Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Síða 12
þriðjudagur 9. september 200812 Fréttir
McCain eða Obama?
Hægt er að taka próf á netinu, sem
leiðir í ljós hvort skoðanir manns
fara saman við áherslur repúblik-
anans Johns McCain eða demó-
kratans Baracks Husseins Obama.
Prófið er að finna á vefsíðu USA
Today og er slóðin usatoday.com/
news/politics/election2008/candi-
date-match-game.htm. Samkvæmt
seinustu könnunum hefur McCain
fjögurra prósenta forskot á Obama,
eftir að hafa rekið lestina um langt
skeið.
Hleypir nýju lífi í kappHlaupið
Sarah Palin hefur verið á kosninga-
ferðalagi með John McCain um
helgina. Eftirvænting og spenna
hafa einkennt móttökur sem hún
fær frá almenningi og hún hef-
ur gjörsamlega skyggt á forseta-
frambjóðandann sjálfan. Allir eru
komnir til að berja hana augum
en ekki John McCain. Í fjölmiðlum
vestanhafs er talað um Söruh Palin
sem hina nýju „norðurstjörnu“ Rep-
úblikanaflokksins.
Skyggir á McCain
Skyndilegar vinsældir Söruh
Palin koma öllum í opna skjöldu og
þá ekki síst John McCain sjálfum.
Vinsældum hennar fylgir sá galli að
hann er sjálfur kominn í skuggann.
Á kosningafundi í Detroit í gær-
morgun fylltist fundarsalurinn á
skammri stundu og þegar fréttist af
fundinum í kirkju skammt frá fund-
arstaðnum var messunni frestað
í skyndi svo kirkjugestir gæru far-
ið og virt frambjóðendurna fyr-
ir sér. Salurinn tók 8.000 manns í
sæti, en margir urðu frá að hverfa.
Með sama áframhaldi verður þess
skammt að bíða að kosningafund-
ir þeirra verði 5 til 10 sinnum fjöl-
mennari.
Þegar aðeins 2 mánuðir eru til
forsetakosninga gæti „Fellibylurinn
Sarah“ hæglega feykt John McCain
í forsetastólinn. Sarah Palin hefur
kveikt nýjan eldmóð hjá kristnu mið-
stéttarfólki af evrópskum uppruna,
en það er einmitt sá kjósendahópur
sem getur skipt sköpum í kosning-
unum. Hún er talin höfða sérstak-
lega til alþýðufólks í fylkjum á borð
við Michigan, Ohio, Pennsylvaniu,
Colorado og Montana.
Kristna hægrið
Í forkosningunum árið 2000
tókst George W. Bush að fá „kristna
hægrið“ til að styðja sig gegn John
McCain og nú virðist sem Sarah Pal-
in sé að ná til þeirra hópa í þágu for-
setaframboðsins. Siðferðileg afstaða
hennar, til dæmis gegn frjálsum fóst-
ureyðingum, áhersla á kristna trú og
þjóðhollustu, höfðar til íbúa í sveit-
um, smærri borgum og bæjum út um
öll Bandaríkin. Stefna hennar í um-
hverfismálum og orkumálum á mik-
inn hljómgrunn meðal íbúa í fylkjum
þar sem eru miklar náttúruauðlindir
og möguleikar á aukinni orkuvinnslu.
Afstaða hennar til dýraveiða og til
byssueignar höfðar einnig til íbúa
í ákveðnum fylkjum sem skipt geta
sköpum í kosningunum 4. nóvember.
Útgeislun og alþýðleg
En það eru ekki aðeins stefnumál
Söruh Palin sem heilla almenning,
hún hefur útlitið með sér, hefur mikla
útgeislun og fallega framkomu. Þá er
hún „ein af fjöldanum“ með fimm
börn og vandamál í heimilislífi, sem
nánast allir geta samsamað sig við.
Sautján ára dóttir hennar er ólétt og
yngsta barnið hennar, sonur sem
fæddist í apríl á þessu ári, er með
Downs-heilkennið. Slík mál hafa að-
eins aukið á vinsældir hennar.
Óvæntar vinsældir Söru Palin
hafa komið demókrötum í mikinn
vanda. Þeir hafa ákveðið að virkja
Hillary Clinton til mótvægis og mun
hún meðal annars fara í fundaher-
ferð til Flórída á næstu dögum til
að tala máli Baracks Obama, en all-
ir vita að hún hefur nýlega háð harða
og óvægna baráttu við hann og hann
sniðgekk hana við val á varaforseta-
efni. Ekki er því víst að Hillary geti
breytt miklu fyrir Obama.
Vinsælli en McCain
Sarah Palin kann á hinn bóginn
að valda John McCain vandkvæðum
líka því hún er svo miklu vinsælli en
hann. Á fundinum í Detroit í fyrradag
komst hann ekkert áfram með sína
ræðu því mannfjöldinn heimtaði að
fá að heyra meira í varaforsetaefninu
þegar hann tók til máls! Sarah, Sarah,
Sarah, hrópaði fólkið þó að hann væri
að reyna að tala. Kosturinn er samt
sá að dollararnir streyma nú loksins í
kosningasjóð repúblikana. Meira en
200 milljónir dollara höfðu safnast í
lok flokksþingsins í síðustu viku og
meira en 40 milljónir manna horfðu
á kosningaræðu Johns McCain. Það
er jafnmikill fjöldi og horfði á Barack
Obama í vikunni áður og mun meira
en stuðningsmenn Johns McCain
höfðu búist við fyrirfram.
Undirbúningur er þegar hafinn
fyrir fyrstu sjónvarpsumræður kosn-
inganna, en það eru sjónvarpskapp-
ræður á milli Söruh Palin og Jo Bid-
en, varaforsetaefnis Baracks Obama.
Kappræðurnar fara fram í lok þessa
mánaðar. Einkum lýtur undirbún-
ingur Söruh Palin að því að kynna sér
utanríkismál. Haft er eftir John Bolt-
on, en hann var um skeið sendiherra
Bush-stjórnarinnar hjá Sameinuðu
þjóðunum, að hann hefði hitt Söruh
Palin fyrir skömmu til að ræða við
hana um utanríkismálin. Hann sagði
að hún hefði komið honum þannig
fyrir sjónir að hún yrði fljót að tileinka
sér þennan málaflokk. Hann sagði að
hún væri greinilega mjög klár og vel
að sér um varnarmál, þekkti til dæm-
is loftskeytavarnir Bandaríkjanna út í
ystu æsar.
Heillar kjósendur
Samkvæmt nýjum skoðanakönn-
unum hafa 58 prósent bandarískra
kjósenda myndað sér jákvæða skoð-
un á Söruh Palin og 60 prósent kjós-
enda voru ánægð með ræðu hennar
á flokksþingi Repúblikanaflokksins.
Nú er málum svo háttað að John
McCain og Sarah Palin eru kom-
in með forskot á Barack Obama og
Joe Biden samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun Gallup og USA Today.
Í henni sögðust 50 prósent ætla að
kjósa McCain en 46 prósent lýstu
stuðningi við Obama. Talið er að
Sarah Palin eigi mikinn þátt í þessari
fylgisaukningu McCains.
Þrír menn hafa verið fundnir sek-
ir í Lundúnum um tilraun til að myrða
farþega í millilandaflugi frá Bretlandi
til Norður-Ameríku árið 2006. Ab-
dulla Ahmed Ali, Assad Sarwar og
Tanvir Hussain eru mennirnir sem
valdið hafa flugfarþegum þeim gíf-
urlegu óþægindum að nú mega þeir
ekki koma með drykkjarföng um borð
nema að uppfylltum ströngustu ör-
yggiskröfum.
Saksóknarar í Lundúnum telja
mennina hafa haft uppi ill og útsmog-
in áform um að sprengja upp farþega-
flugvélar í millilandaflugi. Mennirnir
földu sprengiefni á vökvaformi í gos-
flöskum, að því er talið er í þeim til-
gangi að sprengja upp farþegaflugvél-
ar á leið yfir Atlantshaf. Bresk yfirvöld
eru þess fullviss um að þremenning-
arnir hafi tengsl við alþjóðlegu hryðju-
verkasamtökin al-Kaída.
Mennirnir segjast vera saklaus-
ir af áformum um að sprengja upp
fjölda flugfarþega. Þeir segja ætlun
sína hafa verið að tendra sprengiefn-
ið á lykilstöðum, einungis í þeim til-
gangi að koma á framfæri pólitískum
skilaboðum. Þeir voru handteknir
í ágúst 2006, þegar lögreglan taldi
sig hafa fullvissu um að þeir væru
komnir á fremsta hlunn að hrinda
voðaverkunum í framkvæmd. Kvið-
dómur í Lundúnum gat hins vegar
ekki náð samstöðu um að mennirn-
ir hefði ætlað að stefna farþegaflugi
í voða og því voru þeir dæmdir fyr-
ir samsæri um morð. Refsing þeirra
verður ákveðin síðar. Mennirnir þrír,
og tveir að auki, játuðu að hafa átt
þátt í gerð píslarvottamyndbanda,
en þeir neituðu að hafa ætlað sér
að birta myndböndin í kjölfar sjálfs-
morðsárásar.
Þrír menn sagðir hafa ætlað að fela sprengiefni í gosflöskum í millilandaflugi:
Mennirnir sem breyttu farþegaflugi
Sarah Palin hefur kveikt nýjan eldmóð hjá kristnu
miðstéttarfólki af evrópskum uppruna, en það er
einmitt sá kjósendahópur sem getur skipt sköpum
í kosningunum.
Meintir hryðjuverkamenn Frá vinstri: abdulla ahmed ali, assad sarwar og tanvir
Hussain.
Sarah Palin vekur mikla athygli á kosningaferðalögum og skýst á toppinn í
bandarískum stjórnmálum. Henni er eignaður heiðurinn af því að John
McCain mælist nú með meira fylgi en Barack Obama. Vandi McCains er hins
vegar sá að hann er sjálfur kominn í skuggann af varaforsetaefni sínu.
BrynJólfur Þór GuðMundSSOn
fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is
Í farþegasætinu Vinsældir
söruh mcCain eru það miklar að
nú heyrast þær raddir að
varaforsetaefnið kunni að skyggja
á forsetaefnið john mcCain.