Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 44
44 Lífsstíll 18.–20. október 2013 Helgarblað Mesti ofnæmisvaldurinn n Búðu til þinn eigin svitalyktareyði F lestir nota svitalyktareyði dags- daglega og finnst þeir ekki geta verið án hans. Danskir vís- indamenn hafa nú rannsakað hvaða vörur framkalla oftast snyrti- vöruofnæmi og er svitalyktareyðir þar efst á lista. Fast á hæla honum koma lyktarbætt krem og ilmvötn. Rannsóknin náði til 17.700 manns og höfðu 10 prósent þeirra snyrtivöru- ofnæmi og í fjórðungi tilfella mátti rekja það til svitalyktareyðis. Þeir sem telja sig þurfa að nota hann þurfa þó ekki að örvænta því það er vel hægt að nota ýmislegt af heimilinu í staðinn. Eitt ráð er að dýfa klút í eplaedikið og strjúka handarkrikana eftir bað eða sturtu. Á netinu er auk þess fjöldinn all- ur af uppskriftum að heimagerðum svitalyktareyði og hér er ein þeirra. Hráefni: n 1/4 bolli matarsódi n 1/3 bolli maizena-mjöl n 10 dropar eða 1/4 tsk. tea tree, lavender, eða uppáhaldsolía þín (í tea tree-olíunni eru bakteríudrepandi efni) n 1 msk. kókoshnetuolía Aðferð: Blandið matarsódanum og mjölinu saman í skál og bætið olíunni út í. Hrærið svo kókoshnetuolíunni út í þar til blandan hefur náð þeim þéttleika sem þú vilt. Þú getur annaðhvort mótað blönduna í höndunum eða sett hana ofan í tóman svitalyktareyðisstaut. Þar sem maizena-mjölið þarf hita til að þykkna þarf mögulega að hita blönduna aðeins. n gunnhildur@dv.is Kókoshnetuolía Er vinsæl í uppskriftum að heimagerðum svitalyktareyði. Í framhaldi af síðustu grein og í tilefni af Alþjóða geðheilbrigðis deginum í síð- ustu viku er rétt að líta betur á hvað andleg vellíðan og félags- legt öryggi skiptir okkur í raun öll miklu máli. Samhjálp og styrkleiki Líklega gera fáir sér grein fyrir hvað tengsl við hvert annað skipta okkur í raun og veru miklu máli. Hvernig við tjáum erfðaefni okk- ar í upphafi lífs í móðurkviði og síðar þegar við treystum á sam- skipti við okkar nánustu, í um- hverfi þar sem hættur geta falist við hvert fótmál og við treystum á samhjálp og styrkleika hjarðar- innar. Hin ósýnilegu tengsl eru hins vegar svo hversdagsleg að við hugum oft ekki að mikilvægi þeirra. Á síðustu árum hefur engu að síður með hjálp vísindanna komið betur í ljós hve nærum- hverfið mótar okkur á allan hátt. Ekki bara í heimi félagsvísinda, heldur einnig lífvísindanna sem saman hafa myndað nýjan þekk- ingargagnagrunn sem nálgast sjálfa „sálina“ ef svo má segja. Þarna er ég ekki að tala um hina nýuppgötvuðu Guðseind í atómheiminum sem á að líma allt. Útskýringar sem eru meira en bara efna- og erfðafræðilegar, að við erum eins og við erum. T.d. hvernig eineggja tvíburar geta verið ólíkir þegar þeir fullorðnast, ef þeir hafa alist upp við ólíkar að- stæður og ólík áföll í æsku. Þannig ekki bara tengt mismunandi nær- ingu, hreyfingu og mismunandi efnafræðilegu áreiti í umhverfinu sem skipta auðvitað miklu máli, heldur hvernig félagslegt öryggi og samskipti geta ráðið miklu um tjáningu litninganna og gera okk- ur að því sem við erum. Ósýnileg- ir þættir sem opna og loka genun- um eins og gluggum, allt eftir því hvernig úti blæs hverju sinni. Tengslin eru þó sýnilegri með naflastrengnum, og síðar með móðurmjólkinni. Með alls konar boðefnum sem oft er þó lítið vitað um og síðar með snertingu, sjón og heyrn strax á fyrstu dögum ný- fædds barns. Með augntengslum og brosi, öryggistilfinningu móð- ur og eftirhermu ungbarns. Allt þættir sem e.t.v. leggja stærsta grunninn að heilsu okkar síðar, andlegri sem líkamlegri. Hvernig við þroskumst og tengjumst hvert öðru. Ekki síður hvort við fáum svo hina ýmsu sjúkdóma sem liggja í leyni í erfðaefni okk- ar. Hvort við fáum t.d. háan blóð- þrýsting fyrir aldur fram, krabba- mein, sykursýki eða þunglyndi. Í raun flesta þá félagslegu og sállík- amlegu sjúkdóma sem ég kann að nefna. Félagslegt öryggi og fjölskylduvernd Flestir þessara þátta eru ósýni- legir berum augum og stjórn- málamenn mættu gjarnan hafa í huga nú í umræðunni um mikil- væg heilbrigðismál og forgangs- röðun verkefna. Eins þegar hugað er að t.d. nýjum lögum um stað- göngumæðrun sem er ekki það sama og blóðgjöf eins og einn þingmaður vildi meina í umræðu á Alþingi uam málið fyrir tveimur árum. Hvernig þjóðfélag við viljum byggja upp og hvaða áherslur á að leggja á félagslegt öryggi og fjölskylduvernd voru mál sem rædd voru ítarlega á Læknadög- um í fyrravetur, þar sem m.a. Linn Getz læknir hélt fyrirlestur um hinn áður óþekkta heim sem við vitum enn allt of lítið um, en þar sem tengsl þess efnislega, félags- lega og andlega eru alltaf að verða skýrari. Í mæðravernd- og ungbarna- heilsuvernd reynir starfsfólk að styrkja tengsl foreldra við börn- in. Þrátt fyrir niðurskurð má segja að þessi grunnur standi á sterk- ari stoðum en flestir aðrir, enda almenn velferð barna sennilega besti grunnurinn að heilbrigði framtíðarinnar. Margar greinar læknisfræðinnar eru hins vegar illa farnar í dag og sumar rætur jafnvel farnar að morkna, enda hafa stjórnvöld látið hjá líða að vökva þær og næra nægjanlega. Í raun allt hið íslenska samfélag sem hefur verið upptekið af öðr- um hlutum. Bráðalausnir og eins- taka blóðgjafir duga nú ekki leng- ur til, heldur heildrænar lausnir fyrir allt heilbrigðiskerfið. Frá getnaði til grafar. n Hinir ósýnilegu gluggar heilsunnar Vilhjálmur Ari Arason Af sjónarhóli læknis „Líklega gera fáir sér grein fyrir hvað tengsl við hvert annað skipta okkur í raun og veru miklu máli. Temdu fýluna n Ráð til að halda í góða skapið N ýliðinn er dagur fýlupúkans sem haldinn var í Banda- ríkjunum þann 15. október. Óvíst er hvort mikið var um gleði á þessum degi þar sem alvörugefnir og viðskotaillir einstak- lingar eru í hávegum. Dagurinn er nefndur eftir Grouch, skemmtilegum ólundargemsa sem býr í ruslatunnu og hefur allt á hornum sér í vinsæl- um barnaþáttum, Sesame Street. „Það er ekki ætlun fólks að vera fýlupúkar,“ segir sálfræðingur- inn Julie de Azevedo Hanks í við- tali við Health Magazine. „Fólk fæð- ist með ákveðnar tilhneigingar sem þroskast með aldri og reynslu. Ef þú ert stimplaður fýlupúki, þá er það einfaldlega af því þú hefur ann- að sjónar horn á lífið en gleðiboltinn við hliðina á þér,“ segir hún og gef- ur nokkur ráð til handa fýlupúkum til að temja fýluna og koma auga á gleðilegri hliðar lífsins. 1 Taktu þér tíma til að vera í fýlu Taktu þér fimm mínútur og leyfðu þér að engjast um í fýlu. Kvartaðu og veltu upp þínum dekkstu hliðum. „Stundum þarf þinn innri fýlupúki bara smá athygli,“ segir Julie. 2 Gerðu eitthvað kjánalegt Reyndu að finna barnið í þér. Hoppaðu í pollum, blástu sápukúl- ur, horfðu á teiknimynd. Þetta er andstætt eðli fýlupúkans og gæti reynst erfitt í framkvæmd en vel þess virði að reyna. 3 Borðaðu hamingjufæði „Ef að þú ert fýlupúki og borð- ar óhollt fæði þá þarftu að breyta mataræðinu til að létta lundina,“ segir Drew Ramsey, prófessor í geðlækningum við Columbia-há- skóla, sem mælir með fæðu sem er rík af B-vítamíni og Omega 3-fitusýr- um. „Borðið fiskmeti, egg, grænkál og lax.“ Hún bendir einnig á að vísbendingar séu um að melting og skapsveiflur eigi í nokkru orsaka- sambandi. „Fýlupúkar sem borða óhollt fæði eiga á hættu að fara í enn verra skap þegar meltingartruflanir gera vart við sig. Þá geta skapsveiflur haft bein áhrif á meltinguna og gert hana verri. Lagið meltinguna með því að borða lífræna jógúrt,“ segir Drew. 4 Gerðu eitthvað fallegt Að gera eitthvað fallegt og kærleiksríkt fyrir náungann er góð leið til að bæta líðan og gefa lífinu tilgang. Taktu til í sameigninni óumbeðinn, gefðu góðvini blóm, farðu út í búð fyrir einstæðu móður- ina í næsta húsi, hrósaðu óöruggu afgreiðslustúlkunni í versluninni, gefðu þjórfé og gefðu óþekkum börnum ríkulega þolinmæði. 5 Gefðu fýlunni nafn „Að gefa fýlunni nafn getur gefið nægilega fjarlægð frá vandanum til þess að takast á við hann. Neikvæðar hugsanir og tilfinningar eru hluti af tilfinningalífinu en ættu ekki að vera stór hluti sjálfsmyndarinnar,“ segir Julie. Tveir geðillir Þessir tveir gáfu hvorum öðrum ekkert eftir í geðvonsku í myndinni Grumpy Old Men.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.