Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Qupperneq 52
52 Fólk 18.–20. október 2013 Helgarblað Kris og Bruce Jenner skilja eftir 22 ár n Óljóst um framhald Keeping up with the Kardashians M óðir Kardashian-systra, Kris Jenner, og fósturfaðir þeirra, Bruce Jenner, hafa ákveðið að ganga í sitthvora áttina eftir 22 ára langt hjónaband. Sam- kvæmt tilkynningu þeirra til E! News hafa þau nú þegar búið í sitthvoru lagi í rúmt ár. „Við erum mun hamingju- samari á þennan hátt þótt við mun- um alltaf elska og bera virðingu fyrir hvort öðru,“ segir meðal annars í til- kynningunni. Samkvæmt vefsíðunni TMZ hefur Bruce ákveðið að búa við Malibú-ströndina í Los Angeles en Kris hyggst dvelja áfram á heimilinu í Calabasas í norðurhluta Los Angel- es ásamt dætrunum Kendall og Kylie. Raunveruleikaþættirnir Keeping up with the Kardashians voru frum- sýndir á sjónvarpsstöðinni E! í október árið 2007 og hafa hingað til átta seríur verið framleiddar. Í þáttunum er hversdagsleika fjölskyldunnar varpað fram með dramatískum hætti og eru fjölskylduerjur og sambönd systranna Kourtney, Kim og Khloé í miðdepli. Kim Kardashian hefur vakið athygli undanfarið fyrir stormasamt ástar- samband með vandræðagemsanum Kanye West og baArni þeirra sem fæddist í júní á þessu ári og hlaut hið óvenjulega nafn North West. Óljóst er um framhald raun- veruleikaþáttanna en fréttamiðillinn Huffington Post greinir frá því að upphaflegur framleiðslusamningur þáttanna renni út árið 2015. Þættirnir þykja ekki ýkja vinsælir ef marka má meðaleinkunnagjöf inni á vefsíðunni imdb.com sem stendur nú aðeins í 2,5 af 10 mögulegum. n svala@dv.is topp 5 Tekjuhæstu pör Hollywood 1 Jay Z og Beyoncé Tónlistar-parið elskulega Jay og Beyoncé eru ákaflega samrýnd hjón og sitja efst á lista yfir tekjuhæstu pör ársins sam- kvæmt tekjukönnun Forbes með samtals 95 milljónir dollara á árinu. Beyoncé rakaði inn 11 milljónum á Mrs. Carter- heimstónleikaferðalagi sínu. 2 Tom Brady and Gisele Bündchen Tom og Gisele vinna mikið og þéna mikið. Þau rökuðu saman 80 milljónum og eru tekjur Gisele enn himinháar. Hún hefur verið ein vinsælasta fyrirsæta heims síðustu ár og vinsældir hennar hafa lítið dvínað. 3 Brad Pitt and Angelina Jolie Brangelina eins og parið Brad og Angelina eru uppnefnd eru ávallt með ótal járn í eldinum. Þau leikstýra, leika og framleiða jöfnum höndum og rökuðu inn 50 milljónum á árinu samhliða barnauppeldi og öðrum verkum. Vel gert. 4 Ashton Kutcher and Mila Kunis Ungt og efni- legt par, Ashton og Mila Kunis hafa aldeilis nóg að gera og hafa aflað sér 35 milljóna dollara í tekjur á árinu. Þau þekkjast frá því þau léku saman í That 70 ś show og virðast samstillt og gott teymi. 5 Kanye West and Kim Kardashian Hið stórvinsæla par Kanye og Kim er forríkt ef marka má athugun Forbes á veldi þess. Þau rökuðu inn 30 milljónum dala á árinu og geta því haldið áfram að lifa í vellystingum frammi fyrir alþjóð sem virðist aldrei missa áhugann á því sem þau hafa fyrir stafni. Tískan er alltaf að breytast og það sem var mjög svalt fyrir ekki svo mörgum árum finnst fólki ekki svo smart í dag. Það er því alltaf gaman að skoða gamlar myndir af fræga fólkinu og hverju það klæddist áður. Hér eru nokkur dæmi frá 10. áratug síðustu aldar sem US Magzine hefur tekið saman. ´NSYNC Justin Timberlake og félagar hans í strákabandinu ´NSYNC þóttu líklega með þeim svölustu á þeim tíma. Það er spurning hvort þetta mundi þykja flott í dag. Kardashian-fjölskyldan Löngu áður en hún varð þekkt, fyrir Guð má vita hvað, var Kardashian-fjölskyldan fremur venjulegt fólk sem lét taka fjölskyldumyndir af sér í eins fötum. Þessi er frá 1991 og greinilegt að gallaefnið var í tísku. Jennifer Lopez og Wesley Snipes Lopez og Snipes voru par þegar þessi mynd var tekin en þau mættu á AIDS Foundation Gala sem Elton John skipulagði. Angelina Jolie Axlapúðarnir voru greinilega ennþá inni árið 1991. Hér sést Jolie á frum- sýningu á Tru með föður sínum, leikaranum Jon Voight. Will Smith og Jada Pinkett Sjást hér saman árið 1995 á frumsýningu myndar- innar Devil in a Blue Dress. Madonna Hver man ekki eftir þessum klæðaburði söng- konunnar en svona leit hún út á Blonde Ambition-tón- leikaferðalagi sínu á 10. áratugnum? Juliette Lewis og Brad Pitt Það er spurning hvort Angelina mundi sam- þykkja þennan klæðaburð í dag. Hér má sjá Pitt árið 1992 með þáverandi kær- ustu sinni, leikkonunni Juliette Lewis. Þetta var einu sinni flott Beyoncé Árið 1998 var greinilega í tísku að vera með bert á milli. Hér má sjá Beyoncé þegar hún var í Destiny ś Child ásamt Kelly Rowland, LaToya Luckett og LaTavia Robertson. Nicole Kidman og Tom Cruise Svona litu fyrrverandi hjónin út árið 1993 þegar Crusie setti handaför og fótspor á stétt fyrir utan Grauman ś Chinese Theater í Los Angeles. Kris og Bruce Jenner skilja Í þáttunum er hversdagsleika fjölskyldunnar varpað fram með dramatískum hætti á sjónvarpsstöðinni E! Ruglast á hægri og vinstri One Direction-stjarnan Harry Style birti mynd á Instagram þar sem skór hans sjást merktir hægri og vinstri. Styles skrifar við myndina: „Ég ruglast stundum.“ Hann viðurkennir að hann eigi stundum erfitt að fara í skóna og að hann sé aðdáandi Yoda. Það má segja að Harry sé heppinn að hafa félaga sína í One Direction með sér á sviði svo hann stígi í réttan fót, hverju sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.