Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Síða 8
þriðjudagur 9. september 20088 Fréttir
Björn Bjarnason, dóms- og kirkju-
málaráðherra, hefur verið dugleg-
ur við ferðalög það sem af er ári. Alls
hefur hann farið í níu ferðir utan þar
sem hann hefur verið erlendis í sam-
anlagt 61 dag á tímabilinu 16. febrú-
ar til 2. september á þessu ári. Björn
hefur lengi verið einn ötulasti blogg-
ari ríkisstjórnarinnar, og þó víðar væri
leitað, og heldur vel utan um ferð-
ir sínar út um allar trissur á vefsvæði
sínu. DV tók saman ferðir ráðherrans
samkvæmt upplýsingum á heimasíðu
hans. Nær allar ferðir ráðherrans eru
í opinberum erindagjörðum enda
bendir hann á það á síðu sinni að ekki
séu skráðir margir frídagar þar frá ár-
inu 1995 enda sé hann haldinn þeirri
áráttu að halda sig frekar að vinnu
en fara í frí. Björn segist ekki ferðast
meira en nauðsyn krefur í embættis-
erindum, og ferðirnar spilli í engu fyr-
ir störfum hans sem ráðherra.
Schengen-ráðherrafundir
Björn fundaði með dómsmála-
ráðherra Litháens í sendiráði Íslands
í Brussel í Belgíu þar sem þeir ræddu
flutning Litháa úr íslenskum fangels-
um til afplánunar í heimalandinu. Sú
ferð var farin 27. febrúar með milli-
lendingu í Kaupmannahöfn. Á þeim
þremur dögum sem Björn var stadd-
ur í Belgíu sat hann einnig Schengen-
ráðherrafund sem snerist einkum um
reglur um brottvísanir. Aðrir menn-
ingarviðburðir og fundahöld fylgdu
í kjölfarið. Fyrr í mánuðinum hafði
Björn farið í sex daga ferð til Lundúna
þar sem hann fundaði með breskum
stjórnmála- og embættismönnum.
10. til 13. mars fór Björn á ráðherra-
ráðstefnu Schengen-ríkjanna um
þróun landamæravörslu sem fram fór
í Bled í Slóveníu.
Tólf dagar í Chile
20. mars hófst tólf daga reisa ráð-
herrans þar sem ferðinni var heitið til
Santiago í Chile til að vera viðstaddur
kjöllagningu nýs varðskips sem þar
er í smíðum. Þurfti Björn að leggja á
sig mikinn krók til að komast til Chile,
þar sem flogið var frá Íslandi til Am-
sterdam í Hollandi, þaðan til Parísar
og loks til Chile í 14 tíma flugferð. Alls
var Björn úti í tólf daga í þessum erin-
dagjörðum auk þess sem hann fund-
aði með mörgum embættismönnum
í Chile. Á heimleiðinni nýtti hann
tækifærið til að kíkja meðal annars
á listaverkasýningu í París. „Það hef-
ur verið ánægjuleg reynsla að kynn-
ast landi og þjóð fyrir utan að fylgjast
með framvindu mála við smíði nýja
varðskipsins okkar,“ sagði Björn um
ferðina til Chile á vefsíðu sinni. Þetta
reyndist lengsta ferð ársins hjá Birni
Bjarnasyni. Næsta utanlandsferð
ráðherrans var farin 10. til 13. maí
þar sem Björn hélt til Grænlands að
kynna sér stöðu mála þar í landi.
Lítil sól í fríinu
Björn Bjarnason ferðast nær
undantekningalaust ekki án þess
að opinber störf komi þar við sögu.
Þó virðist hann hafa tekið sér smá-
vegis sumarfrí í ferð sem farin var 5.
júní er leið hans lá til Lúxemborgar
þar sem hann sat fund Schengen-
ráðherra. Að fundarhöldum lokn-
um hélt hann, eftir tveggja daga
stopp í Lúxemborg, til Mallorca til
móts við Skálholtskvartettinn sem
þangað var væntanlegur. Eigin-
kona hans, Rut Ingólfsdóttir, leikur
á fiðlu í Skálholtskvartettinum, sem
var á hljómleikaferðalagi um Mall-
orca. Næstu níu dögum eyddi Björn
í miður skemmtilegu veðri ef marka
má vefsíðu hans, en naut því meiri
menningar í staðinn. „Kynni okkar
af Mallorca á þessari tónleikaferð
voru á annan veg en ef við hefð-
um gert okkur ferð þangað til að
njóta strandlífs og sólar. Kom okk-
ur skemmtilega á óvart að kynnast
þeim menningaráhuga, sem birtist í
því, hve tónleikar Skálholtskvartetts-
ins voru vel sóttir og mikils metnir,“
ritaði Björn. Þessi ferð, auk sumar-
frísins, var sú næstlengsta í saman-
tektinni, einir ellefu dagar.
Útlendingamál rædd á
Jótlandi
21. júní fór Björn á mikið milli-
lendingaflakk. Hann sat málþing
um forna þingstaði í N-Atlantshafi
undir merkjum Gulaþings í Nor-
egi. Þaðan var farið til Sönderborg
á Suður-Jótlandi til að taka þátt í
fundi norrænna ráðherra sem fara
með útlendingamál. Í færslu sinni
um ferðina skrifar Björn meðal ann-
ars: „Á síðasta ári fengu um 13.500
útlendingar dvalar- og atvinnuleyfi
hér á landi, sem er svipuð tala og í
Finnlandi, þar sem íbúar eru 5 millj-
ónir.“ Víða var farið í þessari ferð,
þar sem helstu viðkomustaðir voru
Bergen, Kaupmannahöfn og Sönd-
erborg. Þessi ferð stóð í viku.
Þingmenn í Alaska
Björn fór ásamt hópi þingmanna
og starfsmanna Alþingis til Fair-
banks í Alaska á aðalfund þing-
mannasambands heimskautsráðs-
ins. Meðal förunauta sem Björn
tilgreinir á vefsíðu sinni eru Sigurð-
ur Kári Kristjánsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, Karl Matthías-
son, þingmaður Samfylkingarinn-
ar, og Jón Bjarnason, þingmaður
VG. Flogið var frá Íslandi til Minn-
eapolis í Bandaríkjunum, þaðan
til Fairbanks með millilendingu í
Anchorage í Alaska.
Óvenju löng útivist
25. ágúst flaug Björn til
Kaupmannahafnar og
þaðan til Berlínar
í Þýskalandi.
Þar sat Björn
meðal
annars fund með Bundeskrimina-
lamt, rannsóknarlögreglu þýska
sambandsríkisins, þar sem hlutverk
embættisins var rætt. Ýmis önnur
fundahöld voru á dagskrá ráðherr-
ans í leiðinni. Frá Berlín lá leiðin til
Vilníus í Litháen hvar Björn sat fund
með Petrus Baguska dómsmála-
ráðherra. Þar var samstarfsáætlun
ráðuneytanna rædd um flutning lit-
háískra fanga frá Íslandi til heima-
landsins til að taka út refsingar sín-
ar. Að svo búnu var flogið frá Vilníus
aftur til Kaupmannahafnar og það-
an lá leiðin til Ystad í Svíþjóð þar
sem dómsmálaráðherrar Norður-
landanna funduðu. Hafði Björn það
á orði í síðustu færslu þessarar reisu
að um óvenju langa útvist hafi verið
að ræða. Þó var þessi ekki sú lengsta,
þó níu daga hafi verið.
Dagpeningakostnaður mikill
Sé miðað við upplýsingar um
dagpeninga ríkisstarfsmanna á
ferðalögum erlendis sem finna má
á vef fjármálaráðuneytisins má gróf-
lega áætla að dagpeningar Björns
fyrir þessar níu ferðir, að Mallorca-
ferðinni undanskilinni, hafi numið
um 730.000 krónum. Innifalið í
dagpeningum er gisting. Ósk-
að hefur verið eftir upplýsing-
um um kostnað við ferða-
lög dómsmálaráðherra hjá
ráðuneytinu, en svar hef-
ur ekki borist enn sem
komið er. Athygli vekur
að í þessum níu ferðum
sínum til útlanda, það
sem af er árinu, hef-
ur Björn Bjarnason
verið samtals 61
dag utan land-
steinanna
frá og með
tímabilinu
16.
febrúar til 2. september. Það lætur
því nærri að frá ársbyrjun til 2. sept-
ember hafi dóms- og kirkjumála-
ráðherra verið erlendis nærri fjórða
hvern dag það sem af er ári, sé allt
talið til.
Ferðir spilla ekki fyrir
embættisstörfum
„Ég sækist ekki eftir að ferðast
meira en nauðsyn krefst en alþjóða-
samskipti vegna míns embættis eru
mikil vegna síaukinnar alþjóðlegr-
ar samvinnu löggæslustofnana og
Schengen-samstarfsins,“ segir Björn
spurður um utanlandsferðir sínar.
„Dagpeningagreiðslum til mín er
hagað samkvæmt þeim regl-
um, sem um dagpeninga
gilda,“ segir Björn og
bætir við að sjálfsagt
sé að svara þeim
spurningum
sem vakna í
kringum
ferðir
Sigurður MikAeL JÓnSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Fjórði hver dagur
á erlendri grund
„Ég sækist ekki eftir að
ferðast meira en nauð-
syn krefst.“
10. MArS TiL 13. MArS
Ísland – Kaupmannahöfn – prag –
lubljana n björn hélt til ráðherraráð-
stefnu schengen-ríkjanna um þróun
landamæravörslu sem fór fram í bled í
slóveníu.
20. MArS
TiL 31. MArS
Ísland – amster-
dam – parÍs –
santiago n Kjölurinn
lagður að nýju
varðskipi í Chile.
lengsta ferðin það
sem af er ári
6 dagar 3 dagar
4 dagar
12 dagar
Björn Bjarnason hefur verið duglegur við
ferðalög það sem af er ári. Alls hefur hann
verið erlendis í 61 dag það sem af er ári í
níu ferðum út fyrir landsteinana.
16. FeBrÚAr TiL 21. FeBrÚAr
Ísland – london n fundur með
breskum stjórnmálamönnum og
embættismönnum.
27. FeBrÚAr TiL 29. FeBrÚAr
Ísland – Kaupmannahöfn –
brussel n björn fundaði með
dómsmálaráðherra litháens. schengen-
ráðherrafundur auk annarra fundahalda
og menningarviðburða.