Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Page 10
þriðjudagur 9. september 200810 Neytendur
Lof&Last
n Lofið fær
veitingastaðurinn
asia express á
suðurlandsbraut
fyrir góðan mat á
góðu verði.
Viðskiptavinur sem hrósar staðnum er
farinn að venja
komur sínar
þangað í
hádeginu.
Hráefnið sem notað er í matinn er
gott og maturinn gerður af alúð. Nýr
staður sem allir ættu að prófa.
n Lastið fær fyrirtækið
tal. Viðskiptavinur
sem er með netið hjá
þeim fékk skyndilega
reikning upp á 8 þúsund
krónur sem átti að vera
riftunargjald. símanum á
heimilinu
var lokað tímabund-
ið og sagði
starfsmaður hjá tal
að þessu væri tekið sem uppsögn og
því send rukkun. borga þarf líka til að
opna aftur. Klúðursleg vinnubrögð.
Enn fleiri bíða eftir því að fá VOD-þjónustu Símans:
Vinna sig niður eftir listanum
„Þetta tekur tíma og það er reynt
að forgangsraða hlutunum,“ segir
Linda Björk Waage, upplýsingafull-
trúi Símans, en margir í litlum þétt-
býliskjörnum víðs vegar um land-
ið bíða enn eftir því að geta tengst
svokallaðri VOD-þjónustu Símans.
Með henni er hægt að leigja myndir
í gegnum sjónvarpið.
Fyrir stuttu birtist frétt á neyt-
endasíðu DV þar sem kona á Vest-
fjörðum kvartaði yfir að fá ekki þjón-
ustuna heim til sín. Stuttu síðar hafi
kona, sem býr í Höfnum rétt fyr-
ir utan Reykjanesbæ, samband og
sagðist vera í sömu stöðu. Hún er
búin að bíða eftir þessari þjónustu í
nokkurn tíma.
„Það skiptir máli fyrir svona
þjónustu að vera nálægt ljósleiðara-
hring,“ segir Linda. „Til þess að geta
boðið upp á þjónustuna þarf að vera
fullkomin varaleið til að allt gangi
fyrir sig eins og það á að gera,“ seg-
ir hún ennfremur. Nú er verið að
vinna í því að að koma fullu vara-
samabandi á og segir Linda að þetta
taki allt tíma þar sem starfsfólk get-
ur ekki verið á öllum stöðum í einu.
„Það hefur raðast þannig niður
að við höfum reynt að fara fyrst á
stærstu staðina og vinna okkur svo
niður eftir listanum.“
Linda segir að flestir ættu að
vera komnir með þjónustuna á fyrsta
fjórðungi næsta árs. Hún segist enn-
fremur ánægð að heyra að eftir eftir-
spurn eftir þjónustunni sé svo mikil
að fólk sé farið að kvarta yfir að hafa
hana ekki. „Það er bara rosalega já-
kvætt,“ segir Linda.
Gullinbrú 165,70 181,60
Bensín dísel
Skeifunni 164,10 179,90
Bensín dísel
Skógarhlíð 164,20 180,00
Bensín dísel
Klettagörðum 162,00 177,80
Bensín dísel
Snorrabraut 164,10 179,90
Bensín dísel
Hæðarsmára 164,10 179,90
Bensín dísel
Skógarseli 164,20 164,20
Bensín díselel
d
sn
ey
t
i
Umhverfismerki auðvelda neytendum að sjá og velja vörur sem eru umhverfisvænni
en aðrar. Merkin eiga sameiginlegt að þau fela í sér lágmarkskröfur um heilnæmi.
Þetta Þýða um-
hverfismerkinEspressó á kaffihúsi
það er alltaf jafnhuggulegt að
setjast niður í miðbæ reykjavíkur
og fá sér espressóbolla. Verðið á
honum er svipað en þó munar 50
krónum á dýrasta og ódýrasta
bollanum.
Umhverfismerki eru merki sem
staðfesta að vörur séu framleiddar
á umhverfisvænni hátt en aðrar vör-
ur. Vaxandi fjöldi fólks kaupir vörur
sem vottaðar eru af óháðum aðil-
um og gefa til kynna framleiðsluhátt
þess með tilliti til gæða og hollustu.
Sameiginlegar kröfur
Umhverfisvænar vörur eiga það
sameiginlegt að standast lágmarks-
kröfur um umhverfisframmistöðu,
hvernig varan er ræktuð og með
hvaða hætti. Kröfurnar geta verið
mismiklar og geta náð til alls lífs-
ferils vörunnar eða bara hluta hans.
Óháður aðili vottar svo að kröfur
umhverfismerkisins séu uppfylltar.
Munurinn á lífrænni og hefðbund-
inni ræktun er mikill. Í hefðbundinni
ræktun er notaður tilbúinn áburður,
jurtalyf gegn sjúkdómum, skordýra-
eitur og hormónalyf til að eyða ill-
gresi. Allt miðar að því að ræktunin
sé auðveld og hámarksuppskera ná-
ist. Að auki eru kemísk efni notuð til
að uppskera skemmist ekki.
Lífræn ræktun
Lífræn ræktun byggist á full-
komnu jafnvægi í náttúrunni þar
sem virðing er borin fyrir vörunni
sjálfri og jörðinni sem notuð er. Eng-
inn tilbúinn áburður, skordýraeitur
eða verksmiðjuframleidd hormón
notuð. Í staðinn er notaður safn-
haugaáburður og náttúruleg jurtalyf
sem gefa jarðveginum aukna nær-
ingu og er brenninetlan þar vinsæl.
Einnig eru sáðskipti höfð sem þýðir
að sama tegundin er ekki ræktuð ár
eftir ár í sama jarðvegi.
Geta tekið þátt
Íslendingar geta sjálfir tekið þátt
í því að minnka umhverfisálagið.
Með því til dæmis að kaupa um-
hverfisvænar vörur, endurvinna
sorp og reyna að spara orkuna sem
mest. Samkvæmt vefsíðu Umhverf-
isstofnunar hafa rannsóknir sýnt
að Íslendingar tengja hugtakið um-
hverfisvernd fyrst og fremst við
landgræðslu, skógrækt og vernd
fiskistofna en leiða síður hugann að
sjálfbærri þróun og til þess hvaða
áhrif þeirra eigin neysla hefur á um-
hverfið.
Hér á eftir fara upplýsingar um
helstu áreiðanlegu umhverfismerk-
in.
expreSSo-boLLi
Prikið 250
snyrtistofan lipurtá 250
snyrtistofan Comfort 270
snyrtistofan fegurð 280
snyrtistofan abaco 300
snyrtistofa Ágústu 300
Geymið kvittanir
það er full ástæða til þess að geyma kvittanir fyrir
því sem keypt er. Ástæðan er sú að það getur alltaf
komið eitthvað upp og kíkja þarf á kvittun. rangt
verð í matvöruverslunum, skemmd vara, sem
sönnun ef bankinn skráir færslu vitlaust inn og sem
ábyrgðarmiði á stærri tækjum. afgreiðslufólk er
mannlegt og gerir líka mistök. stundum geta mis-
tökin snúist um nokkur hundruð og jafnvel þúsund
krónur. þetta er einföld venja sem margborgar sig.neytendur@dv.is umsjóN: Ásdís björg jóHaNNesdóttir, asdisbjorg@dv.is
Neyten ur
bio-merkið (bio-Siegel)
Opinbert merki þýskalands fyrir
lífræna ræktun. til að matvara
fái að nota biO-merkið þarf hún
að innihalda að minnsta kosti
95 prósent lífrænt ræktuð
matvæli. Vörur frá þýskalandi
sjást í
búðum
hérna á
íslandi í þó
nokkrum
mæli og þá
sérstakleag
heilsubúð-
um.
bra miljöval (Fálkinn) umhverfis-
merki sænsku náttúruverndarsam-
takanna (Naturskyddsföreningen),
sem sett hafa umhverfiskröfur fyrir
ýmsa vöruflokka eins og hreinlætis-
vörur,
vefnaðarvör-
ur,
orkufram-
leiðslu og
samgöngur.
Hér á landi
er merkið á
ýmsum
sápum og þvottaefnum.
blómið umhverfismerki
evrópusambandsins. það er
opinbert merki
á ees-svæðinu
og hefur sama
hlutverk og
svanurinn. í dag
fást vöruteg-
undir merktar
blóminu á
evrópska
efnahagssvæð-
inu í um 26
vöruflokkum.
meðal þeirra eru tölvur,
jarðvegsbætir, málning og lakk,
textílefni, ljósaperur og skór.
blái engillinn umhverfismerki
þýskalands. það er einnig eitt elsta
umhverfismerki í heimi. þar er það
á flestum gerðum neysluvara, allt
frá pappírsvörum og hreinlætisvör-
um til húsbúnaðar, gólfefna og
tölvu- og
skrifstofu-
búnaðar.
Hér á
landi er
það
aðallega á
pappírs-
vörum.
Græna innsiglið (Green Seal)
umhverfismerki sjálfstæðra
bandarískra samtaka sem stuðla að
framleiðslu,
sölu og
innkaupum
á umhverfis-
vænni vöru
og þjónustu.
allt frá
kaffisíum til
loftkælikerfa
getur fengið
umhverfismerkið.
Svanurinn Opinbert norrænt
umhverfismerki og útbreiddasta
merkið á Norðurlöndum. svanurinn
hefur mikla útbreiðslu og traust
meðal
neytenda á
Norðurlönd-
um.
Vörutegundir
sem merktar
eru svaninum
eru einna
helst
hreinlætis-
vörur, húsgögn, byggingarvörur,
rafhlöður og pappír.
réttlætismerkið (Fairtrade)
staðfestir að viðkomandi vara
uppfylli kröfur alþjóðlegu FLO-
samtakanna (Fairtrade Labelling
Organisations international).
réttlætismerkið tengist
félagslega þættinum í viðskipt-
um með vörur sem
eiga uppruna sinn í
þróunarlöndunum
og ýtir þannig undir
sjálfbæra þróun sam-
félagsins.
Økologisk
merkið er danskt og opinbert merki
fyrir lífræna ræktun í danmörku.
danir hafa verið mjög þekktir í
gegnum tíðina fyrir að rækta mikið
af lífrænum matvælum. sala á líf-
rænum matvörum
er sjö prósent af
samanlagðri sölu
matvara þar í landi
sem er mesta
hlutfall sölu
lífrænna vara í
heiminum í dag.
* upplýsingarnar eru fengnar af vef umhverfisstofnunar: ust.is/umhverfismerki/Onnurumhverfismerki/
ÁSDÍS bJÖrG JÓHanneSDÓttir
blaðamaður skrifar: asdisbjorg@dv.is
eko Hollenskt
merki um vottun
lífrænnar
framleiðslu
samkvæmt
evrópskum
reglugerðum.
Vörur með þessu
merki eru mjög algengar í
íslenskum heilsuverslunum.