Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Qupperneq 17
Fréttir 17Helgarblað 18.–20. október 2013
„Slæðan táknar vernd og virðingu“
n Heimsókn í íslamskan saumaklúbb n Allar giftar múslimum n Tvær kynntust eiginmanninum á netinu n Lífið betra með Guði n Glímdu við fordóma n Óþægilegt þegar fólk starir
Giftust í leyni
Hún segir að það hafi verið mjög sér
stök reynsla að kynnast eiginmann
inum á netinu. „Ég var ekki búin að
gerast múslimi þegar ég kynntist
honum og hélt að þetta myndi aldrei
ganga. En æ bara, mér leiddist. Ég
var einstæð móðir og mig vantaði fé
lagsskap þannig að ég fór að spjalla
á netinu og kynntist honum. Ég var
búin að kynna mér íslam en þetta var
samt rosalega flókið.
Ekki síst af því að hann er frá
Egyptalandi og þurfti nánast vega
bréfsáritun til að komast úr landi.
En hann var að læra þýsku og fór svo
til Þýskalands til að halda náminu
áfram og þá fór ég út að hitta hann. Ég
stoppaði stutt en fór aftur út skömmu
síðar, og aftur með dóttur mína og þá
giftum við okkur. En ég sagði engum
frá því, enda giftumst við bara inn
an íslam til að koma í veg fyrir að
við myndum gera eitthvað sem við
myndum svo sjá eftir. Í kjölfarið vor
um við áfram hvort í sínu landi þar
til hann kom til Íslands. Það var mjög
erfitt ferli að fá leyfi frá Útlendinga
stofnun en við giftum okkur aftur og
þá formlega. Það hjálpaði aðeins til
en þetta var samt alltaf vesen. Við
þurftum að fylla út alls kyns eyðublöð
og fá pappíra frá Egyptalandi sem var
erfitt að fá.“
Íris Björk þekkir þetta. „Það var
líka mjög erfitt að fá þessi gögn frá
Marokkó. Sumt fannst mér líka bara
fáránlegt. Eins og að við þyrftum að
koma með sönnun þess að við vær
um ekki systkini þegar við giftum
okkur. Hann er fæddur í Marokkó,“
segir hún og leggur áherslu á orð sín
en Katrín bendir á að tæknilega gæti
pabbi hennar hafa barnað konu í
Marokkó ef hann hefði farið í ferða
lag þangað. Guðrún Lára hlær og seg
ir að þetta sé bara formsatriði, en það
hafi engu að síður verið vesen að út
vega þessi gögn. „Pabbi hans þurfti
að fara tvær ferðir til höfuðborgar
innar til að redda þessu. Það var
dagsferð í hvort skipti. Síðan þurftum
við fimm stimpla á hvert einasta blað
og við borguðum fyrir hvern stimpil.“
Kraftaverkabarnið
Aðspurð segist hún hafa kynnst eigin
manni sínum á kaffihúsi í Reykjavík
og um leið springa þær allar úr hlátri
þannig að sagan breytist aðeins.
„Ókei, við kynntumst á bar,“ segir hún
brosandi. „Síðan lét hann mig ekki
í friði og ég varð ólétt seinna í sama
mánuði. Áður var ég búin að vera í
sambúð í mörg ár og glíma lengi við
ófrjósemi. Þannig að hún var algjört
kraftaverk stelpan, en án hennar veit
ég ekki hvað hefði orðið úr þessu
sambandi.“
Guðrún Lára segir þá að stelp
an hafi kannski verið Guðsgjöf til
að beina Írisi Björk að íslam. „Já,
kannski,“ segir Íris Björk þá. „Áður
var ég búin að reyna tvisvar sinnum
að finna íslam þannig að Guð ákvað
kannski að henda bara í mig einum
Marokkóbúa sem var bæði mjög upp
áþrengjandi og óheyrilega myndar
legur,“ segir hún hlæjandi. „Hann var
algjört fox.
Hann bað mig um að giftast sér um
leið og ég varð ólétt en ég harðneit
aði. Það kom ekki til greina að giftast
manni sem ég gat varla talað við, en
þegar ég varð ólétt þá gat ég hvorki
né vildi halda pabbanum frá. Það var
svo árið 2005 sem við giftum okkur
hjá sýslumanni. Það var þá búið að
biðja hann um að halda brúðkaup úti
í Marokkó en hann vildi frekar halda
íslenska brúðkaupsveislu.
Sama ár ákvað ég að taka upp
trúna. Áður var ég hætt að drekka,
djamma og borða svínakjöt þannig
að lífsstíllinn breyttist ekki mikið.
Ég tilkynnti engum að ég væri orðin
múslimi en mamma og pabbi sögð
ust sjá að ég væri orðin múslimi. Það
var svo merkilegt að þá átti það að
vera eitthvert mál að ég borðaði ekki
svínakjöt, færi í mosku og með bænir.
Þegar ég var lítil og var að fara
að sofa þá lá ég alltaf á bæn til Guðs
og ég fór aldrei á hestbak án þess að
signa mig. En það er eins og það trúi
því enginn að ég vilji vera múslimi.“
Alltaf forvitin um trúmál
Humera gengur á hópinn og spyr
hvort konur vilji frekar kaffi eða te.
Hún skenkir svo í bolla og býður fólki
að gjöra svo vel að borða. Enda er
hér fullt borð af alls kyns kræsingum,
allt frá pönnukökutertum að græn
metisklöttum, súkkulaði og ávöxtum.
Íris Björk heldur áfram: „Ég var
heilluð af öllu sem tengdist menn
ingu múslima og ég var alltaf mjög
hrifin af slæðum. Amma átti mik
ið af slæðum og ég var alltaf að leika
mér að þeim. Ég var líka alltaf mjög
forvitin um aðra trúflokka og það sem
fólk var að gera annars staðar í heim
inum. Kóraninn kallaði á mig og mig
langaði til að kynnast þessu þannig
að ég las aðeins í honum þegar ég var
í Fjölbrautaskólanum í Ármúla. Þá
hafði ég kynnst íslam aðeins í gegn
um íslenska vinkonu mína.“
Guðrún Lára segir að það sé alltaf
stórt skref þegar maður tekur Kóran
inn upp og les hann. „Mér fannst það
erfitt skref því ég óttaðist áhrifin sem
það myndi hafa ef ég myndi finna
sannleikann þar, að eitthvað myndi
breytast.“
Íris Björk segir að það hafi ekki
verið fyrr en seinna sem hún tók
trúna. Í raun gerðist það ekki fyrr en
hún las sér betur til í Kóraninum og
fór yfir kaflann um Jesú. Þá varð hún
alveg heilluð. „Þarna kom það sem
ég hafði alltaf talið, að Jesús var bara
maður en ekki Guð. Og í huga hans
voru allir börn Guðs, ekki bara hann.
Alla tíð hef ég trúað á Guð og ég hef
bara viljað trúa á hann. Ég hef alltaf
litið svo á að Jesús væri bara mað
ur, eins og segir í Kóraninum þar
sem hann er mikils metinn sem einn
mikil vægasti spámaðurinn. Þar er
hann sagður maður sem fæddist eins
og hvert annað mannsbarn en undir
sérstökum kringumstæðum.“
Vernd og virðing
Konurnar hrósa Humeru fyrir
veitingarnar. Hún kom til Íslands með
íslenskum eiginmanni sínum, manni
sem hún kynntist á brúðkaupsdegin
um þegar hann var kominn gagngert
til Pakistan til að kvænast henni. Hún
unir sátt við sitt og segist hafa fengið
ný tækifæri hér á landi, þar sem hún
stundar nám í Tækniskólanum.
Sonur Guðrúnar Láru tekur slæð
una sem Katrín gaf henni og fer að
leika sér með hana. Ég spyr út í slæð
urnar, hver sé hugsunin á bak við
þær. Guðrún Lára svarar, en hún er
eina íslenska konan í þessum hópi
sem gengur með slæðu alla daga og
hefur gert það frá árinu 2007. „Slæð
an táknar vernd og virðingu fyrir kon
unni. Hún á að tryggja að konan sé
metin að verðleikum og fyrir það sem
hún hugsar og er, en ekki fyrir það
hvernig hún lítur út.
Af sömu ástæðu eigum við að
hylja allt nema andlit og hendur. Til
þess að vernda okkur eigum við ekki
að vera í stuttum fötum og flegnum.
Það getur reyndar skapað vanda
mál, eins og í búningsklefanum í
sundi þar sem allir stara á þig. Ég fór
einu sinni í sund og mér leið svo illa
þegar sturtuvörðurinn gekk upp að
mér og sagði að ég mætti ekki vera í
fötum í sundi. Ég útskýrði fyrir hon
um að ég væri í sérsniðnum sundföt
um fyrir múslima en hann krafðist
þess að ég færi úr þessu í sturtunni.“
Slæðan truflar
Aftur að slæðunni, sem Guðrún Lára
er búin að bera síðan 2007. „Það var
dálítið erfitt fyrst, sérstaklega fyrir
fjölskylduna, því ég set alltaf upp
slæðu þegar ég fer út. En ég þarf ekki
að vera með slæðu fyrir framan fjöl
skylduna eða karlmenn sem ég má
ekki giftast. Það virðist vera auð
veldara fyrir fólk að sjá mig með buff
en slæðu.
Ég veit ekki af hverju en slæðan
virðist vera svona mikið mál fyrir fólk
en það spyrja alltaf allir út í slæðuna.
Það er eins og fólk tengi slæðuna við
einhverja klikkun eða kúgun. Sem er
skrýtið þegar við hugsum til þess að
það er ekki svo langt síðan íslenskar
konur gengu alltaf um með skott
húfur.
Kannski finnst fólki þetta bara
svona erfitt af því að ég er að gera
þetta fyrir Guð. Orðið Guð er rosalegt
tabú hér á Íslandi. Íslendingar þora
ekki að tala um Guð, trú er svo mikið
einkamál að það má ekki ræða hana.
Þannig að fólk skilur ekki af hverju ég
þarf að sýna trú mína með slæðunni,
en ég skammast mín ekkert fyrir það.“
Hún ber þetta saman við þau
viðbrögð sem nunnur fá við sínum
klæðnaði, sem eru önnur og já
kvæðari. „Kannski af því að þær lifa
ekki þessu hefðbundna lífi eins og
við, þannig að það er enginn að velkj
ast í vafa um það hvort þær séu pínd
ar í þetta af körlum. Hugmyndir fólks
um íslamskar konur virðast ekki ríma
við það að ég keyri bíl, kaupi mat og
föt og hagi lífi mínu eins og allir aðrir.“
Hætti að þóknast öðrum
Heima getur Guðrún Lára gengið
um á nærbuxum og hlýrabol en hún
hefur verið spurð að því hvernig hún
beri sig að í sturtu. „Mér fannst það
mjög fyndið. Aðrir hafa spurt hvern
ig það er að sofa með pinnana í
Kynntust á bar Íris Björk kynntist eiginmanni sínum á bar í Reykjavík og varð barnshaf-
andi seinna í sama mánuði, en hún hafði lengi glímt við ófrjósemi.
Gamall hip hop-ari Guðrún var hip hop-ari og leit út eins og strákur á unglingsárunum.
Hún hefur aldrei verið hrædd við að fara ótroðnar slóðir og kynntist egypskum eiginmanni
sínum á netinu. Hér er hún með börnunum.
Biðja saman og borða
saman Konurnar hafa hist
reglulega frá árinu 2009 og með
þeim hefur tekist sterk vinátta
og mikill kærleikur. Þær biðja
frekar saman heima heldur en
að fara á sérstaka kvennafundi í
moskunni. Mynd dV eHf / SiGtryGGur Ari
„Ég sagði engum
frá því, enda
giftumst við bara innan
íslam.