árum, meira en nokkur leikmaður í stóru deildunum fimm. … að Romelu Lukaku var eini leikmaður úrvalsdeildarinnar í fyrra sem skoraði fjögur mörk eða meira með hægri fæti, vinstri fæti og höfðinu.. Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Frábær kaup Mesut Özil mun væntanlega leika sinn fyrsta leik með Arsenal um helgina. Toppliðið Augu margra munu beinast að toppliði Liverpool sem á erfiðan leik fyrir höndum gegn Swansea á mánudag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.