Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 45
Þ etta er öðruvísi bók en það sem ég hef gert áður, hún er stærri og ekki bara indverskir réttir,“ seg­ ir Yesmine Olsson en væntanleg er ný matreiðslubók frá henni sem ber heitið Í tilefni dagsins. Sænsk og indversk matargerð Bókin skiptist í tíu kafla og þar má finna meðal annars sænskar og indverskar uppskriftir. Hug­ myndin að bókinni fæddist eftir að Yesmine gerði matreiðsluþætti á RÚV. „Þegar ég gerði þættina ákvað ég að fara meira í minn bakgrunn og það var svolítið inn­ blásturinn að þessari bók. Mig langaði meðal annars að kynna sænska matargerð fyrir Íslending­ um. Við erum svo nálægt en samt er margt öðruvísi í matargerð,“ segir hún og bætir við að hún hafi valið sína uppáhaldsrétti. Hún segist vilja fá fólk til að gera eitthvað öðruvísi bæði í veislum og matarboðum og í eldamennskunni dags daglega. „Bókin heitir Í tilefni dagsins en það má gera alla daga sérstaka. Það er gaman að borða góðan mat á hverjum degi.“ Stjúpsonurinn aðstoðar í eldhúsinu Aðspurð hvort réttirnir séu flóknir segir hún að það sé beggja blands. „Þegar ég er með flókinn rétt er ég líka oft með einfaldari leið til að gera hann. Ég ákvað að hafa þetta líka einfalt fyrir þá sem nenna ekki að eyða mörgum klukkutím­ um í eldamennskuna.“ Yesmine segir að allir geti eldað og hún hafi haft það í huga þegar hún gerði bókina. Hún eigi að höfða til allra. „Ég vil að sem flestir taki þátt í eldamennskunni á heimil­ inu, þannig er það á mínu heim­ ili. Ég fæ ekki að ráða öllu,“ segir hún og hlær.„Maðurinn minn eld­ ar mikið og 14 ára stjúpsyni mín­ um finnst gaman að aðstoða mig við eldamennskuna. Sjö ára dóttir mín er ekki jafnáhugasöm.“ Uppskriftin sem Yesmine deilir með lesendum er nýstárleg og til þess fallin að lífga upp á matar­ boð helgarinnar. „Mig langar að gefa lesendum DV uppskrift að kjúklingaspjótum með döðlum, ég eldaði þennan rétt fyrir vin­ konu mína og hann sló í gegn. Kjúklingurinn er maríneraður úr kóríander og eplum og með döðl­ um.“ Áhugasamir geta fengið nánari upplýsingar um framtak og verk­ efni Yesmine á vefsíðu hennar yesmine.is. Epla- og kóríander-kjúklingaspjót Fyrir 2 n 6–8 kjúklingalæri n 4 bambusgrillpinnar, lagðir í bleyti í 30 mínútur n 2 cm engifer n ½ lítið Granny Smith-epli, steinlaust og afhýtt n 2 stórar döðlur n 100 gr spínat n 2 stór hvítlauksrif n 1 tsk. malað cumin n 2 tsk. garam masala n ½ tsk. kardimommuduft n 1½ dl ferskur kóríander með stilkum n 1/3 jalapeño, fræhreinsaður n safi úr ½ sítrónu n salt og pipar eftir smekk n 2–4 msk. olía Stilltu ofninn á 200°C. Skerðu kjúklingalærin í frekar stóra bita, fáðu þrjá bita úr hvoru læri og leggðu í grunna skál. Skerðu engi­ fer, döðlur og epli í minni bita. Blandaðu öllu saman nema salti og pipar með töfrasprota eða í matvinnsluvél, bættu við olíu ef þörf krefur til að fá mjúka áferð. Helltu helmingnum af kryddleg­ inum yfir kjúklingabitana, veltu þeim upp úr leginum og láttu standa í ísskáp í 1–2 klukku­ stundir. Helltu svolítilli olíu yfir kjúklinginn fyrir grillun, salt­ aðu og pipraðu. Ég geymi helm­ inginn af kryddleginum og nota miðja vegu þegar ég sný spjótun­ um við. Ég pensla spjótin þá með afganginum af kryddleginum til að spjótin verði enn safaríkari og bragðmeiri. Grillaðu í 5 mínútur á hvorri hlið þar til spjótin taka á sig fallega gullinn lit, eða þar til kjúklinga­ kjötið er hvítt og þétt og þá eru spjótin tilbúin.n Lífsstíll 45Helgarblað 18.–20. október 2013 Mesti ofnæmisvaldurinn Satis.is Fákafeni 9 - S: 551-5100 - Opið mán.-fös. 10-17 Sjáðu golfið í alvöru HD með SKY Grunnáskrift 1 + SKY SPORTS Yfir 300 stöðvar fyrir aðeins 10.490 kr. á mánuði Forðist þessi mistök í eldhúsinu Með því að elda alltaf matinn þinn sjálf/ur getur þú fylgst betur með hve mikið af hitaeiningum þú borðar. Það eru þó nokkur mistök sem margir gera í eldhúsinu þegar kemur að hitaeiningunum en fimm þeirra má finan á fitnea.com. n Mistök 1: Að nota of mikið af olíu Ólífuolía er holl en mjög hitaeininga­ rík. Ein mat­ skeið inniheldur 125 hitaeiningar. Gott ráð er að gufusjóða grænmetið áður en það er sett á pönnuna. n Mistök 2: Að áætla skammta Það er mikilvægt að hafa skammtastærðina á hreinu. Það að slumpa á stærðina eða magnið getur aukið hitaeiningafjöldann töluvert án þess að þú gerir þér grein fyrir því. Ekki spara þér örfá­ ar sekúndur með því að slumpa á innihaldið, þú þarft að greiða fyrir það seinna. n Mistök 3: Að vera þræll uppskriftanna Það er gott að fara eftir uppskrift­ um þegar kemur að matreiðslu. Ef uppskrift­ in segir að nota eigi bolla af rjóma má vel nota helming þess og blanda út í maukaðri lárperu eða grískri jógúrt. Þannig fækkar þú hitaein­ ingum án þess að breyta bragðinu. n Mistök 4: Að narta á meðan þú eldar Það getur verið erfitt að smakka ekki þau matvæli sem þú ert að nota. Það er hins vegar fljótt að safnast saman ef þú stingur upp í þig lárperusneið hér og nokkrum hnetum þar. Prófaðu að tyggja tyggjó á meðan þú eldar eða að vera með vatn í glasi. Ef þú stenst ekki löngunina til að stinga bita upp í þig, skaltu setja þeim mun minna á diskinn þegar þú ferð að borða. n Mistök 5: Að geyma afganga til að narta í Það sem þú ættir að reyna að forðast er að fara að narta í af­ ganga þegar þú ferð í frágang í eldhúsinu. Ef þú ætlar ekki að nota afgangana seinna þá skaltu drífa þig í að henda þeim og koma þeim þannig úr augsýn. Þá er minni hætta á að þú stelist í að fá þér aukabita. Allir dagar sérstakir Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Ástríða Yesmine hefur mikla ástríðu fyrir eldamennsku og finnst gott að vera í eldhúsinu að malla. Hún gefur út nýja matreiðslubók. Mynd Sigtryggur Ari Mynd PAll StEfAnSSon Mikilvægt í eldhúsinu Hvítlaukur Þegar Yesmine er spurð um hvaða hráefni hún eigi alltaf í eld- húsinu nefnir hún hvítlauk. „Ég mundi segja hvítlaukur því ég nota hann í flesta rétti. En annars nota ég mikið döðlur og chili. Af öðru hráefni eldum við oftast fisk, kjúkling eða lambakjöt.“ Matvinnsluvél „Mér finnst ómiss- andi að hafa matvinnsluvél í eldhúsinu. Ég nota hana mikið.“ Tónlist „Það er gott að hafa tónlist á meðan ég elda. Það gerir upplifunina enn notalegri, þá er hlýlegt að hafa fjölskyldumeðlimina með.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.