Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Qupperneq 36
36 Fólk 18.–20. október 2013 Helgarblað og mér finnst ég alltaf standa í mik­ illi þakkarskuld við þetta fólk. Ég er bæði þeim og forsjánni mjög þakk­ látur að hafa fengið að alast upp hjá þessu góða fólki,“ segir hann. Ekkert tiltökumál Júlíus sér á blaðamanni að henni þyki þetta nokkuð merkilegt en sjálf­ ur segist hann aldrei hafa velt þessu mikið fyrir sér. Bæði hafi tímarnir breyst en svo telji hann sig líka bara svo heppinn að hafa fengið að alast upp hjá þessum sómahjónum. „Ég sé það oft á fólki að því þyki þetta merkilegt en mér hefur aldrei fundist þetta neitt tiltökumál. Þetta var ekki vegna þess að foreldrar mínir gætu ekki alið mig upp eða neitt slíkt. Ég valdi mér bara þessi yndislegu hjón og þau mig. En ég átti líka yndislega foreldra sem ég hef líka alltaf verið í góðu sambandi við. Sérstaklega eft­ ir að ég fór að vinna hjá fjölskyldu­ fyrirtækinu.“ Hugfanginn af söng Fósturforeldrarnir voru miklir listunnendur og hlaut hann mikið menningaruppeldi. Fór ungur að sækja listsýningar og tónleika. Á unglingsárunum varð hann svo hug­ fanginn af sönglistinni. „Þegar ég var í menntaskóla þá einhvern veginn datt ég inn í þenn­ an ofboðslega áhuga á söng.“ Líkt og flest önnur ungmenni á áttunda áratug síðustu aldar hlustaði hann á Deep Purple og Led Zeppelin en leit­ aði líka uppi klassíska söngvara með góðar söngraddir. „Þegar ég var í MR söng ég á tímabili í 4–5 kórum sam­ tímis. Ég fór síðan í Tónlistarskól­ ann í Reykjavík og svo Söngskólann,“ segir hann. „Allt í einu rann upp fyrir mér hvað fegurð söngsins getur verið hrífandi. Þá fór ég að hlusta meira og læðast til að kaupa plötur með góðum söngvurum og óperur. Það þótti nú svolítið sérstakt á þeim tíma, þetta hefur breyst í dag.“ Hann segir próflestur meðal annars hafa opnað augu sín fyrir feg­ urð og frelsi söngsins. „Maður er svo næmur þegar maður er í prófum.“ Á þessum tíma komst hann að því að hann hefði góða rödd og hefði möguleika á að gera sönginn að at­ vinnu sinni. Hann vildi þó tryggja sig og ekki bara treysta á sönginn og lærði því lögfræði með. Fannst lögfræðin leiðinleg Lögfræðin fannst honum hins vegar aldrei neitt sérlega skemmtileg og söngurinn átti hug hans allan. Af hverju lærði hann hana þá? „Það er góð spurning,“ segir hann og skell­ ir upp úr. „Mér fannst aðallega gott að fara í lögfræði því þar lærir mað­ ur svo margvíslegt sem nýtist manni á mörgum sviðum. Ég sá aldrei fyrir mér beint að starfa sem lögfræðingur en ég er samt héraðsdómslögmaður og hef stundað lögmennsku,“ segir hann. Meðan hann lagði stund á lög­ fræðinám átti þó söngurinn hug hans allan. Úr varð að hann fór til Austurríkis í frekara söngnám og svo seinna til Ítalíu eftir að hann kláraði lögfræðinámið hér heima. Áður en hann fór til Ítalíu hafði hann kynnst konunni í lífi sínu; Svanhildi Blöndal presti. Úr varð að Svanhildur kom út til hans. Þá voru þau enn barnlaus en hann átti einn son fyrir en í dag eiga þau Svanhildur saman þrjú börn. Lærði hjá kennara Pavarotti Á Ítalíu stundaði hann nám við tón­ listarháskólann í Bologna og lærði hjá mörgum af bestu söngvurum Ítalíu. Meðal annars var kennari Pavarotti, Arrigo Pola, prófessor við háskólann. „Svo var ég í tímum hjá manni sem hét Mario Del Monaco sem var einn af stærstu söngvurum síðustu aldar.“ Júlíus Vífill bjó á Ítalíu ásamt eiginkonu sinni í tvö og hálft ár. „Þetta voru yndislegir tíma og maður hugsar oft til baka til þessara ára,“ segir hann. Þau komu aftur til Íslands árið 1982. „Ég ætlaði mér ekkert að koma heim en það var haft samband við mig frá Þjóðleikhúsinu og mér boðið að koma og syngja þar aðalhlutverkið í óperettu sem var verið að setja upp. Ég ætlaði mér að vera lengur úti en mig vantaði pen­ ing, þarna bauðst mér að koma heim og fá greitt fyrir það. Svo eins og gengur rak hvert hlutverkið og verk­ efnið annað þannig að maður var alltaf sívinnandi á þessum vettvangi og ég fór ekki aftur út.“ Var frelsinu feginn Júlíusi gekk vel í söngnum og söng hvert aðalhlutverkið á fætur öðru. „Ég söng í rúmlega sex ár og söng eitthvað á annað hundrað óperusýn­ ingar – yfirleitt alltaf í aðalhlutverk­ um. Þessu fylgdi líka talsvert af tón­ leikum, bæði í Reykjavík og úti á landi. Þetta var skemmtilegur tími en mjög annasamur og mikið vinnuálag sem fylgdi. Maður lifir ekki á söngn­ um einum saman þannig að annað­ hvort þarf maður að kenna með eða vinna annað og ég vann alltaf með. Þarna fór ég inn í fyrirtækjarekstur fjölskyldunnar, vann við það og hélt svo áfram þar eftir að ég hætti í söngnum.“ Júlíus Vífill segist eftir á kannski hafa unnið of mikið á þessum tíma, allavega varð hlé á söngnum til þess að hann langaði ekkert sérstak­ lega til baka. „Það er hægt að vinna svona mikið í ákveðinn tíma en svo fann ég að ég var svolítið frelsinu feg­ inn. Þetta var mikið um helgar og á kvöldin. Kannski 10 tíma vinnudagar og svo söngurinn með. Augljóslega var þetta ekki fjölskylduvænt. Það gengur ekki til lengdar.“ Á sama tíma var hann að vinna sem framkvæmdastjóri hjá fjöl­ skyldufyrirtækinu, Ingvari Helgasyni hf., en því starfi gegndi hann allt þar til hann fór út í borgarpólitíkina. Dró sig til baka Eins og áður sagði hefur hann verið borgarfulltrúi frá árinu 1998. Hann var þó frá kjörtímabilið 2002–2006 og það eru ástæður fyrir því. „Ég gaf kost á mér í prófkjörinu fyrir kosn­ ingarnar 1998 og óskaði þá eft­ ir 4. sæti sem ég fékk. Mér fannst þetta mjög áhugavert og gat hugs­ að mér að halda áfram. Að því kjör­ tímabili loknu kom í ljós að áhrifa­ fólk innan flokksins vildi stilla inn á lista án þess að fram færi próf­ kjör. Og tilgangurinn með því var að stilla Birni Bjarnasyni upp sem leiðtoga listans. Björn Bjarnason er merkur stjórnmálamaður og mín af­ staða snerist ekki á nokkurn hátt um hans persónu. Ég hef alltaf stutt það að það séu flokksmenn sjálfir sem raða upp á framboðslista í prófkjöri og ráði því hvernig raðast. Það getur verið óþægilegt fyrir suma en það er eina leiðin sem næst sátt um því það er ekki hægt að bera brigður á það að niðurstaðan er vilji flokksfélaga. Af því að það var ákveðið að gera þetta þarna með öðrum hætti þá einfald­ lega dró ég mig til baka. Mér fannst þetta ekki viðeigandi og vildi ekki taka þátt í þessu. Mér var boðið eitt af efstu sætunum en engu að síður þá fannst mér þetta ekki gott upplegg og hafði ekki trú á þessu.“ Hann segist vissulega hafa skynjað að ekki hafi allir verið sáttir við þessa ákvörðun hans innan flokksins. Erfir ekkert við Ólaf F. Hann lét það þó ekki á sig fá og að fjórum árum liðnum sneri hann aft­ ur og þá tók við skrautlegur tími í borginni. Fyrst samstarf með Fram­ sóknarflokknum en svo tók hinn svokallaði 100 daga meirihluti við þar sem Sjálfstæðisflokkurinn var í meirihluta ásamt Ólafi F. Magnús­ syni. „Það samstarf gekk erfiðlega,“ segir hann en flestir þekkja söguna. Nýlega tjáði Þorbjörg Helga Vigfús­ dóttir borgarfulltrúi sig um samstarf­ ið við Ólaf F. í viðtali við tímaritið Nýtt Líf. Þar sagði hún meðal annars að samstarfið við Ólaf F. hafi verið mistök og þau hafi nýtt sér veikindi hans til þess að komast til valda. Júl­ íus tekur ekki undir það. „Við Ólafur F. áttum aldrei neitt sérstaklega mik­ il samskipti. Hvorki í aðdraganda þessa meirihluta eða þann tíma sem hann var borgarstjóri. Ég var for­ maður menntaráðs og hafði gríðar­ lega mikinn áhuga á því starfi og setti mig inn í þau málefni og var mjög upptekinn við það. Ólafur hafði minni áhuga á þessum málaflokki að því er virðist því við áttum nán­ ast engin samskipti um þetta en auð­ vitað sátum við saman í borgarstjórn og öðru slíku. En okkar samskipti voru nokkurn veginn í lágmarki. Það var ekki af því að við værum eitt­ hvað ósáttir, það bara einhvern veg­ inn æxlaðist svona,“ segir hann. Það sló þó í brýnu milli þeirra og lýsti Ólafur yfir vantrausti á Júlíus vegna orðaskipta þeirra á milli á fundi skipulagsráðs. „Þetta var augljóslega erfiður tími fyrir Ólaf eftir að samstarfi við hann var slitið. Ég erfi það ekki á nokkurn hátt þótt hann hafi sagt þessa hluti sem ekki standast skoðun. Vegna þess að ég veit að hann varð mjög sár yfir því hvernig þetta endaði. Hann sagði hluti sem auðvitað er ekki gam­ an að einhver segi um mann; eins og það að hann sagði að ég væri haldinn fordómum gagnvart geðsjúkum. Hann veit það ekki en ég auðvitað eins og allir aðrir hef kynnst geðsjúk­ dómum hjá mjög góðum vinum og fjölskyldumeðlimum og er auðvit­ að ekki haldinn fordómum gagnvart veikindum. Það er náttúrulega alveg af og frá. Þetta er svo löngu fyrirgefið af minni hálfu það sem Ólafur sagði.“ Vantar leiðtoga í borgina Það dylst engum að undanfarið kjör­ tímabil hefur verið nokkuð rólegt miðað við kjörtímabilið þar á undan. Meirihluti Besta flokks og Samfylk­ ingar virðist hafa skapað ró í borginni og miðað við skoðanakannanir virð­ ast borgarbúar nokkuð sáttir. Júlíus Vífill segir að það sjái ekki allir hvert stefni enda séu fjármál sveitarfélaga lítil skemmtilesning. Ástandið í fjár­ málum borgarinnar sé ekki gott og honum finnst Jón Gnarr borgar stjóri ekki vera að sinna því starfi sem hann telur borgarstjóra eiga að sinna. „Það er ekki haldið utan um fjármál borg­ arinnar með þeim hætti sem þarf að gera. Það sjáum við til dæmis á því að útgjöld hafa verið að aukast. Þá þarf að horfa á svokallaðan A­hluta árs­ reikninganna. Núna á þessu kjör­ tímabili þá er borgarsjóður rekinn með halla. Hann hefur verið rekinn með halla hvert einasta ár eftir að þessi meirihluti tók við. Hann var rekinn með afgangi á þeim tíma sem við vorum við völd hér og þó var það á einhverju erfiðasta efna­ hagsskeiði þjóðarinnar. Hallarekstri fylgir skuldaaukning sem einnig má sjá í ársreikningnum,“ segir hann og heldur áfram. „Það er ekki nægjan­ legt utanumhald. Fólk getur sagt: þú ert bara sjálfstæðismaður, þú ert ekki ánægður með þennan meirihluta, það er svo sem satt, en það er líka hægt að horfa til þess að það var ráð­ in úttektarnefnd óháðra sérfræðinga sem fjölluðu um rekstur borgarinnar og þar er margt gagnrýnt sem snýr að „Allt í einu rann upp fyrir mér hvað feg- urð söngsins getur verið hrífandi Heldur sér við Þrátt fyrir að hafa formlega hætt að syngja fyrir nokkrum árum þá tekur Júlíus stundum tarnir þar sem hann fer til píanista og syngur. MynD Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.