Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Side 46
46 Lífsstíll 18.–20. október 2013 Helgarblað Upprennandi ljósmyndari n Ljósmynd eftir Írisi Dögg í ítalska Vogue L jósmynd eftir Írisi Dögg Einars­ dóttur var birt á vefsíðu ítalska Vogue á dögunum. Myndina prýða íslensk börn í tískufatn­ aði frá Smáralind í samstarfi við Nude Magazine. Anna Maggý Grímsdóttir og Rakel Matthea Dorfadóttir sáu um að stílisera myndina. Íris Dögg flutti fyrir nokkru til landsins með unnusta sín­ um, Birni Stefánssyni trommuleikara í Mínus. Þau bjuggu í Kaupmanna­ höfn þar sem Björn lærði leiklist og Íris Dögg stundaði ljósmyndun af miklum móð. Íris Dögg hefur nýverið tek­ ið myndir fyrir íslenska barnafata­ merkið Ígló, verslunina GK og tísku­ þætti í Nýju Lífi. n Skart innblásið af krókódílum Hermès tískuhús notar hreistur krókódíla sem fyrirmynd í nýrri línu hátískuskarts. Hönnuðurinn er Pierre Hardy og hann hefur nefnt línuna Niloticus, latínuheiti Nílarkrókó­ dílsins. Hann segist hugfanginn af skepnunum og umhverfi þeirra eftir ferð til Nílar og ekkert sé meira krefjandi en að herma eftir fullkomnun náttúrunnar. Stærsti gripur línunnar er hálsmen sem er samansett úr 112 gullhlutum skreyttum með demöntum og eðalsteinum og það tekur hvorki meira né minna en 400 klukkustundir að búa til eitt slíkt. Dúnsængur og koddar fyrir veturinn Laugavegi 86 - Sími: 511 2004 D V E H F. Funheitar úlpur Fyrir Frostið n Dúnúlpur á tískupöllunum n Gyllt, mynstrað og fínlegt H itastigið lækkar hraðbyri og það líður ekki á löngu þar til þunnir ullar frakkar víkja fyrir þykkari og hlýrri kostum. Dúnúlpur þurfa ekki að vera lummulegar, þær geta verið hátískuflíkur eins og sjá má á tískupöll­ unum. Þær sem vilja halda í stílinn án þess að skjálfa á beinunum hafa um marga kosti að velja. Gylltar dún­ úlpur Philip Plein vöktu lukku en allra fallegasta sniðið sást hjá Miu Miu – stílhreint, kvenlegt. n Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is Givenchy Mynstruð og falleg. Miu Miu 2013/2014 Ein fallegast dúnúlpan í ár. Nánast hægt að klæðast henni við fínustu tilefni. Monclear Gamme Rouge Fyrir allra verstu veðrin. Nina Ricci Lúxusdúnúlpa frá Ninu. Sacai 2013/2014 Skemmtileg form. Philip Plein 2013/2014 Gyllt dúnúlpa. Íslensk börn á Vogue.it Falleg börn í myndaþætti sem Íris Dögg myndaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.