Fréttablaðið - 06.02.2015, Qupperneq 46
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| MENNING | 30
BÁSÚNULEIKARINN Carlos Caro
Aguilera flutti til Íslands fyrir tæpum
tveimur árum.
Carlos Caro Aguilera básúnuleik-
ari og Ástríður Alda Sigurðardótt-
ir píanóleikari spila í Kaldalóni í
Hörpu sunnudaginn, 6. febrúar, kl.
16. Tónleikarnir tilheyra röðinni
Tónsnillingar morgundagsins.
Á efnisskránni eru verk eftir
Sulek, Saint-Saens, Guilmant,
Hindemith og Reiche.
Carlos Aguilera er spánskur en
flutti til Íslands í júlí 2013 og starf-
ar sem básúnukennari hjá Skóla-
hljómsveit Kópavogs og Ástríður
Alda leikur með kammerhópnum
Elektra Ensemble og tangósveit-
inni Fimm í tangó. Hún hefur gefið
út sólóplötuna CHOPIN 2010. - gun
Spila á básúnu
og píanó
Þeir höfundar sem tilnefndir eru
til viðurkenningar Hagþenkis fyrir
útgáfu fræðirita og kennsluefnis
eru Ágúst Einarsson fyrir Hagræn
áhrif ritlistar, Brynja Þorgeirs-
dóttir og Bragi Valdimar Skúlason
fyrir Orðbragð, Guðrún Kristins-
dóttir fyrir ritstjórn á Ofbeldi á
heimili, Kristján Jóhann Jónsson
fyrir bókina um Grím Thomsen
og Jón G. Friðjónsson fyrir Orð að
sönnu.
Jónas Kristjánsson sem nú er
látinn og Vésteinn Ólason gáfu út
Eddukvæði I og II og Páll Skúlason
bækur um háskólapælingar og nátt-
úrupælingar.
Ragnhildur Richter, Sigríður
Stefánsdóttir og Steingrímur Þórð-
arson eru tilnefnd fyrir kennslubók
í íslensku fyrir framhaldsskóla,
Snorri Baldursson fyrir bókina
Lífríki Íslands og Úlfhildur Dags-
dóttir fyrir bókina Myndasagan –
Hetjur, skrýmsl og skattborgarar.
Tilnefningar Hagþenkis 2014
Tíu framúrskarandi ritverk sem út komu á síðasta ári voru tilnefnd í gær til viðurkenningar Hagþenkis.
EIN AF TÍU Úlfhildur Dagsdóttir er
meðal tilnefndra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ljósmyndarinn Sigga Ella opnar
sýningu í Skotinu í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur í dag. Þar sýnir
Sigga Ella portrettmyndir af tutt-
ugu og einum einstaklingi á aldr-
inum 9 mánaða til 60 ára með
Downs-heilkenni undir yfirskrift-
inni „Fyrst og fremst er ég“.
Í þessari sýningu veltir Sigga
Ella upp siðferðislegum álita-
málum þess að nýta sér tæknina
til þess að velja einstaklinga, einn
frekar en annan til þess að vera
til. Hún leggur áherslu á að sér
finnist þessar siðferðisspurning-
ar umhugsunarverðar. „Hvert
stefnum við? Er hugsanlega
stefnt að því að útrýma fólki með
Downs-heilkenni?“
Þá vakti grein eftir Halldóru
Jónsdóttur sérstakan áhuga hjá
Siggu Ellu. Hún hafði uppi á Hall-
dóru, sem er 30 ára kona með
Downs-heilkenni, nemi, starfs-
maður á bókasafni, áhugaleik-
ari, tónlistarmaður o.fl. Halldóra
vildi vera með í verkefninu en
yfirskrift sýningarinnar er sótt í
grein Halldóru þar sem hún segir
meðal annars:
„Ég var að lesa grein í blaði
um daginn sem vakti áhuga minn
og gerði mig um leið reiða og
leiða. Það var kona sem skrif-
aði eitthvað um það, að það ætti
að útrýma öllum sem eru með
Downs-heilkenni. Því langar mig
að segja mína skoðun. Ég er sjálf
með Downs-heilkenni, en FYRST
OG FREMST ER ÉG Halldóra.
Því hugsa ég: Hver er fullkominn?
Hver getur sagt það, að við með
Downs-heilkennið séum minna
virði en einhver annar. Við erum
öll ólík og er það best að allir séu
eins?“ - mg
Fyrst og fremst
er ég
PORTRETT Í SKOTINU Sigga Ella sýnir
portrettmyndir af tuttugu og einum
einstaklingi með Downs-heilkenni.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
1
-A
0
6
8
1
7
F
1
-9
F
2
C
1
7
F
1
-9
D
F
0
1
7
F
1
-9
C
B
4
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
6
4
s
_
5
2
2
0
1
5
C
M
Y
K