Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 41
Menning 41Helgarblað 18.–20. október 2013
„Einstaklega ánægjulegt að
fylgjast með barnaskaranum“
„Vel kryddaður
hrærigrautur“
„Nostalgían var
allsráðandi“
Óvitar
Leikstjóri: Gunnar Helgason
Beyond: Two Souls
PS3
Stundin okkar
RÚV
Menningarlegt ofurhönk
n Verðlauna myndin Mud tekin til sýninga í Bíó Baradís
H
vurn fjandann er Matthew
McConaugheya að gera í
menningarbíó?“ geturðu vel
spurt, lesandi góður, og þér
myndi fyrirgefast að spyrja
svo. Matthew þessi, sem ber eitthvert
erfiðasta eftirnafn í bransanum síð-
an Arnold Schwarzenegger kom fyrst
fram á sjónarsviðið, er helst þekktur
fyrir að birtast á skjánum ber að ofan
í myndum á borð við Fool‘s Gold og
Surfer, Dude. Í fyrra gekk hann svo
alla leið og lék strippara ásamt mun
yngri mönnum í myndinni Magic
Mike.
Matthew (þið fyrirgefið þó ég
leggi ekki aftur í eftirnafn hans) birt-
ist okkur fyrst í myndinni Dazed
and Confused árið 1993 ásamt fleiri
ungum leikurum sem síðar áttu eft-
ir að verða stórstjörnur, svo sem
Ben Affleck og Millu Jovovich. Átta
ár eru liðin frá því tímaritið People
valdi hann kynþokkafyllsta karl-
mann í heimi, en þrátt fyrir að verða
44 ára í ár lætur hann lítinn bilbug á
sér finna og leikur gjarnan aðalhlut-
verkið í rómantískum gamanmynd-
um. Hann er og ekki aðeins hetja á
hvíta tjaldinu heldur mikill ævin-
týramaður í lifandi lífi og hefur siglt
niður Amazonfljót og brugðið sér í
göngutúr um víðáttur Malí.
Hönk bjargar kisu
Rétt eins og okkar eigið heljarmenni
Fjölnir Þorgeirsson stökk í tjörnina til
að hífa upp hesta sem höfðu dottið í
gegnum ísinn, þá lét Matthew sig
ekki vanta þegar fellibylur skall á
New Orleans-borg um árið. Átti hann
þátt í að bjarga strönduðum gælu-
dýrum sem höfðu króast inni hér og
þar sökum flóða. Ári síðar, eða 2006,
bætti hann um betur og bjargaði ketti
sem unglingar höfðu útatað í hár-
spreii og höfðu hugsað sér að kveikja
í. Það sama ár giftist hann brasilískri
fyrirsætu sem er 14 árum yngri en
hann. Eina lýtið á annars glæstum
ferli var þegar nágranni hans kvart-
aði undan hávaða og þegar lögregla
kom á svæðið fann hún Matthew
spilandi á bongótrommur (nakinn,
að sjálfsögðu) og talsvert af kanna-
bisefnum. Okkar maður neitaði að
kannast við efnið, en fékk sekt fyrir
að raska ró granna sinna.
Gott og vel, gætirðu nú sagt. En
hvað kemur þetta allt saman menn-
ingarbíói við? Jú, auk þess að sjarmera
Kate Hudson, Söru Jessicu-Parker og
Liz Hurley á hvíta tjaldinu á Matt okk-
ar sér einnig menningarlegri hlið. Í
fyrra starfaði hann aftur með hinum
stórgóða leikstjóra Dazed and Con-
fused, Richard Linklater, í myndinni
Bernie. Lék hann þar ásamt móð-
ur sinni, sem kallar sig KayMac, lík-
lega orðinn langþreytt á að þurfa að
stafa nafn sitt. Og nú hefur verið tek-
in til sýninga í Bíó Paradís myndin
Mud, sem keppti um gullpálmann á
Cannes- kvikmyndahátíðinni í fyrra
og hefur víðast hvar fengið afbragðs-
góða dóma.
Undarlegasta mynd allra tíma
Myndin er lauslega byggð á sögu
Mark Twain um Tom Sawyer og segir
frá tveim drengjum sem sigla niður
Mississippi-fljót og kynnast þar hin-
um undarlega Mud, sem leikinn er
af Matthew. Leikstjórinn Jeff Nichols
hefur verið lengi með myndina í
vinnslu, en hann segist hafa haft
Matthew í huga fyrir aðalhlutverkið
alveg frá því hann sá hina ágætu
Lone Star eftir John Sayles árið 1996,
en þar lék okkar maður lögreglu-
stjóra í smábæ í Texas-fylki. Sú mynd
sýndi að Matthew kann meira en að
vera ber að ofan og bjarga dýrum, og
vonandi mun Mud gera það sama.
Það er þó nóg annað um að vera
í Bíó Paradís um helgina. Svartir
sunnudagar hefja göngu sína á ný og
hefjast leikar með hinni stórmerki-
legu mynd Videodrome frá 1983.
Myndin skartar þeim James Woods
og Blondie-gellunni Debbie Harry í
aðalhlutverkum, og segir frá manni
sem er heilaþveginn af sjónvarpi
sínu. Eða eitthvað. Erfitt er að segja til
þegar leikstjórinn David Cronenberg
er annars vegar, og hefur myndin
reglulega lent á lista yfir undarleg-
ustu myndir allra tíma.
Lettneskur grjótgöndull
Öðruvísi kost er að finna á barna-
sýningum bíósins, sem einnig hefj-
ast nú um helgina. Sýnd verður
myndin Ernest og Celestína, sem er
frönsk en með íslensku tali. Fjallar
hún um vináttu músar og bjarnar,
en myndin er unninn upp úr
vatnslitamyndum. Jafnframt verð-
ur verðlaunamyndin Mamma, ég
elska þig sýnd, og fjallar hún eins
og nafnið bendir til um samband
móður og drengs. Myndin kemur
frá Lettlandi, en því ber að fagna
að lettneskar myndir rati hingað í
bíó. Við gáfum þeim jú sjálfstæði
fyrir rúmum 20 árum og kominn
tími til að sjá hverju þeir hafa áork-
að í millitíðinni, annað en að gefa
okkur grjótgöndulinn sem stendur
í grennd við Landakotskirkju.
Þar fyrir utan er enn hægt að
sjá myndir á borð við La Grande
Bellezza og Oh Boy, sem báðar
vöktu athygli á Evrópsku kvik-
myndahátíðinni. Það ætti því eng-
um að þurfa að leiðast í kvik-
myndaborginni þó að Alþjóðleg
kvikmyndahátíð sem um garð
gengin. n
„Bjargaði ketti sem
unglingar höfðu
útatað í hárspreii.
Ofur-Matthew Rétt eins og okkar
eigið heljarmenni Fjölnir Þorgeirsson
stökk í tjörnina til að hífa upp hesta
sem höfðu dottið í gegnum ísinn, þá lét
Matthew sig ekki vanta þegar fellibylur
skall á New Orleans-borg um árið.
Kvikmyndir
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Staurblind á setti
Verður haldinn á lofti
Kornhússins á Árbæjarsafni
v/Kistuhyl, laugardaginn 16.
nóvember nk. kl. 18.00-19.30
Dagskrá
1. Setning fundar, val á fundarstjóra og ritara
2. Reikningar ársins 2012 og 2013 lagðir fram
til samþykktar
3. Kosið um hvort Hreyfinguna skuli leggja
niður samkv. samþykktum
4. Önnur mál
Nefndin
Landsfundur
Hreyfingarinnar
ríkt fólk. En vöxturinn er í hættu
vegna fyrirhugaðs niðurskurðar.
Það er sorglegt og skammsýnt.“
Selma: „Þetta var bara dimm-
ur dagur þegar fregnir af niður-
skurði í geiranum bárust. Ís-
lensk kvikmyndagerð er að skila
miklum tekjum í ríkiskassann
og því er þetta með öllu óskilj-
anlegt. Það eru fjölmörg verk-
efni í vinnslu sem eru nú stopp.
Við verðum heldur aldrei góð
í neinu ef það er alltaf verið að
skera niður og hamla framgangi
greinarinnar.“ n