Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1921, Blaðsíða 13
Búnaðarskýrdlur 3919
II*
Sauðfje Naut Hross Á 100 manns Sauöfje Naut Hross
1901 ... .. 482 189 25 674 43199 614 33 55
1911 ... .. 574 053 25 982 43 879 671 31 51
1914... .. 585 022 25 380 46 644 664 29 53
1915... .. 555 971 24 732 46 618 624 28 52
1916... .. 589 343 26176 49146 656 29 55
1917 ... .. 603697 25 653 51 327 661 28 56
1918... .. 644 971 24 311 53 218 702 26 58
1919... .. 564 683 22 990 51578 608 25 56
Tala sauðfjár og hrossa hefur aldrei verið meiri heldur en
1918, en nautgripatalan var hæst 1902, 27 þúsund, (á fyrri hluta
18. aldar var hún þó nokkru hærri).
Um skepnufjölda landsmanna á umliðnum öldum er yfirlit í
Búnaðarskýrslum 1913, bls. 8*—10*, og vísast hjer til þess. þó skal
þess getið, að í því er sú villa, að nautgripir 1904 eru taldir 30 498
í stað 25 498.
II. Ræktað land.
Terrain culliué.
Búnaðarskýrslunum hefur verið harla ábótavant að því er
snertir stærð túna og kálgarða. Oft er sá dálkur algerlega auður og
verður þá að fylla hann samkvæmt eldri skýrslum, ef nokkrar eru,
og stundum breytist stærðin ótrúlega mikið frá ári til árs. Þessi
ringulreið fer þó nú að lagast eftir því sem lokið er við að mæla
upp tún og matjurtagarða samkv. lögum 3. nóv. 1915, en því átti að
vera lokið 1920. Ummálsuppdrættir af hinum mældu túnum og mat-
jurtagörðum eiga að sendast stjórnarráðinu og hefur hagstofan fengið
þá til afnota, sem komnir eru. En þegar skýrslur þessar voru
samdar voru að eins komnar mælingar úr 71 hreppum að fullu, en
auk þess að nokkru úr 25 hreppum. Er túna- og kálgarðastærðin
í töflunum bjer á eftir tekin eftir þeim allsstaðar þar sem unt hefur
verið. Þar sem túnmælingarnar hafa verið notaðar í töflu IV (bls.
12—18), er sett merkið * við túnstærðina, þegar mælingarnar ná
yfir allan hreppinn, en - þar sem mælingar þær sem komar eru ná
að eins j’fir meiri eða minni hluta af hreppnum. Hefur þá verið
notast við tölurnar úr búnaðarskýrslunum fyrir þann hluta hrepps-
ins sem eftir er og svo fyrir alla þá hreppa, sem engar mælingar
eru komnar úr. Samkvæmt skýrslunum, eins og þær þannig liggja
fyrir, er túnstærðin 21 296 hektarar, en kálgarðar 429 hektarar,