Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Qupperneq 10
10 Fréttir 18.–20. október 2013 Helgarblað „Manneskjur en ekki glæpaMenn“ n Hættuleg þróun að hælisleitendur séu brennimerktir, segir talskona UNHCR P ia Prytz Phiri, framkvæmda­ stjóri umdæmisskrifstofu Flóttamannahjálpar Sam­ einuðu þjóðanna (UNHCR) í Norður­Evrópu, gagnrýnir það hvernig flóttamenn og hælisleit­ endur hafa verið brennimerktir sem glæpamenn hérlendis upp á síðkastið. „Þetta er mjög óheppileg þróun og ég tók málið sérstaklega upp á fundi með innanríkisráðherra, vegna þess að ég tel það vera á ábyrgð stjórnmála­ manna að sjá til þess að fólk fái rétt­ ar upplýsingar,“ segir Pia. Hún vísar meðal annars til þess þegar fimmtán hælisleitendur voru handteknir á heimili sínu í Auðbrekku í Kópavogi í síðasta mánuði. Engar skýringar hafi verið gefnar á þeirri hörku sem sér­ sveitin beitti í aðgerðinni, en látið í það skína að um væri að ræða ótínda glæpamenn. Pia segir ábyrgðina liggja að einhverju leyti hjá fjölmiðl­ um en ekki síður hjá lögreglunni sem virðist hafa tilgreint þjóðerni nokkurra mannanna sérstaklega í samskiptum sínum við fjölmiðla. Þannig hafi að­ gerðin verið réttlætt á þeirri forsendu að á meðal hælisleitenda hefðu verið menn frá Albaníu. „Svona umfjöllun elur á útlendingahatri og rasisma,“ segir Pia sem kom hingað til lands á dögunum til þess að kynna sér aðstæður hælis­ leitenda og fylgja eftir skýrslu um stöðu ríkisfangslausra á Íslandi. Hún ræddi meðal annars við hælisleitend­ ur sem handteknir voru í aðgerðinni, sem og lögfræðinga sem þekkja til málsins, og segir allt útlit fyrir að brotið hafi verið á mannréttindum mannanna. Margir þeirra hafi orðið fyrir miklu sálrænu áfalli þegar sér­ sveitin réðst inn á heimili þeirra og í kjölfarið misst allt traust á íslenskum stofnunum. Eins og DV greindi frá voru velflestar dyr heimilisins brotnar upp í aðgerðinni. Þá voru menn hand­ teknir á nærbuxum einum fata og þurftu sumir þeirra að dúsa hálfnakt­ ir í fangageymslum lögreglunnar. Lög­ menn hafa í samtali við DV sagði að lögreglan hafi brotið meðalhófsreglu í aðgerðinni. Framkvæmdastjóri um­ dæmisskrifstofu Flóttamannahjálp­ ar Sameinuðu þjóðanna í Norður­ Evrópu lítur málið alvarlegum augum. Ekkert leiðrétt „Ég hef miklar áhyggjur af því hvernig fjallað var um þessa aðgerð í fjölmiðl­ um,“ segir Pia sem hefur kynnt sér fjöl­ miðlaumfjöllun um málið. „Þetta var látið líta þannig út að þarna hefði eitt­ hvert glæpagengi haldið til, og það síðan tengt við ákveðið þjóðerni og með því var verið að brennimerkja fólk: Þannig að ef þú ert hælisleitandi af ákveðnu þjóðerni þá ertu glæpa­ maður. Þannig fær þetta að grafa um sig í vitund fólks sem er mjög hættu­ legt.“ Piu þykir merkilegast að enginn hafi þurft að svara fyrir aðgerðina. Engin yfirlýsing hafi til að mynda komið frá lögreglunni þar sem útskýrt sé hvers vegna íbúar hússins hafi verið handteknir með þessum hætti. Þá hafi engin afsökunarbeiðni eða frekari út­ skýring á aðgerðinni borist frá öðr­ um stofnunum ríkisins. Þannig virðist enginn vilji til þess að leiðrétta þann misskilning sem orðið hefði til í kjölfar aðgerðarinnar, segir Pia. Samkvæmt upplýsingum frá lög­ reglu er málið ennþá í rannsókn, en fjölmiðlar hafa meðal annars greint frá því nýlega að tveir mannanna hafi verið sendir aftur til heimalands síns á þeirri forsendu að þeir væru á saka­ skrá. DV hefur heimildir fyrir því að þær upplýsingar hafi komið frá lög­ reglunni, en heimildarmaður blaðsins sem þekkir vel til innan stjórnkerf­ isins segir að með þessu sé verið að reyna að réttlæta aðgerðina í Auð­ brekku án þess þó að svara beint fyr­ ir hana, sem gæti reynst lögreglu erfitt. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlög­ regluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, getur ekki gefið upp hvort búið sé að leggja fram ákæru á hendur einhverj­ um mannanna, né heldur á hvaða forsendu þeir voru allir handsamaðir. Hann segir að þeim hafi verið gerð grein fyrir tilefni handtökunnar. Það stangast hins vegar á við frásagnir mannanna sjálfra, lögmanna þeirra, sem og þær upplýsingar sem fram­ kvæmdastjóri umdæmisskrifstofu flóttamannahjálparinnar fékk innan úr stjórnkerfinu þegar hún grennsl­ aðist fyrir um málið. „Réðust þarna inn“ „Við ræddum við flóttamennina sem voru handteknir í aðgerðinni og við fengum að heyra þeirra hlið, sem við fengum síðar staðfesta í samtölum við lögmenn og aðra sem þekkja til máls­ ins. Það sem er mikið áhyggjuefni er að þeir [sérsveit ríkislögreglustjóra] réðust bara þarna inn án þess einu sinni að reyna aðrar leiðir fyrst,“ segir Pia sem er á því að gróflega hafi ver­ ið brotið á rétti mannanna. Í tilkynn­ ingu frá lögreglu sem birt var í kjölfar aðgerðarinnar kom fram að lítilræði af fíkniefnum hefði fundist við leit, sem og „eggvopn.“ Nýjustu upplýsingar DV herma að þar hafi verið um að ræða eldhúshnífa, sem og eitt gramm af marijúana. Einn mannanna ku hafa játað á sig vörslu fíkniefnanna og því telst þeim hluta rannsóknarinnar lokið. Helga Vala Helgadóttir er lögmaður tveggja manna sem handteknir voru í aðgerðinni en hún hefur engar upp­ lýsingar fengið um ástæðu handtök­ unnar, þrátt fyrir að hafa ítrekað beðið lögregluna um svör. Hún lýsti hand­ töku skjólstæðings síns í samtali við DV á dögunum með þessum orðum: „Hann var handtekinn á nærbuxun­ um og handjárnaður niður í gólf þar sem hann var látinn liggja í klukku­ tíma. Á meðan hann lá þarna var öskrað á hann og fleiri: „Hver á þessa tölvu og hvaða skór eru þetta? Stalstu þessum skóm auminginn þinn?“ Eftir það var hann leiddur á nærbuxunum út í bíl og geymdur í fangaklefa í sex klukkutíma án þess að fá að tala við lögmann eða túlk eða nokkurn ein­ asta mann.“ Þeir íbúar sem DV hefur rætt við lýsa atburðum með svipuðum hætti. Sálrænt áfall Mennirnir sem héldu til í húsnæðinu Auðbrekku komu frá ólíkum lönd­ um, þar á meðal Gana, Sómalíu, Sýr­ landi, Albaníu og Palestínu. Þeir hafa sótt um hæli hér á landi, sumir hverj­ ir vegna ofsókna í heimalandi sínu, en Pia segir marga þeirra í miklu sjokki eftir aðfarir lögreglunnar. „Þarna ertu með hælisleitendur sem margir hverjir koma úr aðstæðum þar sem svona aðgerðir eru vinnu­ aðferðir kúgandi stjórnvalda. Þeir hafa kannski upplifað eitthvað í lík­ ingu við þetta í heimalandi sínu, af hendi hermanna eða lögreglu sem beiti slíkum aðferðum til þess að of­ sækja þá,“ segir Pia og bætir því við að margir mannanna hafi í kjölfarið orðið fyrir sálrænu áfalli, og misst allt sitt traust á íslenskum stofnunum. Þá sé einnig merkilegt að enginn mannréttindasamtök á Íslandi hafi talað út um málið. „Enginn hefur stigið fram og sagt; „Það þarf að láta reyna á lögmæti þessara aðgerða fyrir dómstólum“.“ Þetta finnst Piu athyglisvert vegna þess að um sé að ræða grundvallarmannréttindi fólks, sama hvort um sé að ræða einstak­ linga sem koma erlendis frá eða eru frá Íslandi. „Það virðist einfaldlega vera þannig að hér séu engin sam­ tök, enginn umboðsmaður hælisleit­ enda, engin innri skoðun á störfum lögreglunnar sjálfrar, ekkert afl sem getur skorist í leikinn, skoðað málið, og útskýrt fyrir fólki hvað gekk þarna á. Þetta er mikið áhyggjuefni.“ Manneskjur ekki glæpamenn „Þetta eru manneskjur en ekki glæpamenn, það er mikilvægt að halda því til haga,“ segir Pia og bæt­ ir því við að aðgerðir í líkingu við þá sem sérsveitin réðst í í Auðbrekku sé eitthvað sem ætti að skoða mjög ít­ arlega áður en farið er í þær. „Ef lög­ reglan telur sig þurfa að fara í að­ gerðir af þessu tagi, og hún byggir Fundaði með ráðherra Talskona Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna lítur málið alvarlegum augum en hún ræddi það meðal annars á fundi sínum með innanríkisráðherra. Mynd SigtRygguR ARi Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Aðgerð í Auðbrekku Hælisleitendur voru í fastasvefni þegar sérsveit ríkislögreglustjóra réðst inn á heimili þeirra. Margir þeirra hafa í kjölfarið misst traust á íslenskum stofn- unum. Mynd SigtRygguR ARi Engar sektir fyrir hundaskít Ekki er hægt að sekta fólk sem lætur hundaskít eftir hunda sína liggja, í stað þess að taka hann upp. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur segir að sönnunarbyrðin í slíkum málum sé erfið vegna þess að þeir sem láta hjá líða að þrífa skítinn upp geri það yfirleitt þegar ekki sést til þeirra. Tillaga þess efnis að sekta beri fólk sem skilji eftir hundaskít var vísað til eftirlitsins úr umhverfis­ og skipulagsráði borgarinnar. Á hverju ári berast margar kvartanir um óþrifnað af þessu tagi. Eftirlitið telur vænlegast að höfða til vitund­ ar almennings um góða umgengni auk þess að ráðast í áróðursherferð gegn skítnum á vorin, þegar skítur kemur undan snjó. Íbúum fjölgar á Íslandi Íbúar á Íslandi voru 325.010 í lok þriðja ársfjórðungs, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Af þeim voru 22.760 erlendir ríkisborgarar, eða sjö prósent íbúa. Landsmönnum fjölgaði um 1.200 á ársfjórðungn­ um. Hjá Hagstofunni kemur fram að á ársfjórðungnum hafi 1.130 börn fæðst en 530 einstaklingar hafi látið lífið. Á sama tíma hafi 620 flutt til landsins umfram brott­ flutta. Fram kemur líka að brott­ fluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang hafi verið 170 umfram aðflutta. Fiskafli jókst í september Heildarverðmæti íslenska flotans í septembermánuði var 31,1 pró­ senti hærra en í september í fyrra, samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofunnar. Þetta er miðað við fast verðlag. Aflinn, það sem af er árinu, eða fyrstu níu mánuðina, var 3,2 pró­ sentum meiri en á sama tímabili í fyrra. Alls veiddu íslensk skip 115.240 tonn fyrstu níu mánuði ársins en í fyrra voru tonnin 104,928. Þegar horft er á september nam aukningin 10 prósentum frá því í fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.