Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2013, Síða 56
Villidýrið á meðal vetrardekkjanna. Skútuvogi 8 / Sími 567 6700 / vakahf@vakahf.is / vakahf.is Vetradekk, fyrir íslenskar aðstæður, á felgum tilbúin undir bílin á frábæru tilboðsverði. Sendum út um allt land. Dekkjaþjónusta BifreiðaflutningarVarahlutirBifreiðaverkstæði Úrvinnsla bíla Smurþjónusta Hvar er efnis- hyggjan!? Eða vinur? n Rithöfundurinn Björg Magnús- dóttir lenti í ansi skoplegu atviki er hún hugðist kaupa sér loftljós á dögunum. Björg segir frá því á Facebook er hún spurði afgreiðslu- konu búðarinnar hvort það væri mikið mál að setja ljósið upp en viðbrögðin sem hún uppskar voru eftirfarandi: „En þú ert samt ekkert að fara að gera það, þú veist.“ Björg horfði spyrjandi á konuna sem þá sagði: „Bara kærastinn …“ Eftir enn lengri þögn hélt af- greiðslukonan svo áfram: „Eða bróðir … Eða pabbi … Eða afi? Eða frændi? Eða vinur?“ Sigurður G. í rusli n Sigurður G. Guðjónsson hæsta- réttarlögmaður með meiru held- ur úti síðunni Rusl í Reykjavík á Facebook eins og greint hefur verið frá. Svo virðist sem hann sé óþreytandi í krossferð sinni gegn vanhirðu borgarbúa sé miðað við virkni hans á síðunni. Fjöldi mynda er settur inn nær daglega sem sýna ýmislegt rusl sem fleygt hefur verið á víðavangi. Sigurði blöskrar það bersýnilega og reynir eftir bestu getu að tína ruslið í göngut- úrum með hundi sínum Atlas. Listrænt þenkjandi á Hulu n Sífellt fleiri Íslendingar nýta sér aðra kosti en hinar hefðbundnu sjónvarpsútsendingar til að verða sér út um afþreyingarefni og má þar nefna Netflix og Hulu. Egill Helgason er þar engin undan- tekning, þó hann hafi áhuga á ei- lítið háfleygari myndum en aðrir. Egill segir frá því á Facebook- síðu sinni hvaða myndir séu næstar í röðinni hjá honum. Þar má finna sígildar myndir eins og Die Sehnsucht der Veronika Voss eftir Fassbinder, Meyjarlindin eftir Bergman og Kanal eftir Andrzej Wajda. Allt myndir frá gullöld listrænn- ar kvik- mynda- gerðar samkvæmt Agli. Þ etta eru bara hlutir. Ég hef ekki áhyggjur af því sem ég á ekki, en ég hafði stundum áhyggj- ur af því sem ég átti. Hamingj- an er ekki í hlutum,“ segir Þorsteinn Jakobsson, sem segir það vera mikið frelsi að losa sig við allar sínar verald- legu eigur. Þorsteinn selur um þessar mundir nánast allt sem hann á, fyrir utan íbúðina sína, til að fjármagna ferðir á heimsálfutindana sjö. Þorsteinn er mörgum að góðu kunnur fyrir fjallaklifur, en hann hefur undanfarin ár vakið athygli á mörgum góðgerðamálum með fjallgöngun- um. Í fjögur ár gekk hann til styrktar Ljósinu og undanfarið ár hefur hann safnað fyrir krabbameinsveik börn. Aðspurður hvað það sé sem stendur upp úr varðandi allar göngurnar seg- ir Þorsteini að sér sé efst í huga þakk- læti til allra þeirra sem hafa stutt hann með ráðum og dáð. Fyrst reynir hann við fjallið Aconcagua, hæsta tind Suður-Am- eríku, í janúar ásamt þeim Leifi Erni Svavarssyni og Vilborgu Örnu Giss- urardóttur. Í febrúar er stefnt á Kili- manjaro í Afríku, einnig í slagtogi við þau Vilborgu og Leif. Fljótlega eftir það er stefnt á Everest, en það fer þó eftir því hvernig Þorsteini tekst að fjármagna ferðina. „Maður verður að klára hvern tind fyrir sig,“ segir Þorsteinn. „Ég fjár- magna þetta og miða við einn tind í einu. Ef það verður eitthvað umfram þá fer það allt til þess góðgerðafélags,“ segir Þorsteinn en félagi hans sér um að halda því til haga og er nokkurs konar fjárgæslumaður fyrir hann varðandi ferðalögin. Hver ferð á hvert fjall verður tileinkuð góðgerðamáli, sú fyrsta MS félaginu. n astasigrun@dv.is Selur eigur sínar og klífur fjöll n Þorsteinn klífur heimsálfutindana sjö Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 18.–20. októBEr 2013 118. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr. Lífsgleði Þorsteinn vill láta gott af sér leiða og hver ferð verður tileinkuð nýju góðgerðafélagi. Mynd Úr EinkaSafni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.