Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 14
14 Fréttir 18.–20. október 2013 Helgarblað
„Ég gat alltaf treyst þér“
n Sigrún Pálína minnist Stefaníu n Tókust saman á við biskupsmálið
V
ið kynntumst árið 1996 þar
sem þú vægðarlaust steigst
fram og studdir okkur Dag-
björtu í vonlausri baráttu við
valdið og mannfjöldann,“ skrifar Sig-
rún Pálína Ingvarsdóttir í minningar-
grein um vinkonu sína Stefaníu Þor-
grímsdóttur.
Stefanía Þorgrímsdóttir fæddist
á Húsavík 11. apríl 1950. Hún lést á
Landspítalanum í Fossvogi 30. sept-
ember 2013. Útför Stefaníu fór fram
frá Fossvogskirkju 10. október 2013.
Sigrún Pálína og Stefanía tengdust
fyrst í gegnum mál Ólafs Skúlasonar
biskups. Stefanía varð fyrir kynferð-
islegri áreitni af hálfu Ólafs árið 1963,
tólf ára gömul. Hún var á sundnám-
skeiði og hann var æskulýðsprestur
með fermingarnámskeið á sama stað.
Stefanía var ráðgjafi hjá Stígamótum
þegar mál Sigrúnar Pálínu Ingvars-
dóttur og Dagbjartar Guðmunds-
dóttur komu upp árið 1996. Þar sem
hún bjó sjálf yfir þessari reynslu af
Ólafi ákvað hún að stíga fram og segja
sögu sína til þess að styrkja þær. Hún
tók sér leyfi frá Stígamótum en sneri
aldrei aftur til starfa.
Í fallegri minningargrein minnist
Sigrún vinkonu sinnar og segir: „Þú
horfðir ákveðið fram og lést engan
bilbug á þér finna. Ég gat alltaf treyst
þér og þú vékst aldrei undan, hvorki
fyrir hótunum né öðru valdi. Þú varst
vægðarlaus í þínum skoðunum og
komst mér oft niður á jörðina og í
raunveruleika lífsins.“
Sigrún segir Stefaníu hafa staðið
með óendanlegum baráttuvilja keik
með sannleikanum. „Án þín hefði
það verið erfitt að ná fram réttlætinu
og þeirri uppreisn æru sem við feng-
um 2010. Við höfum reynslu sem
gerði okkur að systrum eins og við
kölluðum hvor aðra,“ segir Sigrún og
segist bera mikla og djúpa virðingu
fyrir Stefaníu, en hún geti aldrei
endurgoldið Stefaníu þann stuðning
sem hún sýndi. n
Ferðalag Gunnars
kostaði 1,2 milljónir
n Þéttskipuð dagskrá utanríkisráðherra n Hitti Barack Obama
F
erð Gunnars Braga Sveins-
sonar og eiginkonu hans
til New York á dögunum
kostaði 1,2 milljónir króna.
Gunnar Bragi var staddur í
New York vegna setningar allsherj-
arþings Sameinuðu þjóðanna und-
ir lok september. Gunnar Bragi og
eiginkona hans voru í borginni í
átta daga. Ekki eru greiddir dag-
peningar fyrir maka eftir því sem
kemur fram í upplýsingum frá
utan ríkisráðuneytinu.
Þéttskipaðir dagar
Samkvæmt dagskrá utanríkisráð-
herrans voru þessir átta dagar
mjög þéttskipaðir og frá fyrsta degi
voru allir dagar bókaðir frá morgni
til kvölds. Samkvæmt dagskrá
Gunnars Braga hitti hann meðal
annars Barack Obama Banda-
ríkjaforseta, fór í móttökur forseta
Suður- Afríku, Tyrklands og í boð
ESB. Mikið var um fundi sam-
kvæmt dagskrá ráðherrans, með-
al annars með utanríkisráðherrum
hinna Norðurlandanna.
Fordæmdi hryðjuverk
Gunnar Bragi hélt ræðu á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna og
fór yfir áherslur Íslands í utan-
ríkismálum og fordæmdi hryðju-
verk. Utanríkisráðherra undirstrik-
aði mikilvægi þúsaldarmarkmiða
Sameinuðu þjóðanna og sagði þau
grundvöll stefnu Íslands í þróunar-
samvinnu. Þá lagði hann áherslu
á að í nýjum þróunarmarkmiðum,
sem taka munu gildi eftir 2015,
verði áfram áhersla á upprætingu
fátæktar, jafnrétti kynjanna,
heilbrigðismál og menntun stúlkna
og drengja.
Ræddi þúsaldarmarkmið SÞ
Gunnar Bragi tók einnig þátt í ráð-
herrafundi um framvindu þús-
aldarmarkmiða Sameinuðu
þjóðanna og mótun nýrra þróunar-
markmiða eftir árið 2015 sem fór
fram á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna, þar sem Ban Ki-moon,
aðalframkvæmdastjóri SÞ, kynnti
nýja skýrslu sína um eftirfylgni við
þúsaldarmarkmiðin og Gunnar
Bragi tók þátt í hringborðsumræð-
um og ræddi mikilvægi skýrra þús-
aldarmarkmiða, enda þótt að mik-
ill árangur hafi náðst í baráttu gegn
fátækt, í menntamálum og í heil-
brigðismálum, sé enn mikið verk
óunnið og sagði hann að ríki heims
þyrftu að sameinast um ný mark-
mið sem gætu tryggt komandi kyn-
slóðum aukna hagsæld og réttindi.
Hitti Obama
Sem kunnugt er hitti Gunnar Bragi,
ásamt Elvu Björk eiginkonu sinni,
Barack Obama forseta Bandaríkj-
anna og Michelle Obama, eig-
inkonu hans, á Waldorf Astoria-
hótelinu í New York. Meðfylgjandi
mynd var tekin af þessu tilefni.
Fundur Gunnars og Obama var
lokaður fjölmiðlum, en Obama
hitti þar alla þjóðhöfðingja sem
sóttu allsherjarþingið. Þar spurði
forsetinn hvort Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra
hefði náð heilsu. Sem kunnugt er
var Sigmundur með sýkingu í fæti
þegar hann hitti forsetann í Stokk-
hólmi á dögunum og þurfti að
klæðast ósamstæðum skóm. Nike-
skór sem Sigmundur klæddist var
svo boðinn upp til góðgerðamála,
en engum sögum fer af skótaui
utan ríkisráðherrans. n
Hitti Obama Hér má
sjá þau Gunnar Braga og
eiginkonu hans, Elvu, með
Michelle og Barack Obama.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
Styðja tillögu
Bjartrar
framtíðar
Stjórn Ungra vinstri grænna
fagnar framkominni þings-
ályktunartillögu Bjartrar fram-
tíðar um skipan starfshóps til
að jafna búsetuform barna sem
búa á tveimur heimilum. Þetta
kemur fram í ályktun sem stjórn
Ungra vinstri grænna sendi frá
sér. Hún fagnar jafnframt þings-
ályktunartillögu Bjartrar fram-
tíðar um skráningu umgengnis-
foreldra.
„Sameiginleg forsjá og jöfn
búseta barna verður æ oftar fyr-
ir valinu við skilnað fólks sem
á börn saman. Pottur hefur þó
verið brotinn í því kerfi sem er
við lýði í dag. Réttur lögheimilis-
foreldris umfram hins foreldris-
ins tryggir ójöfnuð sem er ekki
í takt við það jafnréttissamfélag
sem við stefnum ört að. Það er
einlæg trú Ungra vinstri grænna
að jöfn búseta barna, helst með
tvöfaldri lögheimilisskráningu,
muni tryggja að ákvarðanir sem
snerta barnið verði frekar teknar
á jafnræðisgrundvelli barninu
í hag. Ung vinstri græn vilja
brýna það fyrir þingmönnum
Vinstrihreyfingarinnar græns
framboðs að veita máli Bjartrar
framtíðar brautargengi og þora
að taka skrefið í átt að jafnara
samfélagi,“ segir í ályktuninni.
„Kominn yfir
hættumörk“
Dögun, samtök um réttlæti,
sanngirni og lýðræði, skorar á
alla Alþingismenn – hvar í flokki
sem þeir eru – að standa sam-
eiginlega að verulega auknum
fjárframlögum til LSH, bæði
til tækjakaupa og fyrir rekstur
einstakra deilda. Þetta kemur
fram í tilkynningu sem samtökin
sendu frá sér á miðvikudag.
„Dögun krefst þess að
uppbygging heilbrigðiskerf-
isins verði hafin að nýju.
Niðurskurður til Landspítala er
kominn yfir hættumörk og svip-
að er uppi á teningnum með
heilbrigðisstofnanir víða um
land,“ segir í tilkynningunni. Þar
er Alþingi einnig hvatt til að setja
þegar í stað tímabundin ákvæði
í lög þannig að nauðungarsölur
vegna innheimtu verðtryggðra
lána verði stöðvaðar þar til að-
gerðapakki ríkis stjórnarinnar
hefur verið mótaður og kominn
til framkvæmda.
„Ríkisstjórnin hefur lofað
víðtækum aðgerðum til leið-
réttinga á stökkbreyttum lánum.
Meðan ekki liggur fyrir hvernig
að þeim verður staðið er mikil-
vægt að öryggi skuldsettra fjöl-
skyldna verði ekki ógnað meira
en þegar er orðið.“
Skrifar minn-
ingargrein
Sigrún Pálína
minnist vinkonu
sinnar.