Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Blaðsíða 13
þriðjudagur 9. september 2008 13Fréttir Bjúgnakrækir komst ekki langt Lögreglan í Kaliforníu hefur hand- tekið mann fyrir að brjótast inn á heimili tveggja starfsmanna bónda- býlis og hafa þaðan á brott eitthvað af peningum. Aðfarir innbrots- þjófsins verða þó að teljast heldur óhefðbundnar. Mennirnir sem urðu fyrir árás innbrotsþjófsins sögðu að þeir hefðu vaknað við það að hinn 22 ára Antonio Vasqez var að nudda kryddi á annan þeirra og lemja hinn með 20 sentimetra löngu bjúga. Vasquez fannst skömmu síðar í felum úti á akri, aðeins íklæddur bol, boxernærbuxum og sokkum. Peningunum var skilað til eigenda sinna, en bjúgað hafði verið étið af hundi. Írönum þykir olían of ódýr Olíuráðherra Írans sagði á fundi leiðtoga OPEC-ríkjanna í gær að draga yrði úr framleiðslu á olíu þar sem verð á olíutunnunni hefði hríð- fallið og framleiðni væri meiri en eftirspurn. Gholam Hossein Nozari segir að markaðurinn sé nú mettur. Verð á olíu hefur fallið um nærri 30 prósent frá því það náði hámarki í júlí er tunnan kostaði tæpa 150 dollara. Íran er næststærsti olíu- framleiðandi innan OPEC og hinir 12 aðilarnir að samtökunum hafa sambærilegar áhyggjur. Ákveðið verður í vikunni hvernig brugðist verður við þróuninni þegar OPEC fundar í höfuðstöðvum sínum í Vínarborg. Frakklandsforseti blandar sér í Georgíudeilu: Hleypir nýju lÍfi Í kappHlaupið Sarah Palin hefur verið á kosninga- ferðalagi með John McCain um helgina. Eftirvænting og spenna hafa einkennt móttökur sem hún fær frá almenningi og hún hef- ur gjörsamlega skyggt á forseta- frambjóðandann sjálfan. Allir eru komnir til að berja hana augum en ekki John McCain. Í fjölmiðlum vestanhafs er talað um Söruh Palin sem hina nýju „norðurstjörnu“ Rep- úblikanaflokksins. Skyggir á McCain Skyndilegar vinsældir Söruh Palin koma öllum í opna skjöldu og þá ekki síst John McCain sjálfum. Vinsældum hennar fylgir sá galli að hann er sjálfur kominn í skuggann. Á kosningafundi í Detroit í gær- morgun fylltist fundarsalurinn á skammri stundu og þegar fréttist af fundinum í kirkju skammt frá fund- arstaðnum var messunni frestað í skyndi svo kirkjugestir gæru far- ið og virt frambjóðendurna fyr- ir sér. Salurinn tók 8.000 manns í sæti, en margir urðu frá að hverfa. Með sama áframhaldi verður þess skammt að bíða að kosningafund- ir þeirra verði 5 til 10 sinnum fjöl- mennari. Þegar aðeins 2 mánuðir eru til forsetakosninga gæti „Fellibylurinn Sarah“ hæglega feykt John McCain í forsetastólinn. Sarah Palin hefur kveikt nýjan eldmóð hjá kristnu mið- stéttarfólki af evrópskum uppruna, en það er einmitt sá kjósendahópur sem getur skipt sköpum í kosning- unum. Hún er talin höfða sérstak- lega til alþýðufólks í fylkjum á borð við Michigan, Ohio, Pennsylvaniu, Colorado og Montana. Kristna hægrið Í forkosningunum árið 2000 tókst George W. Bush að fá „kristna hægrið“ til að styðja sig gegn John McCain og nú virðist sem Sarah Pal- in sé að ná til þeirra hópa í þágu for- setaframboðsins. Siðferðileg afstaða hennar, til dæmis gegn frjálsum fóst- ureyðingum, áhersla á kristna trú og þjóðhollustu, höfðar til íbúa í sveit- um, smærri borgum og bæjum út um öll Bandaríkin. Stefna hennar í um- hverfismálum og orkumálum á mik- inn hljómgrunn meðal íbúa í fylkjum þar sem eru miklar náttúruauðlindir og möguleikar á aukinni orkuvinnslu. Afstaða hennar til dýraveiða og til byssueignar höfðar einnig til íbúa í ákveðnum fylkjum sem skipt geta sköpum í kosningunum 4. nóvember. Útgeislun og alþýðleg En það eru ekki aðeins stefnumál Söruh Palin sem heilla almenning, hún hefur útlitið með sér, hefur mikla útgeislun og fallega framkomu. Þá er hún „ein af fjöldanum“ með fimm börn og vandamál í heimilislífi, sem nánast allir geta samsamað sig við. Sautján ára dóttir hennar er ólétt og yngsta barnið hennar, sonur sem fæddist í apríl á þessu ári, er með Downs-heilkennið. Slík mál hafa að- eins aukið á vinsældir hennar. Óvæntar vinsældir Söru Palin hafa komið demókrötum í mikinn vanda. Þeir hafa ákveðið að virkja Hillary Clinton til mótvægis og mun hún meðal annars fara í fundaher- ferð til Flórída á næstu dögum til að tala máli Baracks Obama, en all- ir vita að hún hefur nýlega háð harða og óvægna baráttu við hann og hann sniðgekk hana við val á varaforseta- efni. Ekki er því víst að Hillary geti breytt miklu fyrir Obama. Vinsælli en McCain Sarah Palin kann á hinn bóginn að valda John McCain vandkvæðum líka því hún er svo miklu vinsælli en hann. Á fundinum í Detroit í fyrradag komst hann ekkert áfram með sína ræðu því mannfjöldinn heimtaði að fá að heyra meira í varaforsetaefninu þegar hann tók til máls! Sarah, Sarah, Sarah, hrópaði fólkið þó að hann væri að reyna að tala. Kosturinn er samt sá að dollararnir streyma nú loksins í kosningasjóð repúblikana. Meira en 200 milljónir dollara höfðu safnast í lok flokksþingsins í síðustu viku og meira en 40 milljónir manna horfðu á kosningaræðu Johns McCain. Það er jafnmikill fjöldi og horfði á Barack Obama í vikunni áður og mun meira en stuðningsmenn Johns McCain höfðu búist við fyrirfram. Undirbúningur er þegar hafinn fyrir fyrstu sjónvarpsumræður kosn- inganna, en það eru sjónvarpskapp- ræður á milli Söruh Palin og Jo Bid- en, varaforsetaefnis Baracks Obama. Kappræðurnar fara fram í lok þessa mánaðar. Einkum lýtur undirbún- ingur Söruh Palin að því að kynna sér utanríkismál. Haft er eftir John Bolt- on, en hann var um skeið sendiherra Bush-stjórnarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum, að hann hefði hitt Söruh Palin fyrir skömmu til að ræða við hana um utanríkismálin. Hann sagði að hún hefði komið honum þannig fyrir sjónir að hún yrði fljót að tileinka sér þennan málaflokk. Hann sagði að hún væri greinilega mjög klár og vel að sér um varnarmál, þekkti til dæm- is loftskeytavarnir Bandaríkjanna út í ystu æsar. Heillar kjósendur Samkvæmt nýjum skoðanakönn- unum hafa 58 prósent bandarískra kjósenda myndað sér jákvæða skoð- un á Söruh Palin og 60 prósent kjós- enda voru ánægð með ræðu hennar á flokksþingi Repúblikanaflokksins. Nú er málum svo háttað að John McCain og Sarah Palin eru kom- in með forskot á Barack Obama og Joe Biden samkvæmt nýrri skoð- anakönnun Gallup og USA Today. Í henni sögðust 50 prósent ætla að kjósa McCain en 46 prósent lýstu stuðningi við Obama. Talið er að Sarah Palin eigi mikinn þátt í þessari fylgisaukningu McCains. Nicolas Sarkozy, forseti Frakk- lands, sótti Moskvu heim í gær ásamt leiðtogum Evrópusambandsins í þeim erindagjörðum að sannfæra Rússa um að standa við gefin loforð um að draga herlið sitt frá Georgíu. Rússneskt herlið heldur enn til í Georgíu þrátt fyrir að nokkrar vik- ur séu síðan samið var um vopnahlé milli stríðandi fylkinga í landinu. Sarkozy vill þar að auki tala fyr- ir því að Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, dragi herlið sitt frá að- skilnaðarhéruðunum tveimur, Suð- ur-Ossetíu og Abkasíu, sem hann viðurkenndi sem sjálfstæð ríki á dög- unum. Rússar halda því hins vegar fram að hermennirnir sem staddir eru í Georgíu og aðskilnaðarhéruðunum séu friðargæsluliðar og hafi því leyfi til að vera á svæðinu samkvæmt sam- komulaginu. Efasemdir eru hins vegar uppi um hvers konar þrýsting Evrópusam- bandið geti sett á Rússa til að ganga að tillögum þess, í ljósi þess að sam- bandið er afar háð olíu- og gasfram- leiðslu Rússa. Evrópusambandið kaupir 30 prósent af innfluttri olíu sinni og 40 prósent af jarðgasi sínu frá Rússum. Sarkozy hefur þar að auki verið gagnrýndur fyrir linkind gagnvart Rússum í málinu sem rekja megi til þessara staðreynda. Reynir að þrýsta á Rússa Nicolas Sarkozy Forseti Frakklands reynir af veikum mætti að þrýsta á rússa. Staldrað við á matsölustað john mcCain og sarah palin mættu á el pinto- skyndibitastaðinn í albuquerque og fóru í biðröðina við afgreiðsluborðið. Ná til trúaðra Nunnurnar systir samuelle og móðir assumpta mættu á kosningafund johns mcCain og söruh palin í michigan. Sarah slær í gegn þessir stuðningsmenn nýja varaforsetaefnis- ins vísuðu í fræga setningu í kvikmynd- inni jerry maguire. Kraftmikil ræða ríkisstjórinn í alaska kom fyrst fyrir sjónir margra bandaríkja- manna þegar hún flutti ræðu sína á flokksþingi repúblikana þar sem hún þáði útnefningu sem varaforsetaefni flokksins í kosningun- um í nóvember. Söruh fagnað Vinsældir söru palin eru miklar og óvæntar. Hún er talin ná til þeirra hópa sem studdu george W. bush gegn john mcCain fyrir fjórum árum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.