Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Qupperneq 54
54 Fólk 18.–20. október 2013 Helgarblað
Eignaðist
ömmustúlku
Solla Eiríksdóttir, hráfæðikokkur
og eigandi veitingastaðarins
Gló, eignaðist á dögunum annað
ömmubarnið sitt. Um er að ræða
litla stúlku sem jafnframt er litla
systir Ágústs litla sem Solla vitnar
stundum í á Facebook-síðu sinni,
enda lítill spekingur og spakmæl-
ingur þar á ferð sem reytir af sér
krúttleg gullkorn. Móðir syst-
kinanna og dóttir Sollu er Hildur
Ársælsdóttir úr hljómsveitinni
Amiinu. Solla segist hafa dansað
„trylltan gleðidans“ með Ágústi
litla þegar tíðindin af litlu ömmu-
stúlkunni bárust. Þau hafi tekið
lúftgítarsóló og fíflast saman til
þess að fagna litlu systur Ágústs
sem var að vonum ánægður með
að vera orðinn stóri bróðir.
Högni
hreinskilinn
Högni í Hjaltalín ræðir um lífið
og listina í opinskáu viðtali við
Hauk S. Magnússon sem birt var
á Airwaves-vefsíðu The Reykjavik
Grapevine. Þar segir hann með-
al annars að gerð nýrrar plötu
Hjaltalín, Enter IV, hafi „gert
hann geðveikan“.
„Tónlistin var samin á meðan
ég þjáðist af geðveiki, sum lögin
voru samin á geðsjúkrahúsi, og
það skín í gegn á plötunni.“
Sparkar í
samstarfs-
félaga
Guðmundur Steingrímsson er
einn af þremur mönnum Bjartrar
framtíðar sem stundar líkams-
rækt í Mjölni. Í Séð og heyrt kemur
fram að Guðmundur hafi verið að
leita að fjölbreyttari líkamsrækt en
þeirri sem býðst á líkamsræktar-
stöðvunum. Hann hafi fundið sig
um leið og hann mætti í Mjölni
en þar sé mönnum jaskað út með
Rammstein og Guns N´ Roses. Þá
segir hann að samstarfsfélagarn-
ir fái þar útrás, kýli í boxpúða og
sparki jafnvel duglega í hvern
annan. Þar sé gott að fá útrás fyrir
mögulegan pirring.
Leitað að
Sigmundi
n Skrapp í frí með fjölskyldunni n Óvíst hvar hann er niðurkominn
S
igmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra
er farinn til útlanda í frí.
Þetta var tilkynnt í Stjórn-
artíðindum fyrir þremur
dögum en svo virðist sem fáir viti
hvar sjálfur forsætisráðherra er
niðurkominn. Þó er vitað að Sig-
mundur ferðaðist langt frá okkar
litlu eyju ásamt fjölskyldu sinni til
að hvíla lúin bein og kúpla sig frá
því mikla amstri sem ætla má að
fylgi starfi forsætisráðherra.
Bjarni stýrir á meðan
Fáir virðast vita hvar Sigmundur er
niðurkominn og herma heimildir
DV að meira að segja samstarfs-
fólk hans á Alþingi viti lítið sem
ekkert um ferðir hans. Þingmenn
hafi margir verið ósáttir við
fjarveru hans og sjálf-
ir eytt nokkrum hluta
gærdagsins í að spyrj-
ast fyrir um forsætis-
ráðherrann. Nokkr-
ir áfangastaðir hafa
þó verið nefndir, svo
sem Lundúnir, Flórída
og ónafngreind eyja í
Karíba hafinu.
Lengd frísins virðist einnig
óljós en svo virðist sem Sigmund-
ur hafi farið af landi brott í byrjun
þessarar viku og sé væntanlegur
um miðbik þeirrar næstu. Í sam-
tali blaðamanns við skrifstofu Al-
þingis kom þó fram að Sigmundur
hafi eingöngu verið með skráða
fjarvist í tvo daga, á miðvikudag
og fimmtudag, auk þess sem að-
stoðarmaður Sigmundar sagði
hann væntanlegan um helgina.
Líkt og áður kom fram var greint
frá utanför Sigmundar í Stjórn-
artíðindum síðastliðinn þriðju-
dag. Þar kemur einnig fram að í
fjarveru Sigmundar er það Bjarni
Benediktsson, fjármála- og efna-
hagsráðherra, sem gegnir störfum
forsætisráðherra og má því ætla að
Bjarni hafi nóg á sinni könnu um
þessar mundir. Í fjarveru Bjarna er
það svo Sigurður Ingi Jóhannsson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra og umhverfis- og auðlinda-
ráðherra, sem gegnir störfum for-
sætisráðherra.
„Ekki vel viðunandi“
Svo virðist sem nokkur óánægja
ríki hjá þingmönnum stjórnar-
andstöðunnar vegna fjarveru for-
sætisráðherra. Greint var frá því á
Eyjunni í gær að við upphaf þing-
fundar hafi Helgi Hjörvar, þing-
flokksformaður Samfylkingar-
innar, gert athugasemdir við
viðvarandi fjarveru Sigmundar
frá þingfundum. Helgi benti á að
þetta væri þriðji óundirbúni fyrir-
spurnatíminn í röð þar sem for-
sætisráðherra væri fjarverandi
og að þar sem að næsta vika væri
kjördæmavika myndu líða hátt
í þrjár vikur á milli þess sem Sig-
mundur væri til andsvara.
„Þetta er ekki vel viðunandi og
ég treysti því að forsætisráðherra
sé búinn að vera í burtu í brýn-
um erindagjörðum á mikilvæg-
um fundum,“ sagði Helgi meðal
annars og bað þingforseta um að
skýra hvað ylli fjarveru forsætis-
ráðherra „fund eftir fund“. n
Þ
rátt fyrir ítrekaðar tilraunir
blaðamanns til að hafa uppi
á forsætisráðherra vorum
virðist sem nokkur leynd
hvíli yfir því hvar hann er niður-
kominn.
Með fjarvist
Þegar haft var samband við skrif-
stofu Alþingis var fátt um svör en
þó fékkst staðfest að Sigmundur
væri fjarverandi.
Hvar er Sigmundur?
„Hann er bara með fjarvist og
við höfum ekki tök á að … eða ég
veit ekki einu sinni af hverju. Þetta
er bara eins og að hringja sig inn á
vinnustað.“
Hver getur gefið mér upp
lýsingar um hvar hann er staddur?
„Bara hann sjálfur væntanlega.
Ég veit ekki hvar hann er.“
Hvenær er von á honum aftur?
„Hann er með fjarvist í dag og
í gær.“
Bara í tvo daga?
„Já.“
Kemur tvíefldur til baka
Sigurður Már Jónsson, upplýsinga-
fulltrúi ríkisstjórnarinnar, staðfesti
hins vegar í samtali við blaðamann
að Sigmundur hefði skellt sér í frí.
„Hann fór í frí með fjöl-
skyldunni. Ég er ekki viss hvað
hann verður lengi, held að það sé
eitthvað farið að styttast í að hann
komi aftur,“ sagði Sigurður.
En er ekki alltaf álagstími hjá
forsætisráðherra?
„Hann kemur þá bara ferskur
og tvíefldur til baka. Ég er ekki al-
veg með á hreinu hvenær hann
kemur til baka.“
Er hægt að ná í hann?
„Nei, ég held að það hafi verið
planið að vera í fríi frá öllu.“
Hann hefur þurft á því að
halda?
„Jú, er það ekki bara. Ég held að
maðurinn hafi bara viljað fara í frí
með fjölskyldunni og viljað kúpla
sig aðeins út og hafa það gott með
fjölskyldunni.“
„Hefur komið fyrir áður“
Þegar blaðamaður náði tali af
Jóhannesi Þór Skúlasyni, aðstoðar-
manni Sigmundar, staðfesti hann
að Sigmundur væri erlendis.
Er hann í fríi?
„Hann er erlendis í einka-
erindum.“
Og hvað verður hann lengi?
„Hann kemur aftur um helgina.“
Er þetta ekki frekar óheppilegur
tími, þingið er nú bara nýsett?
„Ég veit nú ekki hvort þetta sé
eitthvað óheppilegri tími en hver
annar.“
Eru fordæmi fyrir því að ráð
herrar séu að fara í frí á þessum
tíma árs?
„Jájá, ég held það séu nú for-
dæmi fyrir því að stjórnmálamenn
skreppi erlendis í einkaerindum.
Það hefur komið fyrir áður. Það
gerðist ekki mikið af því í sumar til
dæmis.“
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Hvar er Sigmundur?
„Ég held að mað-
urinn hafi bara
viljað fara í frí með fjöl-
skyldunni og viljað kúpla
sig aðeins út og hafa það
gott með fjölskyldunni.
Ósáttur Helgi Hjörvar, þingflokksformaður
Samfylkingarinnar, gerði athugasemd við
fjarveru Sigmundar í upphafi þingfundar í gær.
?
Á góðri stund Sigmundur
ásamt eiginkonu sinni, Önnu
Sigurlaugu Pálsdóttur, í opin-
berri heimsókn í Kanada.
Mynd Sunna PaM FurStEnau