Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Blaðsíða 22
þriðjudagur 9. september 200822 Fólkið
Eins og DV greindi frá fyrr í sumar
dvaldi hin heimsfræga sjónvarpskona
Martha Stewart á Íslandi í júlí ásamt
eiginmanni sínum og fylgdarliði.
Vakti dvöl Mörthu talsverða athygli
og umtal og voru ekki allir sáttir við
það að sjónvarpskonan, sem meðal
annars hefur dvalið í fangelsi fyrir
hlutabréfasvindl, hafi fengið að gista
frítt í forsetabústaðnum á Laufásvegi.
Nú hefur hins vegar komið á daginn
að talsverð landkynning á sér stað í
kjölfar komu Mörthu
en í október verð-
ur hún með
töluvert
veglegt
innslag
um Ís-
lands-
dvöl
sína í
spjall-
þætt-
inum
Martha.
Það er óhætt að segja Hafsteinn
Hafsteinsson, betur þekktur sem
Haffi Haff, sé einn mesti vinnuþjark-
ur í Reykjavík. En kappinn hefur
nú tekið að sér sjöttu aukavinnuna.
Hann mun koma til með að vera
með tískuþætti inni á endurbætt-
um vef tónlistartímaritsins Moni-
tors. Dagsdaglega vinnur Haffi sem
blaðamaður á Vikunni, auk þess að
vera með vikulegan þátt á útvarps-
stöðinni Flass. Einnig vinnur hann
sem stílisti og förðunameistari hjá
Mac. Í frítíma sínum er Haffi á fullu
að taka upp sína fyrstu breiðskífu.
Menn velta því fyrir sér hvort það
séu fleiri klukkutímar í sólarhring
Haffa en okkar hinna. Það er greini-
legt að Haffi ætlar sér stóra hluti í líf-
inu. Hann er sannkallaður dugnað-
arforkur.
sjötta
vinnan
ÁstFanGinn
Á ÍsLanDi
„Þetta er sameiginlegur vinur fjölskyldunn-
ar og þess vegna var hann hjá okkur,“ segir Skúli
Ágústsson, faðir Ástrósar, en hann var mjög hrif-
inn af írska söngvaranum sem gisti á heimili fjöl-
skyldunnar síðustu helgi.
Samkvæmt heimildum DV hittust þau Dami-
en og Ástrós í fyrsta skiptið á tónlistarhátíðinni
Bræðslunni sem fór fram á Borgarfirði eystri í
sumar en írski söngvarinn var aðalnúmerið á
þeirri hátíð. Damien féll fyrir Ástrósu og vildi í
kjölfarið heimsækja hana í Reykjanesbæ þar sem
hún býr ásamt foreldrum sínum. Fyrir nokkrum
dögum kom svo Damien Rice til Íslands og dvaldi
hjá fjölskyldunni. Hann fór meðal annars á körfu-
boltaleik hjá Ástrósu en hún leikur með meistara-
flokki Keflavíkur og tók þátt í Ljósanæturmótinu
um helgina. Ástrós er fædd 1991 og þykir mjög
efnileg körfuknattleikskona.
Kom með írskan mat
„Hann kom með írskan mat og borð-
aði svo íslenskan mat hjá okk-
ur,“ segir Skúli og bætir við að
Damien hafi verið laus við alla
stjörnustæla.
„Engir stælar og frábær per-
sónuleiki. Hann hafði mjög gaman
af Ljósanótt og ég held að hann hafi
verið ánægður með þetta allt saman.“
Ekki náðist í Ástrósu, dóttur Skúla,
en hún stundar nám við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja. Eins og gefur að skilja
eru samnemendur hennar yfir sig
hrifnir af þessum fréttum og
er varla talað um annað á
göngum skólans.
Fyrir þá sem ekki
vita hver Damien Rice
er, þá fæddist hann
árið 1973 á Írlandi
en lagið hans The
Blower‘s Daughter
var titillag kvikmynd-
arinnar Closer með
þeim Jude Law, Juliu
Roberts, Clive Owen og Natalie Portman. Lag-
ið sló í gegn úti um allan heim en síðan þá hefur
hann komið oft fram í þáttum á borð við The Ton-
ight Show með Jay Leno, Late Night with Conan
O‘Brien og The Ellen DeGeneres Show. Þá hefur
tónlist kappans verið notuð í þáttum á borð við
The O.C., Crossing Jordan, One Tree Hill, House,
E.R. og The Black Donnellys.
Kemur aftur í heimsókn
Damien Rice er gríðarlega vinsæll á Ís-
landi en það hefur verið uppselt á nær
alla tónleika kappans hér á landi. Að-
dáendahópur hans er því mjög stór en
plata Damiens „O“ seldist í bílförmum
úti um allan heim.
„Þetta er góður maður og virkilega
rólegur og fínn náungi,“ segir Skúli sem
býst við því að kappinn komi aftur í heim-
sókn á næstunni: „Já, ég býst við því.“
Damien var töluvert á milli tann-
anna á heimspressunni árið
2005 þegar hann sást ít-
rekað með Hollywood-
leikkonunni Reneé
Zellweger sem lék eftir-
minnilega í kvikmynd-
inni The Bridget Jones
Diary. Þrátt fyrir fjölda
frétta af ástarsambandi
þeirra neituðu þau því
ávallt í viðtölum og
sögðust „aðeins bestu
vinir“.
Ung körfuboltamær, Ástrós
Skúladóttir, og fjölskylda
hennar í Reykjanesbæ eiga
heldur betur frægan vin. Sá
heitir Damien Rice og er
írskur en hann söng sig inn
í hjörtu fólks úti um allan
heim með laginu The
Blower‘s Daughter. Damien
dvaldi um tíma á heimili
Ástrósar en þau skemmtu
sér saman á Ljósanótt um
helgina.
„Þetta eru ekki bara tónlistarverðlaun
heldur dægurmenningarverðlaun enda
fjallar Monitor um dægurmenningu í sínum
víðasta skilningi,“ segir Atli Fannar Bjarka-
son, ritstjóri tímaritsins Monitor. Í tilefni
eins árs afmælis tímaritsins verður slegið
upp heljarinnar afmælisgleði á skemmti-
staðnum Apótekinu á fimmtudaginn þar
sem jafnframt verða afhent dægurmenning-
arverðlaunin Nöglin, veglegur bronsgripur
og eftirmynd af venjulegri gítarnögl.
„Afmælisveislan er fyrir velunnara og
annað gott fólk en á undan sjálfu partíinu
fer verðlaunaafhendingin fram. Við ætlum
að verðlauna þá sem skara fram úr í fimm
flokkum. Verðlaun verða veitt fyrir dugnað,
stemningu, framtak og framfarir sem þýð-
ir að fólk fær þá dugnaðarnögl, stemnings-
nögl og svo framvegis,“ segir Atli og ítrekar
að nöglin sé táknræn og þá ekki endilega
bara fyrir tónlist.
„Þegar nöglin slær hjóminn er svo margt
annað sem gerist.“
Í tilefni afmælisins verður opnaður nýr
og endurbættur monitor.is vefur. „Þá renn-
ur bloggsamfélagið bloggar.is undir mon-
itor og það verður meira samfélag í kring-
um vefinn. Auk þess verður dagskrárgerð á
netinu og við förum strax í gang með fjóra
skemmtiþætti. Það er gríðarlega mikið að
gerast og við ætlum að halda áfram að hafa
mikið að gera og gera vel. Við höldum upp
á afmælið með stórglæsilegri afmælisútgáfu
af Monitor sem verður án efa sú glæsilegasta
hingað til. Efnistökin verða svipuð enda þarf
ekkert að laga það sem er ekki bilað. Á for-
síðunni verður svo stórglæsileg kona sem ég
get lofað að er hæfileikaríkasta og glæsileg-
asta kona landsins.“ krista@dv.is
Framúrskarandi neglur
Tímaritið Monitor fagnar eins árs afmælinu með stæl og afhendir dægurmenningarverðlaun:
Atli Fannar með
afmælisköku „Við
ætlum að verðlauna
þá sem skara fram úr í
fimm flokkum.“
MYND HÖRÐUR
ÍsLanDsDvöLin
hjÁ Mörthu
DAMIEN RICE:
Hreifst af Ástrósu damien hitti Ástrósu á
tónlistarhátíðinni bræðslunni og heimsótti
hana og fjölskyldu hennar á Ljósanótt þar
sem hann dvaldi á heimili foreldra hennar.
Heimsfrægur damien
skemmti sér vel með
fjölskyldu Ástrósar.
Bestu vinir Heimspressan fjallaði
um meint ástarsamband reneé
Zellweger og damiens rice en þau
þrættu ávallt fyrir sambandið.