Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Qupperneq 6
þriðjudagur 9. september 20086 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Nýliðin vika var sú besta á frétta-
vefnum dv.is frá því vefurinn var
opnaður fyrir um það bil ári. Vefur-
inn rauf nú í fyrsta skipti 50.000 not-
enda múrinn þegar vikulegir notend-
ur urðu 50.879. Áður höfðu vikulegir
notendur mest náð um 47 þúsund-
um. Fréttavefur DV stökk fyrir vikið
upp í áttunda sæti á lista samræmdr-
ar vefmælingar yfir mest sóttu vefi
landsins.
Vefurinn hefur vaxið jafnt og þétt
frá því hann var opnaður en hann
fékk óskabyrjun og fór beint í 13.
sæti samræmdrar vefmælingar þeg-
ar honum var hleypt af stokkunum.
Um áramótin var samstarf ritsjórna
DV og dv.is styrkt til muna og síð-
an þá hefur vefurinn sótt í sig veðr-
ið jafnt og þétt. Gestafjöldinn síð-
ustu viku bendir til þess að vefurinn
komi sterkur inn undan sumarlægð-
inni og að þær breytingar sem gerð-
ar voru á honum í sumar séu að skila
árangri. Þetta sést einna best á risa-
stökkum sem vefurinn hefur tekið í
fjölda flettinga frá því gagngerar út-
litsbreytingar voru gerðar á honum
í sumar. Fjölgunin þar sýnir svo ekki
verður um villst að vefurinn er mun
betur lesinn en áður og fólk eyð-
ir meiri tíma á dv.is nú en það gerði
fyrir breytingar.
Þá hefur lesendum pólskra frétta
dv.is fjölgað hægt og bítandi og
fregnir herma að hróður vefjarins sé
orðinn nokkur í Póllandi.
Fréttavefurinn dv.is er á góðri siglingu:
50.000 notenda múrinn rofinn
Vilja stærri bita af kökunni
ritstjórn dV fagnaði áfangasigri
dv.is með kökuveislu í gær.
Enn frestast
Kompássmál
Fyrirtöku í máli Benjamíns
Þórs Þorgrímssonar gegn 365
hf hefur verið frestað þangað til
á föstudag. Eins og fram hefur
komið í DV krefst Benjamín þess
að lögbann verði sett á Kompáss-
þátt sem á að sýna þegar hann
gekk í skrokk á Ragnari Magn-
ússyni. Líkamsræktarþjálfarinn
Benjamín óskaði eftir lögbanni
á þátt Kompáss í ágúst en upp-
takan er frá því á fimmtudaginn
fyrir verslunarmannahelgi. Þá
bað Benjamín veitingamanninn
Ragnar um að hitta sig og féllst
hann á það. Þegar Benjamín
kom á vettvang vissi hann ekki að
Ragnar var vopnaður hljóðupp-
tökutæki og Kompássmenn sátu
stutt frá með myndavél. Þar á
Benjamín að hafa gengið í skrokk
á Ragnari með þeim afleiðingum
að kalla þurfti á sjúkrabíl.
Fannst látinn
í gjótu
Maður í gönguferð gekk fram
á lík í Kaplagjótu í Vestmanna-
eyjum um klukkan hálf fjögur
í gær. Sá látni er karlmaður á
miðjum aldri en lögreglan í
Vestmannaeyjum staðfestir að
hún telji ekki um saknæmt atvik
að ræða. Líkið fannst í Kapla-
gjótu rétt við golfvöllinn í Herj-
ólfsdal. Lögregla telur líkið ekki
hafa verið lengur í gjótunni en
frá því einhvern tímann í morg-
un. Málið er í rannsókn.
Leiðrétting
Ferðaþjónustufyrirtæki
fyrrverandi handknattleiks-
mannsins Alexy Trufan og
eiginkonu hans Elenu Trufan
skipuleggur ferðir fyrir rúss-
neskumælandi ferðamenn
sem hingað koma og annar
varla eftirspurn. Margir rúss-
neskir auðmenn eru meðal
viðskiptavina þeirra og ef
þeir vilja fljúga um landið á
þyrlum, þá útvega þau þyrlur.
Í blaðagrein DV á dögunum
urðu þau mistök að fyrirtæk-
ið var kallað Through Iceland
í stað rétta nafnsins sem er
True Iceland. DV biðst vel-
virðingar á þessum mistökum.
Steingrímur
Njálsson heill
á húfi
Sögusagnir um að kynferð-
isbrotamaðurinn Steingrímur
Njálsson hafi verið maðurinn
sem fannst látinn á Skúlagötu
í síðustu viku eiga ekki við rök
að styðjast. Þessu var meðal
annars haldið fram í útvarps-
þætti í síðustu viku. Maður-
inn sem lést hét Jóhannes
Guðmundsson og var 68 ára.
Hann bjó við Skúlagötu eins
og Steingrímur. Rannsókn
stendur yfir á dauða hans og
hafa tveir óreglumenn verið
hnepptir í varðhald í tengsl-
um við málið.
Ágúst var dæmdur í fimm ára fang-
elsi árið 2004 fyrir að níðast kynferð-
islega á fimm drengjum. Samkvæmt
sálfræðimati hefur Ágúst barnagirnd
á háu stigi en dómurinn sem hann
fékk árið 2004 er einn sá þyngsti
sem fallið hefur hér á landi í slík-
um málum. Meðan á réttarhöldum
stóð reyndi hann að tæla til sín barn
í gegnum netið. Ágúst hefur viður-
kennt að hafa brotið gegn allt að átta
drengjum til viðbótar við þá fimm
sem hann var dæmdur fyrir að brjóta
á. Ágúst er nú á reynslulausn og býr
inni á heimili hjá tveggja barna fjöl-
skyldu í Svíþjóð, en fjölskyldan vissi
ekkert um bakgrunn hans þegar Vís-
ir hafði samband við Staffan Moberg
skólastjóra Lifets Ord í Uppsölum. Í
viðtali við Vísi segir Moberg að Ág-
úst hafi beðið hann um að halda
bakgrunni sínum leyndum og þess
vegna þekki enginn í skólanum for-
tíð hans.
Ræður ekki við kenndir sínar
Ríkissaksóknari krafðist þess í
réttarhöldunum yfir Ágústi Magn-
ússyni að beitt yrði sérstökum
öryggisráðstöfunum þegar
hann hefði lokið afplánun,
en sú krafa var rökstudd
með mati sérfræðings. Þar
var talað um að Ágúst yrði
áfram vistaður á stofnun
að lokinni afplánun. Á Vísi
kemur fram að mat sálfræð-
ings var að hann réði ekki við
kenndir sínar og þess vegna
væri hætta á því að hann bryti
af sér á ný. Þar kom einnig
fram að Ágúst væri haldinn al-
varlegri barnagirnd og þrálátum
kynórum. Hann fékk reynslu-
lausn í lok árs 2006 og dvaldi
á áfangaheimilinu Vernd.
Þar hafði hann aðgang
að tölvu og nettengingu
sem hann notaði til að
reyna að koma á fund-
um sínum og þrettán ára stúlku sem
reyndist vera tálbeita frá fréttaskýr-
ingaþættinum Kompás.
Þarf hjálp
Skólastjóri biblíuskólans, Mo-
berg, segir í viðtali við Vísi að Ágúst
hafi fengið sérstakt leyfi frá yfirvöld-
um fangelsismála til þess að fara til
Svíþjóðar. Þegar Páll Winkel, forstjóri
Fangelsismálastofnunar, er spurður
um það hvers vegna Ágústi hafi verið
veitt sérstakt leyfi frá fangelsismála-
yfirvöldum til þess að fara til Svíþjóð-
ar segist hann ekki vilja tjá sig um
það. Atli Gíslason, alþingismaður og
hæstaréttarlögmaður, segir í viðtali
við DV að ekki eigi að leggja Ágúst í
einelti, það þurfi að hjálpa honum.
Hann segir Ágúst vera búinn að taka
út sína refsingu en á með-
an hann sé á reynslu-
lausn fylgist fang-
elsismálayfirvöld
með honum.
Þegar hann er
spurður hvort
ekki sé óeðlilegt
að Ágúst dvelji
inni á heim-
ili þar sem börn
eru án þess að
foreldrar þeirra viti af því segir Atli
að fangelsismálayfirvöld á Íslandi
geti flutt vitneskjuna um hann út til
yfirvalda í Svíþjóð.
Óásættanlegt
„Það er forkastanlegt og al-
gjörlega óásættanlegt. Kristileg-
ur kærleikur nær langt en það eru
ákveðin mörk sem við þurfum að
setja okkur. Við getum ekki stefnt
börnum okkar í voða svona,“ segir
Gunnar í Krossinum varðandi það
að foreldrar barnanna á heimil-
inu þar sem Ágúst dvelur hafi
ekki fengið að vita um bak-
grunn hans.
„Ég þekki ekki nógu vel til
hans máls til þess að tjá mig
um það,“ segir Vigfús Þór
Árnason, sóknarprestur
í Grafarvogi. Hann
segir málið við-
kvæmt og hann
geti vegna þess
ekkert sagt til um
hvort eðlilegt
sé að Ágúst sé
kominn í biblíu-
skóla í Svíþjóð.
Gott að hann er farinn
„Það er fínt að hann sé farinn héð-
an en ferlega truflandi að hann sé
að fara í einhvern biblíuskóla,“ segir
Rannveig Ásgeirsdóttir, fyrrverandi
nágranni Ágústs. Áður en hann fór
til Svíþjóðar bjó hann í íbúð í Graf-
arvogi sem var beint á móti leikskóla
en Rannveig var afar ósátt við það.
Hún segir það skrítið að ekki séu til
betri úrræði til handa mönnum í
hans stöðu hér á landi.
Ágúst Magnússon er nýlega laus úr fangelsi þar sem hann afplánaði dóm fyrir kynferðis-
brot gegn fimm drengjum. Hann er nú á reynslulausn og er fluttur til Uppsala í Svíþjóð
þar sem hann stundar nám við biblíuskóla. Ágúst fékk sérstakt leyfi hjá fangelsismála-
yfirvöldum til þess að fá að fara til Svíþjóðar. Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofn-
unar, vill ekkert tjá sig um málið.
FELA SLÓÐA
BARNANÍÐINGS
JÓn bJaRki MaGnússon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
„Það er fínt að hann sé
farinn héðan en ferlega
truflandi að hann sé að
fara í einhvern biblíu-
skóla.“
kominn til svíþjóðar
Ágúst magnússon, dæmdur
barnaníðingur, býr á heimili
með tveimur börnum í
uppsölum í svíþjóð en
foreldrar þeirra þekkja ekki
bakgrunn hans.
„Forkastanlegt“ gunnar í
Krossinum segir það forkastanlegt
að foreldrar barnanna þekki ekki
bakgrunn Ágústs magnússonar.
Þekkir ekki málið Vigfús þór
Árnason, sóknarprestur í
grafarvogi, segist ekki þekkja
málið nógu vel og hann geti þess
vegna ekki tjáð sig um það.
Ágúst þarf hjálp atli
gíslason þingmaður
segir Ágúst þurfa hjálp
hvort sem hann fái
hana hér eða úti í
svíþjóð.