Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Blaðsíða 23
„Ég var svo ungur
þegar Ásgeir
Sigurvinsson var
að brillera en man
að hann var frábær.
Ég er aðallega dómbær á það
að Eiður Smári Guðjohnsen
toppi í sögunni miðað við það
sem ég hef séð“
Hans Steinar Bjarnason
íþróttafréttamaður á RÚV
„Eiður Smári og Ríkharður
Jónsson myndi ég segja
að væru bestu leikmenn
sögunnar, þó svo ég hafi bara
séð annan þeirra spila. En
sögurnar sem ég hef heyrt og
tölfræðin talar sínu máli“
Hallbera Guðný Gísladóttir
landsliðskona í knattspyrnu
„Í mínum huga er ekki nokk-
ur vafi á því að það er Ásgeir
Sigurvinsson. Ég
var þess heiðurs
aðnjótandi að
sjá hann leika í
Þýskalandi þegar
hann var upp á sitt
besta og enn þann dag í dag
hef ég ekki séð jafngóðan ís-
lenskan knattspyrnumann“
Guðjón Guðmundsson
íþróttafréttamaður á Stöð 2
„Erfitt að gera upp á milli
Ásgeirs Sigurvinssonar og Eiðs
Smára. Uppi á mismunandi
tímum og náðu báðir frábærum
árangri. Afrek Eiðs þó stærri
að mínu mati. Að vera keyptur
til Barcelona, vinna Meist-
aradeildina og spila með einu
besta lið allra tíma er afrek
sem verður seint endurtekið“
Henry Birgir Gunnarsson
íþróttablaðamaður á Fréttablaðinu
„Það þarf ekkert nema að
skoða feril hans til að sann-
færast um að Eiður Smári
er besti leikmaður sem við
höfum átt. Það hefur enginn
komist nálægt því að afreka
það sem Eiður hefur gert“
Guðmundur Benediktsson
íþróttafréttamaður á Stöð 2
„Guðjohnsen-feðgarnir. Spil-
aði með Nóra þegar hann var
næstum sjötugur og að enda
ferilinn – hann var ótrúlegur.
Ólst upp við að dýrka hann.
Eiður kemur númer tvö. Sá
leikinn Chelsea - West Ham
þar sem Mourinho líkti hon-
um við Maradona. Frammi-
staða sem gleymist seint“
Benedikt Bóas Hinriksson
blaðamaður á Morgunblaðinu
„Eiður Smári er klárlega sá
besti í sögunni hingað til“
Garðar Gunnlaugsson
knattspyrnumaður
„Eiður Smári. Hann vann
ensku deildina með Chelsea
og Meistaradeildina með
Barcelona. Menn gera það
ekki fyrir tilviljun“
Valgeir Örn Ragnarsson
fréttamaður á RÚV
mikael@dv.is
Þetta segja sérfræðingarnir
Hver er
sá besti í
sögunni?
Sport 23Helgarblað 18.–20. október 2013
Þetta eru okkar
bestu leikmenn
K
olbeinn fékk stimpilinn
„barnastjarna“ ungur að
aldri á Íslandi og á tímabili
virtist hann ekki ætla að
standa undir því. Hann átti í mikl
um meiðslavandræðum og var oftar
utan vallar en innan. Kolbeinn ólst
upp í Víkingi, en skipti yfir í HK þar
sem hann var til 17 ára aldurs.
„Hugarfar hans var mjög
gott gagnvart öllu,“ sagði Sigþór
Sigurjóns son, faðir Kolbeins og eig
andi Bakarameistarans, aðspurður
hvernig hugarfar kappans var gagn
vart fótbolta á uppvaxtarárum hans.
„Hann var góður drengur með mik
inn áhuga á fótbolta.“
17 ára skrifaði hann undir hjá
AZ Alkmaar eftir að hafa slegið í
gegn með unglingalandsliði Íslands.
Tvítugur steig hann sín fyrstu skref
í hollensku úrvalsdeildinni og sló í
gegn. Sumarið eftir var hann seld
ur til stórliðsins Ajax í sama landi
þar sem hann hrellir varnarmenn
deildarinnar í víðfrægri treyju núm
er 9.
„Fyrirmyndirnar eru náttúru
lega alls staðar,“ heldur Sigþór áfram.
„Andri bróðir hans var náttúrulega
í atvinnumennskunni. Þetta er bara
hvaða fyrirmyndir menn velja sér.“
Andri Sigþórsson lék sem atvinnu
maður en þurfti að leggja skóna á
hilluna vegna meiðsla aðeins 27 ára
að aldri.
Kolbeinn er alhliða framherji og
virðist ekki eiga marga galla. Hann er
góður í öllu. Sterkur, fljótur, góður í
löppunum og í loftinu. Hann er alltaf
hættulegur og þrífst á að samherj
ar mati sig. Varnarmenn líta ekki af
Kolbeini eitt augnablik.
„Þetta er bara vinnusemi. Vinna
og aftur vinna. Auðvitað hæfileikar
líka. Sumir hafa bolta í sér, aðrir eitt
hvað annað,“ sagði Sigþór að lokum
um framúrskarandi hæfni sonar
síns.
Alfreð Finnbogason
Aron Einar Gunnarsson
H
ann hefur alltaf verið mjög
rólegur og var einbeittur í
því að koma sér út í atvinnu
mennsku. Hann var mjög
ungur þegar hann tók þá ákvörðun,“
sagði móðir Gylfa Þórs,
Margrét Hrefna Guð
mundsdóttir, í samtali
við blaðamann DV.
Gylfi sleit barns
skónum hjá FH áður
en hann söðlaði um
og gekk til liðs við
Breiðablik í leit að
betri aðstöðu til iðk
unar. Fljótlega komu
hæfileikar Gylfa í ljós
og skrifaði hann undir
samning við Reading
16 ára. „Þegar ég var
að spyrja hvort hann færi einn út,
þá sagði hann: „Nei, þið flytjið bara
með mér“,“ sagði Margrét og sú varð
raunin að lokum.
Eftir að hafa brotið sér leið inn í
aðalliðið var hann seldur til Hoffen
heim, en var lánaður til Swansea
á öðru ári sínu. Í
Englandi sló hann í
gegn og um sumar
ið var hann keyptur
til Tottenham, eftir
að hafa verið m.a.
orðaður við Liver
pool. Hjá Spurs
verður Gylfi betri með hverjum leik.
„Ég var keyrandi og sækjandi
fram og til baka. Af því hann ætlaði
sér að verða fótboltamaður, þá
sagði hann að hann þyrfti að kunna
ensku og ég keyrði hann tvo vetur í
enskuskóla í Reykjavík á laugardags
morgnum og ég keyrði hann líka
tvo vetur í Fífuna fyrir skóla að æfa
í Knattspyrnuakademíunni,“ sagði
Margrét aðspurð um mikinn áhuga
Gylfa á leiknum frá unga aldri.
Helsta kennimark Gylfa er hægri
fótur hans. Ótrúlegar spyrnur hans
eru í hæsta gæðaflokki. Gylfi er líka
afar duglegur leikmaður og leggur
sig alltaf fram fyrir liðið. Af nýrri
kynslóð landsliðsins er Gylfi kominn
lengst og hefur allt til að bera til að
verða einn besti leikmaður Evrópu í
framtíðinni.
Gylfi Þór Sigurðsson
A
ron er ekkert besti knattspyrnu
maðurinn,“ sagði Gunnar M.
Gunnarsson, faðir landsliðs
fyrirliða Íslands, um son sinn
þegar blaðamaður sló á þráðinn til
hans. „Hann hefur bara hugarfarið
sem þarf. Þú hættir ekkert!“
Aron Einar hóf meistaraflokksferil
sinn með Þór á Akureyri, en hélt utan
í víking ungur að árum og skrifaði
undir hjá AZ Alkmaar. Eftir að hafa
spilað einn leik með aðalliði félagsins
skrifaði hann undir hjá Coventry í B
deild Englands og var fastamaður hjá
þeim í þrjú tímabil. Síðan fór hann
til Cardiff og leikur núna með liðinu í
ensku úrvalsdeildinni.
„Hann var alltaf með hugann við
þetta. Aron þarf alltaf að vera bestur
í öllu. Það er ósköp einfalt. Hann tók
allt með trompi,“ bætti Gunnar M. við
um hugarfar Arons Einars.
Aron Einar er líkamlega sterkur,
hleypur og berst mikið. Að vera með
boltann á tánum hefur verið löstur
á hans leik en það heyrir sögunni til.
Boltatæknin hefur farið vaxandi og
í dag er hann orðinn að vel spilandi
miðjumanni. Allir vegir eru færir fyrir
landsliðsfyrirliðann okkar sem á ef
laust eftir að láta til sín taka í ensku
úrvalsdeildinni í vetur.
Kolbeinn Sigþórsson
Staða íSlandS á StyRkleikaliSta fifa fRá 2000-2013
A
lfreð ólst upp í öflugu ung
lingastarfi Breiðabliks og
lék fyrsta heila tímabil sitt
í meistaraflokksliði 20 ára.
Það ár varð hann bikarmeistari og
valinn efnilegasti leikmaður Ís
landsmótsins. Þrátt fyrir áhuga er
lendis lék hann annað ár með
Blikum þar sem þeir urðu Íslands
meistarar og Alfreð var valinn besti
leikmaður deildarinnar.
Sesselja Pétursdóttir, móðir Al
freðs, segir að sonur hennar hafi
alltaf verið kappsamur og ekki hætt
fyrr en hann stóð uppi sem sigur
vegari, í hverju sem það svo var.
„Hann var athafnasamur og gafst
aldrei upp. Þá meina ég aldrei.“
Í kjölfarið á frammistöðu sinni
með Blikum var hann seldur til
Lokeren en náði ekki að festa sig
í sessi og var að lokum lánaður til
Helsingborg í Svíþjóð. Eftir vask
lega framgöngu á meðan láns
dvöl sinni stóð var hann seldur til
Heerenveen þar sem hann hefur
blómstrað og skorað að meðaltali í
hverjum leik.
„Hann varð að vera bestur,“
heldur Sesselja áfram. „Hann varð
að vera í vinningsliðinu. Hann var
mjög seinþroska líkamlega. Þegar
hann fermdist voru vinir hans
höfðinu hærri en hann. Hann var
aldrei í yngri landsliðum, þó
hann hafi verið stundum í úrtök
um.“
Alfreð býr yfir miklu markanefi
og skorar flest mörk sín úr víta
teignum. Skiptir engu hvort hann
fær boltann á vinstri eða hægri, eða
í loftinu ef svo ber undir, alltaf end
ar boltinn í netinu. Einnig er hann
svellkaldur á vítapunktinum en það
er eiginleiki sem ekki allir búa yfir.
Markahæstir
frá upphafi
Feðgarnir Arnór og Eiður Smári eru á lista
yfir fimm markahæstu leikmenn Íslands
fyrr og síðar. Kolbeinn Sigþórsson þarf eitt
mark til viðbótar til að komast á listann,
en hann hefur skorað jafn mörg mörk
og Þórður Guðjónsson. Ferill Kolbeins er
aðeins nýhafinn og því er ljóst að hann á
góðan möguleika á að bæta metið.
24 - Eiður Smári Guðjohnsen
17 - Ríkharður Jónsson
14 - Ríkharður Daðason
14 - Arnór Guðjohnsen
13 - Kolbeinn Sigþórsson
13 - Þórður Guðjónsson