Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1968, Page 16
14
Sveitarsjóðareikningar 1963—65
sjóðaheiti, svo sem vélasjóður og hafnarsjóður, eru ekki fa*rð hér, en
t. d. fjallskilasjóðir falla hins vegar hér undir.
34. Lausafé. Hér er um að ræða lausafé, sem ekki er bókað með
fasteignum, og er langstærsti hluti j)ess bifreiðar og alls konar vélar.
35. Fasteignir. Hér eru i einum lið allar fasteignir sveitarfélag-
anna ásaint þeim lausafjármunum, sem fylgja þeim, sjá þó liði 36 og
37. Niðurstöðutölur í þessum lið hafa mjög takmarkað upplýsingar-
gildi, og hið sama er að segja um liði 36 og 37. Mat eigna á efnahags-
reikningum sveitarfélaga er mjög mismunandi og breytist jafnvel frá ári
til árs í sama sveitarfélagi. Fasteignir eru ýmist taldar á fasteignamats-
verði, kostnaðarverði eða einhverju öðru verði, sem oft virðist ákveðið
án þess að nokkurri reglu sé fylgt. Hér slcal og hent á annað atriði.
Eignir í 35. lið (einnig í 34. og 36. lið), eru í litlum tengslum við færsl-
ur á eignabreytingareikningi hjá stórum hluta sveitarfélaganna. Hjá
þessum sveitarfélögum er efnahagsreikningur ekki gerður eftir venjuleg-
um bókhaldsreglum, heldur er hann fremur slcrá um eignir, sem
getur tekið breytingum eftir mati skrásetjara eða viðkomandi sveit-
arstjórnar hverju sinni.
36. Ýmsar eignir. 1 þennan lið koma ýmsar eignir, sem varla er
hægt að telja fasteignir í venjulegum skilningi. Aðallega er hér um að
ræða eignfærð útgjöld til gatna og holræsa, einnig eignfærðar hita-
veituframkvæmdir o. fl. því likt.
37. Hrein eign eigin fgrirtækja með sjálfstætt reikningshald. Sjá
skýringar við lið G, H og I hér á eftir.
F. Skuldir i árslok. Sjá almennar skýringar framar i þessum kafla
og skýringar við lið 21.
G, H og I. Hafnarsjóður, vatnsveita og rafveita. Það, sem veldur
ef til vill einna inestu ósainræmi í reikningum sveitarfélaga (aðallega
kaupstaða) er færsla á reikningum eigin fyrirtækja og annarra rekstrar-
heilda. Hér er spurningin bæði um það, hver fyrirtæki skuli færð sem
eigin fyrirtæki í reikninga sveitarfélagsins, og á hvern hátt tengsl
reikninga þeirra og sveitarfélagsins skuli vera. Hér skulu tekin dæmi,
er sýna ýmsa tilhögun á færslu reikninga eigin fyrirtækja í aðalreikn-
inguin sveitarfélaga:
1) Brúttótekjur og -útgjöld fyrirtækisins koma í tekjuhlið og gjalda-
hlið á aðalreikningi sveitarfélagsins, eignir þess með eignum og
skuldir þess með skuldum á aðalreikningi.
2) Rekstrarafgangur/rekstrarhalli keinur í tekjuhlið./útgjaldahlið á
aðalreikningi, og hrein eign, þ. e. eignir að frádregnum skuldum,
í eignahlið á aðalreikningi. Þetta er sá færslumáti, sem eyðublað
Hagstofunnar gerir ráð fyrir.
3) Tekjur fyrirtækis og útgjöld (rekstrarafgangur/rekstrarhalli) eru
ekki færð á aðalreikning, og hrein eign þess er ekki heldur færð
til eigna á aðalreikningi sveitarfélagsins. Reikningar slíkra fyrir-