Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1974, Page 15

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1974, Page 15
Sveitarsjóösreikjiiiigar 1969—71 13 rekstrarafgang og skuldir. Rétt þótti að taka reikninga Kópavogs í þetta hagskýrsluhefti með þessari tilfærslu, þar sem hér er uin að ræða framkvæmdir á vegum hæjarfélagsins, og þeir koma ekki fram í öðr- um opinberum reikningum. í 2. undirlið þessa liðs eru færð útgjöld til hrunavarna, og í 3. und- irlið til þrifnaðar. Til þrifnaðar teljast m. a. útgjöld til snjómoksturs, gatnahreinsunar og sorphreinsunar, og er siðast taldi liðurinn lang- stærstur í kaupstöðum. í 4., ó. og fi. undirlið eru færð óafturkræf lit- gjöld til vatnsveitna, rafveitna, liafna eða lendingarbóta. Sé hér um að ræða fyrirtæki með sjálfsta'tt reikningshald, er m. a. rekstrarhalli þeirra færður hér, ef hann er greiddur úr sveitarsjóði. Útlán sveitar- félags til slíkra fyrirtækja eru hins vegar færð á eignabreytingareikn- ing. 1 7. undirlið eru færð margs konar útgjöld til almennrar þjón- ustu, svo sem til annarra samgöngumála en eru í 1. undirlið, til skipu- lagsmála, framlög til skyldra mála i þessum lið, o. fl. 15. Sýsliwegaskattnr. Hér færast öll framlög sveitarfélaga til sýsluvegasjóða. lfí. Sýslnsjóðsgjald. Þarfnast ekki skýringa. 17. Framlag til atninniwega. 1 þennan lið eru færð óafturkræf út- gjöld til landbúnaðarmála, skógræktar, útgerðar- og iðnaðarfyrirtækja o. fl. Útgjöld til fjárfestingar, sem eru eignfærð, koma að sjálfsögðu ekki hér, heldur á eignabreytingáreikning. Til landbúnaðarmála telst m. a. kostnaður við refa- og minkaveiðar. Endurgreiðslur á þeiin kostn- aði koma til frádráttar í þennan lið. Þessar endurgreiðslur koma venju- lega næsta ár eftir að útgjöldin eiga sér stað, og þar sem kostnaður við refa- og minkaeyðingu er oft mjög brcytilegur frá ári til árs hjá ein- stökum hreppuin, geta endurgreiðslurnar orðið hærri en útgjöld sama árs. Kemur þá mínustala i þennan gjaldalið. 18. Vaxtagjöld. Vextir af öllum skuldum sveitarsjóðanna sjálfra eru færðir hér ásamt tengdum kostnaði, hvort sem stofnað hefur verið lil þeirra vegna almennra þarfa eða t. d. skólabyggingar. Meðan á hvgg- ingu mannvirkja stendur, koma þó vextir oft með öðrum hyggingar- kostnaði á eignabreytingareikning. 19. önnur rekstrarútgjöld. Hér eru færð ýmis útgjöld, sem ekki heyra undir aðra liði á rekstrarreikningi. t þennan lið eru einnig færð- ar afskriftir, en flest stærri sveitarfélög afskrifa fasteignir og lausa- fjármuni á rekstrarreikningi. Afskriftafjárhæðir koma einnig i tekju- hlið eignabreytingareiknings, i liðinn „skerðing hókfærðra eigna“. 20. Rekstrarafgangur. Sé um rekstrarhalla að ræða, kemur hann fram sem minustala í þessum lið. 21. Flutt frá fijrra ári. í þessum fyrsta lið á eignahreytingareikn- ingi er peningasjóðseign og niðurstöðutölur á hvers konar viðskipta- reikningum sveitarfélaganna i byrjun viðkoinandi árs. I 28. og 30. lið eru samsvarandi fjárhæðir í árslok. 1 1. undirlið eru færðir peningar í sjóði og í 2. undirlið eftirstöðvar af skatttekjum 9veitarfélaganna, þ. e.

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.