Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1974, Page 100

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1974, Page 100
Hagstofa Islands gefur út eftirtalin rit: 1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verzlun- arskýrslur, Búnaðarskýrslur, Iðnaðarskýrslur, Manntal, Mannfjöldaskýrslur, Alþingiskosningar, Sveitarsjóðareikningar, o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951, hafa komið út 56 rit.—Áskrifendum Hagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu. Að henni móttekinni eru rit send þeim í pósti. 2. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar erubirtarmánaðarlegar skýrslur um utanríkisverzlun, fískafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu o. fl., og árlegar skýrslur um ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Ár- legt áskriftargjald Hagtíðinda er 250 kr. 3. Statistical Bulletin er 6ameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands. Það er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og með 1963, þar áður var það mánaðarrit). Statistical Bulletin svipar til Hag- tíðiuda að því er varðar birtingarefni, en er yfirgripsminna. Erlendir áskrif- endur þessa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskriftargjald þess 150 kr. 4. íbúaskrá Reykjavikur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún hefur að geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1972 var 1410 bls., og verð 3900 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað, enda við það miðað, að hún seljist upp. 5. Skrár yfir fyrirtæki á íslandi 1969. Hér er birtur frumstofn hinnar nýju heildarskrár Hagstofunnar yfir fyrirtæki á íslandi (þar eru með bændur, útgerðarmenn, iðnmeistarar o. s. frv.). í þessu riti eru þríþættar uppsláttar- skrár, þar á meðal skrár, þar sem atvinnufyrirtækjum, stofnunum og félags- samtökum er skipt í 165 starfsgreinar. — Ilit þetta kostar 1600 kr. í bandi. Viðaukar við rit þetta hafa verið gefnir út, síðast í apríl 1973. 6. Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og fleiri upplýsingum um dána, koma út árlega í fjölrituðu hefti. Fyrsta heftið, með dánum 1965 —67, kostar 130 kr., skrár yfir dána 1969 og 1970 kosta 80 kr. hvorar um sig, skrár yfir dána 1971 100 kr., og skrár yfir dána 1972 130 kr. Afgreiðsla ofan greindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10 (3. hæð), Rcykjavík. Sími 26699. — Rit eru send gegn póstkröfu, ef þess er óskað, þó ekki rit i liðum 4 og 5.

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.