Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Side 24
Fjöldi atvinnumanna vekur athygli n Aðrar þjóðir farnar að líta til Íslands varðandi þjálfun S igurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, skrifaði á þriðjudaginn áhugaverð- an pistil um frammistöðu íslenska landsliðsins og einnig hvað býr að baki. Hann er um margt sammála Rúnari hér að ofan um hvað búi að baki árangri atvinnumannanna okkar. „Ísland á um 70 atvinnumenn í knattspyrnu sem spila erlendis og á hverju ári fara ungir leikmenn héð- an til liða erlendis sem þekkja orð- spor íslenskra leikmanna og sjá þá hæfileika sem sem þeir hafa til að bera,“ skrifar Sigurður Ragnar á heimasíðu sína, siggiraggi.is, og bendir á að íslensk félög séu í aukn- um mæli farin að sjá mikilvægi þess að reka öflugt uppeldisstarf sem og afreksstarf. Uppeldisfélög okkar bestu landsliðsmanna séu farin að fá verulegar tekjur þegar leikmennirnir eru síðan seldir áfram og milli liða. Og hann talar einnig um mikilvægi aðstöðunnar í þessu samhengi. „Börn í yngstu flokkunum á Ís- landi hafa miklu betri æfingaaðstöðu í dag en fyrir rúmum 10 árum. Það er ekki í mörgum löndum þar sem byrj- andi getur byrjað að æfa knattspyrnu hjá sínu uppáhaldsfélagi og fengið strax þjálfun hjá menntuðum þjálf- ara í knattspyrnuhöll eða á góðu gervigrasi.“ Leikmenn fái góðan grunn hér á landi þar sem mikilvægt sé að þróa eiginleika eins og tækni, mýkt í hreyfingum, betri móttöku og sendingar á aldrinum 8–12 ára. Síð- an fari menn oftar en ekki ungir út líkt og tíðkast hefur í gegnum tíðina. „Leikmennirnir í A-landsliðinu í knattspyrnu náðu langt af mörgum mismunandi ástæðum. En ég vil leyfa mér að fullyrða að mikilvægur hlekk- ur í keðjunni voru þjálfararnir sem þeir höfðu hér á Íslandi í yngri flokk- um. Án þess grunns hefði undirstað- an ekki verið til staðar þó margir aðr- ir þættir þurfi að sjálfsögðu að vera til staðar.“ Sigurður Ragnar segir aðrar þjóð- ir vera farnar að horfa til Íslands varðandi þjálfun ungra leikmanna. Í janúar á næsta ári mun hann halda fyrirlestur á einni af stærstu þjálfara- ráðstefnu í heimi þar sem hann mun ræða hvernig Ísland fari að því að búa til svona marga atvinnumenn í knattspyrnu. „Árangur landsliðanna í ár, félagsliðanna og árangur okkar í að búa til efnilega leikmenn gefur okkur tilefni til að vera ákaflega stolt.“ n mikael@dv.is Í hæsta gæðaflokki Sigurður Ragnar Eyjólfsson segir þá þjálfara sem landsliðs­ mennirnir okkar höfðu á sínum uppvaxtar­ árum hafa gegnt lykilhlutverki í mótun þeirra. Strákar með sterkan karakter og vilja n Af hverju eigum við svona marga góða atvinnumenn? Þ að er í rauninni alveg ótrú- legt afrek að Ísland skuli eiga svona marga atvinnu- menn. Við höfum átt at- vinnumenn í mörg, mörg ár, en akkúrat á þessum tímapunkti eigum við gríðarlega marga stráka sem fóru ungir að árum út, eru bún- ir að koma sér vel fyrir hjá sínum liðum og eru að spila. Það er afar mikilvægt,“ segir Rúnar Kristins- son, þjálfari Íslandsmeistara KR í knattspyrnu, um hversu merki- legt það sé að Íslendingar eigi jafn marga knattspyrnumenn í fremstu röð og raun ber vitni. Njósnarar fylgjast með ungum leikmönnum Rúnar segir nokkur lykilatriði í árangri íslenskra knattspyrnu- manna sem liggi meðal annars í því að góður grunnur sé lagð- ur í þjálfun hér á landi þar sem bætt aðstaða og þjálfun skili af sér betri knattspyrnumönnum. Þá séu strákar að fara ungir út í heim þar sem þeir alast upp í sterku ung- lingastarfi stærri liða. Rúnar bendir einnig á að áhugi erlendra liða á íslenskum leik- mönnum hafi aukist mikið undan- farin ár. Njósnarar séu að þvælast hér á landi allan ársins hring og fylgist grannt með æfingum hjá allt niður í yngstu landslið Íslands þar sem strákar séu 16–17 ára. Auk þess að fylgjast með þeim í mótum erlendis. „Þar af leiðandi hafa þeir verið að ná í mjög unga stráka frá Íslandi til sín og það gerir það að verkum að þegar út er komið þá eru þeir nánast orðnir atvinnumenn. Æfa tvisvar á dag og ná auðvitað betri árangri.“ Bylting með knattspyrnuhöllum Leikmönnum er kippt snemma út en grunnurinn er lagður hér á landi þar sem búið er að vinna með þá hæfileika sem heilla erlend lið. En hvað hefur breyst? Rúnar segir KSÍ hafa gert vel undanfarin ár í að mennta þjálfara og setja félögum stífari reglur um hverjir megi þjálfa yngstu börnin. Liðin reyni að hafa sem hæfasta þjálfara yfir yngstu kynslóðinni. Þá hafi knattspyrnu- hallir risið sem geri það að verk- um að nú er hægt að æfa hér á landi allan ársins hring við kjöraðstæður. „Það hefur gjörbreytt öllu að hafa fengið þessi hús. Þegar ég og fleiri vorum að alast upp þá stóð maður bara á mölinni og hljóp og hljóp. Þá var ekkert hægt að stoppa æfingar því menn kólnuðu bara niður. Í þessum góðu skilyrðum í dag getur þú sem þjálfari útskýrt, kennt og leiðbeint.“ Rúnar bendir einnig á að Ís- lendingar, og þar með taldir ís- lenskir knattspyrnumenn, séu vanir því að vera óhræddir við að ferðast erlendis. „Þetta er í okkar eðli. Íslenskir knattspyrnumenn eru alveg til í það að fara út átján ára og fara frá foreldrum sínum á vit ævintýranna á sama tíma og unga fólkið í nágrannalöndunum finnst bara voða fínt að vera heima hjá mömmu og pabba. Vilji ís- lenskra drengja og karakterein- kenni hafa gríðarlega mikið að segja.“ Sterkir karakterar En þegar menn eru komnir út í at- vinnumennsku sem ungir menn þá er björninn ekki unninn. Menn séu umkringdir betri leikmönnum þar sem barist er um mjög fá sæti. „Það eru fáir leikmenn sem eru teknir erlendis sem fara í gegnum þessa síu sem er hjá þessum liðum því mörg af stærstu liðum Evrópu eru að sanka til sín mörgum leik- mönnum á hverju ári á sama aldri. Af 15–20 strákum eru kannski 1 eða 2 sem komast upp í aðalliðið. Þarna þarftu að hafa karakter og vilja til að leggja mikið á þig til að komast áfram og í gegnum þessa síu. Þar erum við sterkir líka held ég.“ n Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is „Þetta er í okkar eðli 24 Sport 18.–20. október 2013 Helgarblað Mikið afrek Rúnar Kristinsson þekkir það sem til þarf til að verða atvinnumaður í knattspyrnu enda lék hann sjálfur erlendis um árabil. Hann segir það ótrúlegt afrek hversu marga atvinnumenn litla Ísland eigi. MyNd Eyjólfur GArðArSSoN Vel fylgst með Rúnar bendir á að njósnarar erlendra liða fylgist vel með ungum íslenskum leikmönnum. 40 mörk í 41 leik Markaskorun Alfreðs Finnboga- sonar með Heerenveen í Hollandi virðist engan endi ætla að taka. Í þeim 41 leik sem Alfreð hefur spil- að fyrir félagið hefur hann skorað hvorki meira né minna en 40 mörk. Alfreð hefur verið orðaður við stór- lið á meginlandi Evrópu sem og á Bretlandseyjum, en afar líklegt er að Alfreð muni skipta um félag í janúarglugganum. Í því samhengi hefur enska liðið Newcastle verið nefnt til sögunnar sem mögulegur áfangastaður markaskorarans ís- kalda. Kolbeinn magnaður Kolbeinn Sigþórsson, leikmaður Ajax í Hollandi, lék sinn fyrsta landsleik í Kórnum gegn Færeyj- um í marsmánuði 2010. Hann skoraði annað mark Íslands í 2–0 sigri og síðan þá hefur hann skorað 13 mörk í 19 leikjum. Það gerir hátt í 0,7 mörk í leik. Töl- fræði framherjans er mögnuð og er ljóst að markahæsta leik- manns Íslands frá upphafi, Eiðs Smára með 24 mörk, bíður mikil samkeppni um markametið. Nánast allir atvinnumenn Það er af sem áður var þegar íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu samanstóð að mestu leyti af leikmönnum sem léku með félagsliðum hér á landi. Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari hefur nær einvörðungu valið menn í landsliðshópinn sem leika í sterk- ari deildum erlendis. Af þeim 23 leikmönnum sem valdir voru í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Kýpur og Noregi á dögunum voru hvorki fleiri né færri en 20 atvinnu- menn. Þrír leika í Pepsi-deildinni en það eru markverðirnir Hannes Þór Halldórsson (KR) og Gunnleif- ur Gunnleifsson (Breiðablik) auk vinstri bakvarðarins Kristins Jóns- sonar, liðsfélaga Gunnleifs. Fyrir utan Hannes, sem stóð í markinu, voru allir þeir leikmenn sem tóku þátt í leikjunum tveimur at- vinnumenn, flestir til fjölmargra ára. Markmenn n Gunnleifur Gunnleifsson ­ Breiðablik n Hannes Þór Halldórsson ­ KR n Haraldur Björnsson ­ Fredrikstad FK Varnarmenn n Birkir Már Sævarsson ­ SK Brann n Ragnar Sigurðsson FC København n Kári Árnason ­ Rotherham United n Eggert Gunnþór Jónsson ­ Belenenses n Ari Freyr Skúlason ­ OB n Hallgrímur Jónasson ­ Sønderjyske n Kristinn Jónsson ­ Breiðablik Miðjumenn n Emil Hallfreðsson ­ Hellas Verona n Aron Einar Gunnarsson ­ Cardiff City FC n Helgi Valur Daníelsson ­ Belenenses n Jóhann Berg Guðmundsson ­ AZ n Birkir Bjarnason ­ Sampdoria n Rúrik Gíslason ­ FC København n Ólafur I. Skúlason ­ SV Zulte Waregem n Gylfi Þór Sigurðsson ­ Tottenham n Guðlaugur Victor Pálsson ­ NEC Sóknarmenn n Eiður Smári Guðjohnsen ­ Club Brugge n Kolbeinn Sigþórsson ­ Ajax FC n Arnór Smárason ­ Helsingborg IF n Alfreð Finnbogason ­ Heerenveen

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.