Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Síða 44
M
aður sem lætur út úr sér
setninguna „Ég vil deyja
á Mars, bara ekki við
lendingu“, væri í flestum
tilfellum álitinn með
mikil mennskubrjálæði ef ekki eitt-
hvert alvarlegra heilkenni. Þegar af-
rekaskrá Elon Musk frá því í fyrra er
skoðuð er nokkuð ljóst að þörf er
á annarri greiningu. SpaceX varð
fyrsta fyrirtæki sem náði að skjóta á
loft eldflaug knúinni fljótandi elds-
neyti. Sú flaug ýtti Dragon-geim-
farinu upp að ISS-geimstöðinni og
tók þannig við af geimskutlunni
sálugu sem vistflutningavél út fyrir
gufuhvolfið. Tesla rúllaði fyrstu
Model S-bifreiðunum af færi-
bandinu og framleiddi 400 bíla á
viku í desember. SolarCity fór í gegn-
um fyrsta hlutafjárútboð til almenn-
ings og setti upp 156 MW af sólarraf-
hlöðum á húsþök í Bandaríkjunum.
Skrýtna barnið frá Pretóríu
Eitt sinnsem barn var Elon úti fyrir
að leik í hópi frændsystkina þegar
tók að rökkva. Hin börnin voru far-
in að ókyrrast vegna myrkursins
en Elon vildi ekki fara inn. Að lok-
um fór systir hans að gráta og móð-
ir þeirra kom út. „Af hverju vilt þú
ekki fara inn Elon, við erum hrædd!“
sagði hún. Elon geislaði af fullvissu
þess sem skyndilega skildi heiminn
í kring um sig, lyfti upp höndunum
og sagði: „Hræðist ekki myrkrið, það
er ekkert að óttast. Myrkrið er ein-
göngu tilkomið vegna af skorts á
ljósi!“
Átthagabreytingar
og umbrotatímar
Þegar Elon var 17 ára flutti hann til
Kanada, að hluta til vegna herskyldu
í Suður-Afríku en líka vegna þess að
hann sá að til þess að takast ætlun-
arverk sín yrði nauðsynlegt að vinna
í Bandaríkjunum. Um herskylduna
sagði hann: „Ég var ekki mótfallin
inngöngu í herinn þannig séð, en
að þjóna hersveitum Suður-Afríku
við að bæla niður svarta kynþáttinn
var ekki aðlaðandi notkun á mínum
tíma.“ Bandaríkin voru lokaáfanga-
staðurinn vegna þess að „þar eru
stórfenglegir atburðir mögulegir.“
Fyrsti sprotinn og fleiri
græðlingar
Elon var skráður í doktorsnám í
eðlis fræði en hætti við nokkrum
dögum eftir að námið hófst og
stofnaði hugbúnaðarfyrirtæki
ásamt bróður sínum með áherslu
á gagnasöfnun fyrir ferðalanga um
borgir heims. Kimbal Musk hefur
síðar líkt Zip2 við Google Maps, á
undan sinni samtíð. Það reyndist
erfitt að sannfæra fjárfesta um að
hugmyndin væri arðbær og útlitið
ekki gott um tíma. Elon tapaði hins
vegar aldrei sýn sinni á framtíðina
og uppskar heldur betur laun erfið-
isins þegar Alta Vista bauð 307 millj-
ónir Bandaríkjadala í fyrirtækið.
Horfðu til himins
Þriðja fyrirtæki Musk var SpaceX.
Það verður að teljast mikil framsýni
að sjá árið 2002 að einhvern tímann
yrði arðbært að keppa við NASA um
geimskot. Musk hefur sagt að fram-
tíðarsýn Asimov í bókunum Found-
ation hafi verið innblástur. Ef menn
myndu ekki komast til stjarnanna
þá væri of margt sem gæti grandað
okkur á jörðinni. Risaeðlurnar hefðu
haft færri áhyggjuefni. Kjarnavopn,
líftæknivírusar og hnattræn hlýnun
og aðrar tækniógnir gætu hæglega
kreist líftóruna úr öllu á litla græn-
bláa hnettinum okkar.
… og til jarðar
Musk er of heildrænn hugsuður til
að ráðast á vandann frá einni hlið.
Ef eitt af stærri vandamálunum er
orkunotkun og hnattræn hlýnun, þá
bæri hugsuði að færa fram einhverj-
ar lausnir aðrar en að flýja. Hann
fjárfesti í Tesla-rafbílafyrirtækinu og
er þar yfir vöruhönnun og daglegum
rekstri. Hann hjálpaði frænda sínum
að setja á fót sólarrafhlöðufyrir tækið
SolarCity. Það býður upp á heild-
ræna lausn í orkusparnaði þar sem
boðið er upp á sérsniðnar lausnir
fyrir bæði fyrirtæki og einstaklinga.
Rafhlöðutækni sem þróuð er hjá
Tesla er notuð til að jafna út sólar-
ávinning dagsins og nota minna raf-
magn af orkunetinu eftir sólarlag.
Elon Musk er Járnmaðurinn?
Jon Favreau hefur sagt að Elon Musk
sé sú fyrirmynd sem hann hafi gef-
ið Robert Downey Jr. fyrir Tony Stark
í Járnmanninum. Samlíkingin við
Stark á fullan rétt á sér. Musk er með
púlsinn á fjármálahliðinni og tækni-
hliðinni. Titillinn sem hann heldur
hjá SpaceX sem yfirmaður tækni-
mála er ekki heiðursnafnbót. Musk
tók virkan þátt í hönnun Merlin-
vélarinnar sem er verkfræðiþrek-
virki á jaðri mannlegrar þekkingar.
List hermir eftir lífinu, en veitir líka
innblástur. Eftir að hafa séð Iron
Man-myndirnar fór Musk að skoða
hversu vænlegt væri að herma eftir
hönnunarviðmóti í rannsóknarstofu
Stark. n
Ítarlegri umfjöllun um Musk í vef-
útgáfu.
44 Fólk 13.–15. september 2013 Helgarblað
Maðurinn sem ætlar
að deyja á Mars
n Raðsprotafrumkvöðullinn Elon Musk n Fyrirmyndin að Iron Man
Launahæstu
leikkonur
Hollywood
1 Angelina Jolie Þrátt fyrir að hafa haldið sig frá sviðsljósinu
undanfarið er Angelina Jolie launahæsta
leikkonan í Hollywood en tekjur hennar
nema 33 milljónum Bandaríkjadala,
eða rúmum fjórum milljörðum íslenskra
króna.
2 Jennifer Lawrence
Hunger Games-
stjarnan er orðin ein
eftirsóttasta leikkona
Hollywood en hún
hlaut sín fyrstu óskarsverðlaun fyrr á
árinu. Tekjur hennar nema 26 milljónum
dollara, eða um 3,2 milljörðum króna.
3 Kristen Stewart
Vinsældir Twilight-
myndanna virðast
hafa skilað sér í
kassann því Stewart er
þriðja launahæsta
leikkona ársins. Tekjur hennar nema 22
milljónum dala, eða um 2,7 milljörðum
króna.
4 Jennifer Aniston Þökk
sé Friends þyrfti Aniston
í reynd aldrei að vinna
handtak aftur. Hún hefur
þó verið nokkuð dugleg á
hvíta tjaldinu og er auk þess vinsæl með-
al erlendra slúðurmiðla. Tekjur hennar
nema 20 milljónum dollara, eða um 2,4
milljörðum króna.
5 Emma Stone Stone
hefur smám saman
tekist að skapa
sér nafn sem ein
eftirsóttasta leikkona
Hollywood en tekjur
hennar nema 16 milljónum dala, eða um
1,9 milljörðum króna.
topp 5
Líkar mæðgur
Julianne Moore kom með ellefu
ára dóttur sinni, Liv Freundlich, á
tískusýningu Reed Krakoff á tísku-
viku New York í vikunni.
Julianne og Liv vöktu mikla
athygli ljósmyndara og þóttu
skemmtilega líkar. Mæðgurnar
sátu saman í fremstu röð með
stjörnum úr tískuheiminum á
borð við Rachel Zoe, Carine Roit-
feld og Ninu Garcia. Útgeislun Liv
þykir svo mikil að mönnum þótti
ljóst að þarna væri væntanlegt
ofurstirni á ferð.
JuliannE og liv
Árni Steingrímur Sigurðsson
blaðamaður skrifar arnisig@dv.is
„Ég vil deyja
á Mars, bara
ekki við lendingu
Falcon 9 í flugtaki Geimflaug SpaceX lyftir sér á sporbaug.
Fyrirmyndin að iron man Jon Favreau
hefur sagt að Elon Musk sé sú fyrirmynd
sem hann hafi gefið Robert Downey Jr. fyrir
Tony Stark í Járnmanninum.
Elon Musk Jafnklár og Steve
Jobs var, en viðkunnanlegri.