Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 4
4 Fréttir 18.–20. október 2013 Helgarblað „Hugboð“ en þögn n Landsliðsmenn vita ekki hver seldi silfrið Þ eir landsliðsmenn í hand­ knattleik sem DV hefur rætt við um söluna á ólympíu­ silfurpeningnum segjast ekki vita hver það var sem seldi pen­ inginn. Enn hefur ekki komið í ljós hver það var. Viðkomandi leikmaður seldi peninginn vegna fjárhagserfið­ leika og greip HSÍ inn í í kjölfarið og kom peningnum aftur til hans. Málið telst upplýst að mati HSÍ. Mikil forvitni hefur hins vegar gripið um sig hjá hluta landsmanna sem ólmir vilja fá botn í málið: Hver það var sem seldi silfurpeninginn. DV hefur haft samband við nokkra af leikmönnum landsliðsins vegna málsins, meðal annars þá Sig­ fús Sigurðsson og Ólaf Stefánsson. Hvorugur þeirra sagðist hins vegar vita um hvern ræddi. Sigfús neitaði því aðspurður að hann hefði selt sinn silfurpening og sagðist jafnframt ekki vilja spá og spekúlera í hver það væri af lands­ liðsmönnunum sem kæmi til greina. Hann sagði jafnframt að jafnvel ef hann vissi hver hefði selt silfurpen­ inginn þá væri alls ekki gefið að hann segði frá því. Ólafur Stefánsson sagðist ekki vita hver seldi peninginn en að hann hefði „hugboð“ um það sem hann ætlaði jafnframt bara að halda fyrir sig. Sú staðreynd að ekki hefur enn spurst út hver seldi silfurpeninginn en fékk hann svo jafnframt aftur er merkileg. Yfirleitt spyrjast slíkar upplýsingar út. Þetta hefur hins vegar ekki enn gerst hjá strákunum okkar í silfurliðinu. Alveg ljóst er að meirihluti leikmannanna veit hver seldi peninginn en þeir tala ekki um það. n ingi@dv.is 1 matsk. safieða 1 hylki. F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i . Jafnvægi og vellíðan lifestream™ nature’s richest superfoods Hótar starfskonu góðgerðasamtaka n Krafin um milljón í miskabætur n Hefur ekki svarað kröfubréfi Þ ann 28. september síðast­ liðinn sendi Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, lög­ maður Egils Einarssonar, konu á fertugsaldri kröfu­ bréf vegna ummæla sem hún lét falla um Egil á athugasemdakerfi DV.is. Í bréfinu er konan krafin um afsök­ unarbeiðni og eina milljón króna í miskabætur. Að sögn Vilhjálms hef­ ur hún enn ekki brugðist við bréf­ inu, þrátt fyrir að frestur til þess hafi runnið út 6. október síðastliðinn, og gæti málið því leitt til stefnu. Konan er búsett erlendis þar sem hún starfar fyrir góðgerðasam­ tök sem berjast gegn hlutgervingu kvenna en verði henni stefnt gæti henni orðið gert að greiða háar fjár­ hæðir vegna ummælanna. Fjórir aðrir fengu kröfubréf Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, lögmaður Egils, segir í samtali við blaðamann DV að konunni hafi ekki verið stefnt en að kröfubréf hafi verið sent. „Ég sendi henni kröfubréf, vegna ummæla í athugasemdakerfi DV.is. Það voru fleiri sem fengu kröfubréf fyrst. Gott ef það hafi ekki verið fjór­ ir sem fengu kröfubréf. Einn ung­ ur, vænn og sómakær drengur sá sóma sinn í því að biðjast afsökun­ ar og honum var ekki stefnt en eftir stóðu þrjár stefnur. Það er kominn dómur í einu máli og kemur dóm­ ur í hinum 21. október. Síðan ger­ ist það að það kemur þarna önnur bylgja athugasemda í tengslum við fréttaflutning af viðtali í Nýju Lífi og fleira. Þetta eru ummæli sem eru látin falla sem athugasemdir við þær fréttir ykkar,“ segir Vilhjálmur. Verður fleiri einstaklingum stefnt? „Það er ekki búið að stefna fleir­ um en ég get staðfest við þig að þessi kona fékk kröfubréf og hefur ekki svarað því.“ Mörg mál til skoðunar Ummælin sem um ræðir voru látin falla dagana 29. ágúst og 14. sept­ ember síðastliðinn og voru eftirfar­ andi: „Þetta var viðbjóðslegt mál og hræðilegt að þurfa að sjá nauðgar­ ann í öllum fjölmiðlum eins og ekk­ ert hafi í skorist.“ „Nauðgun er nauðgun, sama hver á í hlut. Fólk sefur ekki hjá grát­ andi manneskju. Það er nauðgun.“ „Ójú, miðað við hvernig þessi maður hefur komið fram við kon­ ur og allt sem ég hef lesið um þessa nauðgunarákæru, þá efa ég ekki að hann sé sekur.“ Tveimur vikum eftir að síðustu ummælin voru látin falla var kröfu­ bréfið sent. „Þetta bréf er dagsett 28. sept­ ember 2013. Hún var með frest til 6. október 2013 til að biðjast afsökun­ ar á ummælunum, viðurkenna að þau séu röng og greiða miskabætur sem munu renna til góðgerðamála. Það hefur hún ekki gert. Ég sendi henni þetta með tölvupósti þar sem hún býr í Englandi. Hún hefur ekki svarað þessu,“ segir Vilhjálmur. Hvað var farið fram á háar miskabætur? „Mig minnir að það hafi verið ein milljón.“ Gæti þetta leitt til stefnu? „Ég get staðfest það að þessi kona hefur fengið kröfubréf og ég efast ekki um að henni verði stefnt ef hún ætlar ekki að bregðast við.“ Eru fleiri sambærileg mál til skoðunar? „Það er búinn að vera mikill fjöldi mála til skoðunar. Mjög mikill fjöldi. Nafnlausar Facebook­síður og annað.“ Þremur hefur verið stefnt Líkt og fyrr sagði starfar konan fyrir góðgerðasamtök á Englandi en ljóst er að starfsmenn góðgerðasamtaka eru sjaldnast á háum launum og má því ætla að verði hún dæmd til að greiða Agli miskabætur yrði það henni þung fjárhagsleg byrði. Ekki virðist þó liggja fyrir hvort konunni eða öðrum verði stefnt en fyrir utan konuna sem um ræðir höfðu fjór­ ir einstaklingar þegar fengið send kröfubréf af svipuðum toga og var þremur þeirra síðan stefnt fyrir meiðyrði. Dómur hefur fallið í einu þeirra mála en líkt og kunnugt er var hin tvítuga Ingibjörg Lilja Hafliðadótt­ ir dæmd í Héraðsdómi Austurlands til að greiða rúmar 900 þúsund krónur vegna ummæla sem hún lét falla um Egil á samskiptasíðunni Facebook. Var henni gert að greiða Agli 100 þúsund krónur í miska­ bætur, auk vaxta og dráttarvaxta, 800 þúsund krónur í málskostnað, þar sem meðal annars var tekið til­ lit til ferðakostnaðar lögmanns Eg­ ils, og 30 þúsund króna sekt í rík­ issjóð. Í kjölfarið hóf Guðný Rós Vilhjálmsdóttir, stúlkan sem kærði Egil og unnustu hans, Guðríði Jóns­ dóttur, í desember 2011, söfnun á Facebook þar sem sú upphæð sem Ingibjörgu Lilju var gert að greiða safnaðist á innan við sólarhring. n Hörn Heiðarsdóttir blaðamaður skrifar horn@dv.is Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is „Ég efast ekki um að henni verði stefnt ef hún ætlar ekki að bregðast við Vilhjálmur Hans Vilhjálmur segir fjölda mála til skoðunar hjá honum og skjólstæðingi sínum, Agli Einarssyni. Mynd Sigtryggur Ari Egill Einarsson Egill fer fram á að konan biðji hann afsökunar og greiði auk þess milljón í miskabætur fyrir ummæli sín. Mynd Sigtryggur Ari Gerir upp síðustu ár Steingrímur J. Sigfússon, þingmað­ ur og fyrrverandi fjármálaráðherra, ræðir í væntanlegri bók átökin á bak við tjöldin í íslenskum stjórn­ málum á síðasta kjörtímabili. Bók­ ina ritar Björn Þór Sigbjörnsson en bókaforlagið Veröld gefur hana út. Mikið mæddi á Steingrími á síðasta kjörtímabili og fór hann á stundum með mörg ráðuneyti. Lík­ lega hefur hann frá mörgu að segja. Í tilkynningu frá Veröld segir að í bókinni svipti Steingrímur hulunni af átökum sem fram fóru að tjalda­ baki, jafnt frá þungbærum deilum við samherja sem og glímu við pólitíska andstæðinga. „Og hlífir hvorki sjálfum sér né öðrum. Engar leið- réttingar fyrir jól Bjarni Benediktsson segir að engar ákvarðanir verði teknar á þessu ári um skuldamál heimilanna „Varðandi skuldamálin leiðir af þessu svari mínu að stjórnvöld eru ekki að fara í neina samninga við kröfuhafa um skuldamál heimil­ anna.“ Þetta sagði Bjarni Benedikts­ son fjármálaráðherra á Alþingi í gær. Tilefnið var fyrirspurn Helga Hjörvar, þingmanns Samfylkingar­ innar. Helgi spurði hvort rétt væri eftir Bjarna haft á Bloomberg fyrr í vikunni þar sem fram kom að ekki yrði ráðist í aðgerðir í skuldamálum heimilanna fyrr en á næsta ári. Bjarni sagði líka að ekkert hefði breyst með skuldamál heimilanna. Þau væru í sérstakri nefnd sem ákveðin var í sumar. Þaðan kæmu tillögur bæði í nóvember og des­ ember, annars vegar frá skuldaleið­ réttinganefndinni og hins vegar verðtryggingarnefndinni. „Það er mitt álit að síðan þurfi að taka þær tillögur til skoðunar og eftir atvik­ um til meðferðar hér í þinginu.“ Leiðréttingar á skuldamálum heimilanna voru eitt stærsta kosn­ ingaloforð Framsóknarflokksins. Ljóst er að bið verður á að í þær verði ráðist. Silfurleyndarmál Enn er á huldu hver af strákunum okkar seldi ólympíusilfur­ peninginn sinn. Sigfús Sigurðsson og Auðunn Atlason sjást hér saman í landsleik. Mynd gEtty iMAgES

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.