Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Síða 32
32 13.–15. september 2013 Helgarblað
ára stúlka var fyrsta fórnarlamb franska fjöldamorðingjans Michel Fourniret sem árið 2004
var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð á níu stúlkum. Morðin framdi Fourniret á fjórtán ára
tímabili, frá 1987 til 2001. Hann var handtekinn árið 2003 þegar mannránstilraun hans á ungri
stúlku misfórst í Belgíu. Fourniret á möguleika á reynslulausn árið 2026.17
Þ
að er ekki óþekkt með öllu
að Bretar sem til Frakk-
lands koma falla kylli-
flatir fyrir landinu. Sú var
raunin hjá Patriciu Wilson,
kaupsýslukonu á sextugsaldri sem
sinnti mikilvægum starfa í Lund-
únum. Vart hafði hún drepið nið-
ur fæti í Aveyron í Frakklandi, árið
2007, er hún sá söluskilti við af-
skekkt einnar hæðar hús skammt
frá þorpinu Vabre-Tizac.
Ekkert skyldi koma í veg fyrir
að Patricia „Pat“ Wilson eignað-
ist húsið. Kaupverðið var 300.000
evrur og hún gat vart beðið eftir að
skrifa ávísun fyrir helmingi kaup-
verðsins - kærasti hennar sam-
þykkti að leggja út fyrir hinum
helmingnum.
Pat beið ekki boðanna, fór í
snarhasti til Lundúna, sagði starfi
sínu lausu, gekk frá öllum sínum
málum og sneri rakleiðis til Frakk-
lands á ný.
Veikindi setja strik í
reikninginn
Fimm árum síðar veiktist kærasti
Pat illa og var tilneyddur til að
flytja aftur til Lundúna. Patricia gat
með engu móti endurgreitt hon-
um 150.000 evrurnar og þar sem
hún hugðist ekki selja húsið þá
var endanlegur aðskilnaður þeirra
óumflýjanlegur.
Um svipað leyti bar þar að Jean-
Louis Cayrou, alltmúligmann frá
Toulouse. Hann tók að sér öll viðvik
og stillti verð í hóf. Innan skamms
voru allir Bretar á svæðinu farnir
að nýta sér þjónustu hans – þeirra á
meðal Pat.
Eftir því var tekið að Jean- Louis
eyddi drjúgum tíma hjá Pat, tíma
sem jafnvel hentaði ekki til garð-
vinnu. En ef glóð rómantíkur hafði
kviknað í hjarta Pat þá kólnaði sú
glóð fljótt jafn og hún kastaði hon-
um fyrir róða. Slæm samskipti
þeirra skánuðu ekki þegar Jean-
Louis fór inn á heimili hennar um
miðja nótt og vakta hana helst til
ruddalega.
Lögreglan eða ekki
Jean-Louis sagðist hafa slegið út
rafmagninu svo ekki þýddi fyrir Pat
að kveikja ljós. „Þetta geri ég til að
sýna þér að þú getur ekki verið ein
þíns liðs í þessu húsi,“ hvæsti hann.
„Þú þarfnast karlmanns þér við
hlið. Hvað sem er getur komið fyrir
þig ef þú ert ein.“
Pat kallaði ekki allt ömmu sína
og tókst að reka Jean-Louis af hönd-
um sér og velti því síðan fyrir sér
hvort hún ætti að hafa samband við
lögreglu. Eftir smá umhugsun féll
hún frá þeirri hugmynd; það kynni
að valda hneyksli.
Í vikulokin fór Patricia til Eng-
lands og sagði farir sínar ekki sléttar.
Ættingjar hennar fengu að vita allt
um Jean-Louis. „Hann veldur mér
áhyggjum. Ég vona að hann gleymi
mér þennan tíma sem ég verð fjarver-
andi,“ sagði hún. En því fór fjarri því
Frakkinn kaffærði hana í sms-skila-
boðum.
Blóð á þröskuldinum
Pat sneri til Frakklands 17. ágúst,
2012, og sama dag sá vinur henn-
ar að grárri Peugeot-bifreið
hennar hafði verið lagt fyrir fram-
an draumahúsið. Vinur Pat velti því
ekkert frekar fyrir sér, en nokkrum
dögum síðar sá hann að bíllinn var
enn á sama stað og hafði greinilega
ekki verið hreyfður. Hann hringdi í
lögregluna.
Lögreglan þurfti ekki frekari
vitna við því þegar hún mætti á
svæðið blasti við blóðslóð við úti-
dyrnar. Innan dyra var meira blóð
og ljóst af verksummerkjum að Pat-
ricia hafði rétt verið komin heim
úr verslunarferð þegar ráðist var á
hana.
Patricia hafði greinilega varist
árasarmanninum af hörku en að
sögn læknis var ljóst að hún hafði
misst mikið blóð, svo mikið að
sennilega hefði hún ekki lifað af.
En lík hennar var hvergi að sjá.
Árangurslaus leit
Grunur lögreglunnar beindist fyrst
að fyrrverandi kærasta Patriciu, en
hann hafði ekki komið til Frakklands
og beið þess að fara í aðgerð í Lund-
únum. Þá heyrði lögreglan af sam-
skiptum Pat og Jean-Louis, nætur-
heimsókn hans og þeim áhyggjum
sem Patricia hafði viðrað þegar hún
heimsótti ættingja sína í Lundúnum.
En lík Pat var hvergi að finna og
tveimur vikum síðar fékk lögreglan
niðurstöður úr rannsókn sem gerð
var á blóði sem fannst á fatnaði Jean-
Louis - blóðið var úr Pat. Hið sama
var að segja um blóð sem fannst í bif-
reið Jean-Louis.
Jean-Louis var ákærður fyrir
morðið og sat í gæsluvarðhaldi í
um ár, án þess að segja nokkuð sem
varpað gæti ljósi á málið.
Þann 18. ágúst í ár var honum
sleppt en rannsókn lögreglunnar
mun áfram beinast að honum. Lík
Patriciu Wilson hefur ekki enn kom-
ið í leitirnar. n
Hvað varð um Pat?
n Ástarævintýri breskrar konu og fransks alltmúligmanns fékk hörmulegan endi„Hvað sem er getur
komið fyrir þig ef
þú ert ein.
Jean-Louis Cayrou Alltmúligmaður frá Toulouse sem ekki vildi sleppa hendinni af Pat.
Patrica Wilson Fann
draumahúsið í Frakklandi
og var sennilega myrt í því.
Ólétt stúlka í
vondum málum
Nítján ára barnshafandi stúlka,
Sarah Knysz, og eiginmaður
hennar, Eric Knysz, hafa verið
ákærð fyrir morð á lögregluþjóni í
Michigan í Bandaríkjunum. Lög-
regluþjóninn var skotinn í höfuðið
af stuttu færi þegar hann stöðvaði
bifreið hjónanna við reglubundið
eftirlit á dögunum. Talið er að Eric
hafi verið sá sem tók í gikkinn en
Sarah hafi verið sú sem ók bif-
reiðinni á brott eftir voðaverkið.
Óvíst er hvers vegna Eric ákvað að
ráða lögregluþjóninum bana en
hvorugt skötuhjúanna hafði áður
komist í kast við lögin.
Blindir fá
byssuleyfi
Bæði blindir og sjóndaprir fá nú
að kaupa og bera byssur í banda-
ríska fylkinu Iowa. Var það niður-
staðan úr miklum deilum sem
spruttu upp í kjölfar umdeildra
lagasetningar sem var sett á þingi
fylkisins árið 2011. Kjarni laganna
var að ekki mætti banna byssueign
einstaklings nema það varðaði al-
mannahag. Sýslumenn í fylkinu,
sem veita byssuleyfi, höfðu túlkað
lagabreytinguna á mismunandi
hátt. Nú hefur komið í ljós að þeir
sýslumenn sem veittu blindum
byssuleyfi höfðu rétt fyrir sér og
eiga nú allir sýslumenn fylkisins
að fylgja þeim.
Læknir stal veski
Virtur læknir, Abdul Choudhuri,
sem starfar á Harley Street í
London, hefur verið dæmdur í
30 mánaða fangelsi af dómstóli í
Nottingham. Hann var fundinn
sekur um að hafa stolið seðlaveski
af ferðamanni sem gleymdi því í
ógáti á kaffihúsi. Í veskinu voru
2.500 pund, eða liðlega hálf milljón
íslenskra króna.
Daily Mail greinir frá því að á
meðal skjólstæðinga læknisins séu
Hollywood-stjörnur og aðalsfólk.
Verðmæti stofunnar sem hann á á
þessari þekktu götu hleypur á um
120 milljónum króna. Hann sagðist
sjálfur hafa misst veskið þegar sjón-
arvottar vísuðu lögreglu á hann.
Upp komast svik um síðir og lækn-
irinn, sem hafði ýmiss konar afsak-
anir á reiðum höndum, fékk orð í
eyra frá dómaranum í málinu, áður
en dómurinn var upp kveðinn.