Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1921, Blaðsíða 5
Formál i
Avant-propos.
Með árinu 1919 var tekin upp sú nýbreytni að láta gefa bún-
aðarskýrslurnar i tvennu lagi. í stað þess að þær voru áður allar
gefnar i einu að haustinu, er nú sjerstök skýrsla um búpening í
fardögum og önnur um jarðargróða að haustinu. Tilgangurinn með
breytingunni var sá, að fá skýrslurnar um skepnufjöldann fyr, þegar
þær þyrftu ekki að bíða eftir haustskýrslunum um jarðargróðann.
Þessi tilgangur hefur alls ekki náðst fyrsta árið, en það er samt
ekki örvænt um, að honum kunni að verða náð síðar.
Jafnframt þessari breytingu á skýrslugjafartimanum, hefur lfka
sundurliðunin á skýrslunum verið aukin nokkuð. Sauðir og hrút-
ar eldri en veturgamlir, sem áður voru taldir í einu lagi, eru nú
taldir í tvennu lagi. Hestar og hryssur 4 vetra og eldri, sem áður
voru taldir í einu lagi, eru nú taldir í þrennu lagi, hestar geltir,
hestar ógeltir og hryssur. Loks hefur hænsnum verið bætt við í
skýrsluna um skepnueign. Á skýrslunni um jarðargróðann hefur út-
heyi verið skift í tvent, þannig að úthey af áveitu og flæðiengi er
talið sjer og greint frá öðru útheyi. Úr allmörgum hreppum hafa
skýrslurnar fyrir árið 1919 verið með eldra laginu, svo að hin nýja
sundurliðun liefur ekki getað náð til alls landsins þetta árið.
Bráðabirgðayfirlit um búpening í fardögum 1919 hefur áður
verið birt i Hagtíðindum í desember 1920, en hinar endanlegu tölur
hafa breyst nokkuð frá því, sem þar er frá skýrt.
Hagstofa íslands i ágúst 1921.
Porsteinn Porsteinsson.