Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 52
52 Fólk 18.–20. október 2013 Helgarblað
Kris og Bruce Jenner skilja eftir 22 ár
n Óljóst um framhald Keeping up with the Kardashians
M
óðir Kardashian-systra, Kris
Jenner, og fósturfaðir þeirra,
Bruce Jenner, hafa ákveðið
að ganga í sitthvora áttina
eftir 22 ára langt hjónaband. Sam-
kvæmt tilkynningu þeirra til E! News
hafa þau nú þegar búið í sitthvoru lagi
í rúmt ár. „Við erum mun hamingju-
samari á þennan hátt þótt við mun-
um alltaf elska og bera virðingu fyrir
hvort öðru,“ segir meðal annars í til-
kynningunni. Samkvæmt vefsíðunni
TMZ hefur Bruce ákveðið að búa við
Malibú-ströndina í Los Angeles en
Kris hyggst dvelja áfram á heimilinu
í Calabasas í norðurhluta Los Angel-
es ásamt dætrunum Kendall og Kylie.
Raunveruleikaþættirnir Keeping
up with the Kardashians voru frum-
sýndir á sjónvarpsstöðinni E! í október
árið 2007 og hafa hingað til átta seríur
verið framleiddar. Í þáttunum er
hversdagsleika fjölskyldunnar varpað
fram með dramatískum hætti og eru
fjölskylduerjur og sambönd systranna
Kourtney, Kim og Khloé í miðdepli.
Kim Kardashian hefur vakið athygli
undanfarið fyrir stormasamt ástar-
samband með vandræðagemsanum
Kanye West og baArni þeirra sem
fæddist í júní á þessu ári og hlaut hið
óvenjulega nafn North West.
Óljóst er um framhald raun-
veruleikaþáttanna en fréttamiðillinn
Huffington Post greinir frá því að
upphaflegur framleiðslusamningur
þáttanna renni út árið 2015. Þættirnir
þykja ekki ýkja vinsælir ef marka má
meðaleinkunnagjöf inni á vefsíðunni
imdb.com sem stendur nú aðeins í
2,5 af 10 mögulegum. n
svala@dv.is
topp 5
Tekjuhæstu
pör Hollywood
1 Jay Z og Beyoncé Tónlistar-parið elskulega Jay og Beyoncé
eru ákaflega samrýnd hjón og sitja efst
á lista yfir tekjuhæstu pör ársins sam-
kvæmt tekjukönnun Forbes með samtals
95 milljónir dollara á árinu. Beyoncé
rakaði inn 11 milljónum á Mrs. Carter-
heimstónleikaferðalagi sínu.
2 Tom Brady and Gisele Bündchen Tom
og Gisele vinna mikið og
þéna mikið. Þau rökuðu
saman 80 milljónum
og eru tekjur Gisele enn
himinháar. Hún hefur
verið ein vinsælasta fyrirsæta
heims síðustu ár og vinsældir hennar
hafa lítið dvínað.
3 Brad Pitt and Angelina Jolie Brangelina
eins og parið Brad og
Angelina eru uppnefnd
eru ávallt með ótal járn
í eldinum. Þau leikstýra,
leika og framleiða jöfnum
höndum og rökuðu inn 50
milljónum á árinu samhliða barnauppeldi
og öðrum verkum. Vel gert.
4 Ashton Kutcher and Mila Kunis Ungt og efni-
legt par, Ashton og Mila
Kunis hafa aldeilis nóg að
gera og hafa aflað sér 35
milljóna dollara í tekjur á
árinu. Þau þekkjast frá því
þau léku saman í That 70 ś
show og virðast samstillt og gott teymi.
5 Kanye West and Kim Kardashian Hið
stórvinsæla par Kanye og
Kim er forríkt ef marka
má athugun Forbes á
veldi þess. Þau rökuðu inn
30 milljónum dala á árinu
og geta því haldið áfram að
lifa í vellystingum frammi fyrir alþjóð sem
virðist aldrei missa áhugann á því sem þau
hafa fyrir stafni.
Tískan er alltaf að breytast og það sem var mjög
svalt fyrir ekki svo mörgum árum finnst fólki ekki svo
smart í dag. Það er því alltaf gaman að skoða gamlar
myndir af fræga fólkinu og hverju það klæddist áður.
Hér eru nokkur dæmi frá 10. áratug síðustu aldar sem
US Magzine hefur tekið saman.
´NSYNC Justin Timberlake og
félagar hans í strákabandinu ´NSYNC
þóttu líklega með þeim svölustu á
þeim tíma. Það er spurning hvort
þetta mundi þykja flott í dag.
Kardashian-fjölskyldan Löngu áður en
hún varð þekkt, fyrir Guð má vita hvað, var
Kardashian-fjölskyldan fremur venjulegt
fólk sem lét taka fjölskyldumyndir af sér í
eins fötum. Þessi er frá 1991 og greinilegt að
gallaefnið var í tísku.
Jennifer Lopez og Wesley Snipes
Lopez og Snipes voru par þegar þessi mynd
var tekin en þau mættu á AIDS Foundation
Gala sem Elton John skipulagði.
Angelina Jolie
Axlapúðarnir voru
greinilega ennþá
inni árið 1991. Hér
sést Jolie á frum-
sýningu á Tru
með föður sínum,
leikaranum Jon
Voight.
Will Smith og Jada
Pinkett Sjást hér
saman árið 1995 á
frumsýningu myndar-
innar Devil in a Blue
Dress.
Madonna Hver man
ekki eftir þessum
klæðaburði söng-
konunnar en svona
leit hún út á Blonde
Ambition-tón-
leikaferðalagi sínu á 10.
áratugnum?
Juliette Lewis og Brad Pitt Það
er spurning hvort Angelina mundi sam-
þykkja þennan klæðaburð í dag. Hér má
sjá Pitt árið 1992 með þáverandi kær-
ustu sinni, leikkonunni Juliette Lewis.
Þetta var einu
sinni flott
Beyoncé Árið 1998 var greinilega í
tísku að vera með bert á milli. Hér má
sjá Beyoncé þegar hún var í Destiny ś
Child ásamt Kelly Rowland, LaToya
Luckett og LaTavia Robertson.
Nicole Kidman og Tom Cruise Svona litu
fyrrverandi hjónin út árið 1993 þegar Crusie
setti handaför og fótspor á stétt fyrir utan
Grauman ś Chinese Theater í Los Angeles.
Kris og Bruce Jenner skilja Í þáttunum er hversdagsleika fjölskyldunnar varpað fram
með dramatískum hætti á sjónvarpsstöðinni E!
Ruglast á
hægri og vinstri
One Direction-stjarnan Harry
Style birti mynd á Instagram
þar sem skór hans sjást merktir
hægri og vinstri. Styles skrifar við
myndina: „Ég ruglast stundum.“
Hann viðurkennir að hann eigi
stundum erfitt að fara í skóna og
að hann sé aðdáandi Yoda. Það
má segja að Harry sé heppinn að
hafa félaga sína í One Direction
með sér á sviði svo hann stígi í
réttan fót, hverju sinni.