Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Síða 14
Þegar Svarthöfði vill taka púlsinn á þjóðarsálinni veit hann hvert á að fara. Hann fer ekki í miðborg Reykja-
víkur, þaðan af síður í Kringluna,
hvað þá út í sveit og hlustar ekki á
Rás 2. Nei, það er bara einn staður
þar sem hann getur beintengst þjóð-
arandanum og fengið hann beint
í æð. Það er hið svokallaða Barna-
land.
Á spjallsvæði barnaland.is eru yfirleitt ekki stofnað-ar færri en tvær umræður á mínútu. Þar er allt rætt
milli himins og jarðar. Tilfinningin
sem Svarthöfði fær þegar hann fer
þangað inn er eins og þegar hann
sat sem ungur drengur á kné móður
sinnar þegar „kerlingarnar“ voru í
heimsókn. Þar kynntist hann nýjum
heimi, heyrði um verðbólgu, háls-
bólgu, sinaskeiðabólgu, uppskrift-
ir, skólamál, pólitík og allt annað.
Stundum var hinn ungi Svarthöfði
hins vegar beðinn um að fara inn í
herbergi að leika sér. Þá vissi hann
að ræða ætti eitthvað sem hann
mætti alls ekki heyra.
Barnalandsmæður eru gríð-arlega sterkur þrýstihóp-ur í samfélaginu. Því er nauðsynlegt fyrir yfirvöld
og fyrirtæki að kanna hug þeirra
áður en miklar ákvarðanir eru
teknar. Árni Johnsen, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, nýtur vaxandi
vinsælda hjá Barnalandsmæðr-
um í kjölfar þess að hann hjálpaði
lömuðum bónda að endurheimta
tæki sín. Þær eru hins vegar klofnar
yfir Ómari Ragnarssyni, formanni
Íslandshreyfingarinnar. Einhverjar
þeirra telja hann ofsóknaróðan eða
elliæran, þar sem hann telur sig hafa
verið hleraður, en aðrar trúa á hann.
Á Barnalandi má greina stuðning
þjóðarinnar við Ómar í hnotskurn.
Sumir einfaldlega trúa því ekki
að hann sé nógu merkilegur til
að vera hleraður. Niðurstaða
umræðunnar var sú að það
væri allt eins
líklegt að
Ómar hefði verið hleraður, út frá því
að hann hefur látið til sín taka í um-
hverfismálum.
Á Barnalandi er talið fullvíst að O.J. Simpson hafi drep-ið konuna sína. Leikkon-an Keira Knightley er alltof
mjó og með persónuleika á við baun.
Ólafur Ragnar Grímsson er æðis-
lega sjarmerandi með fullkomið hár.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir átti
ekki að fara í annað skipti til Peking á
kostnað ríkisins.
Barnaland er vígvöllur ímyndarstríða. Það er besti mælikvarðinn á ímynd fólks og fyrirtækja. Mæðurnar eru
nafnlausar og ræða hlutina jafnhisp-
urslaust og í eldhúsinu heima. Sumar
umræðurnar fá Svarthöfða hins
vegar til að endurmeta æsku
sína og móður. Þegar hann
lúrir, eins og fluga á eld-
húsveggnum, fær hann
að heyra allt sem
rætt er um. Nú er
engin móðir lengur
til að senda hann
inn í herbergi að
leika þegar um-
ræðurnar
komast á
alvarlegt
stig. Og
sumar
umræð-
urnar
eru algerlega brjálæðislegar fyrir sak-
lausa drengi og fágaða menn.
Nýverið las Svarthöfði tilfinn-ingaþrungna uppljóstrun móður sem sagðist vera skotin í kvenkyns, en var
ekki viss um að það væri í lagi, því
viðfangsefni hrifningar hennar væri
mun yngri. Auk þess sem það yrði
erfitt að útskýra þetta fyrir börnun-
um. Hinar mæðurnar á Barnalandi
eggjuðu ringluðu móðurina til afreka
á ótroðinni slóð.
Svarthöfði getur aldrei vitað hvað kerlingarnar ræddu í eldhúsi móður hans þegar hann hafði verið sendur að
leika. Nú hefur ímyndun hans hins
vegar úr nógu að moða,
og óhætt er að segja
að þessi askja
Pandóru hefði
betur hald-
ist lokuð.
þriðjudagur 9. september 200814 Umræða
Brjálað Barnaland
svarthöfði
jón TrausTi reynisson riTsTjóri skrifar. Hún ætti að fagna vatnsorkuverum og opna augun fyrir sóknarfærunum
Firrtir umhverfissinnar
Leiðari
Besta leiðin til að umhverfisvernd nái fram að ganga er að hún sé fjárhagslega sjálfbær. Hún þarf að geta lifað af í samkeppn-isumhverfi til lengri tíma. Sú umhverfisvernd sem Þórunn
Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra berst fyrir, að því er virðist við
lítinn stuðning samherja sinna í ríkisstjórn, er ekki fjárhagslega sjálf-
bær.
Það er nauðsynlegt að horfa á umhverfisvernd í víðara samhengi.
Alltof margir koma óorði á umhverfisvernd með því að þverskallast
við að viðurkenna fjárhagslegan raunveruleika. Fyrir þingkosn-
ingar lagði Ómar Ragnarsson til að hætt yrði framkvæmdum við
Kárahnjúkavirkjun og virkjunin sjálf gerð að sigurboga, sem
ferðamenn myndu flykkjast að til að berja augum. Til að toppa
allt vildi hann breyta frárennslisgöngunum frá virkjuninni í
maraþonbraut.
Margir umhverfissinnar á Íslandi hafa verið svo firrtir hagfræði-
legum raunveruleika að þeir koma óorði á umhverfis-
vernd. Þeir leggja stein í götu sjálfbærrar þróunar. Það
er varla til sú orka í heiminum sem er náttúruvænni
en vatnsorka. Og það eru fáir málmar í heiminum
sem er hollari umhverfinu í heildrænu samhengi en
álið. Ál er nauðsynlegt umhverfisvernd, því notk-
un þess í farartækjum léttir þau og gerir kleift að
knýja þau með minni brennslu eldsneytis en ella.
Virkjanir og álver sem barist er gegn hérlendis undir merkjum um-
hverfisverndar eru í raun að miklu leyti umhverfisvæn fyrirbæri þeg-
ar horft er til allra hliða. Ef við berjumst gegn því að auðlindir landsins
verði nýttar á sjálfbæran hátt er viðbúið að fjárhagslegur raunveru-
leiki blasi við okkur að endingu, auk þess sem umhverfisverndars-
innar munu reka sig á að álið verður framleitt annars staðar og þá
með kolaorku.
Umhverfisráðherrann okkar er á móti uppistöðulónum á hálendi
Íslands. Hún ætti að fagna vatnsorkuverum og opna augun fyr-
ir sóknarfærunum sem felast í sjálfbærri orku. Það segir sína
sögu að það eru forseti Íslands og iðnaðarráðherrann, en ekki
umhverfisráðherrann, sem berjast hvað helst fyrir raunveru-
legum hagsmunamálum í umhverfisvernd, eins og sjálfbærum
bílaflota, jarðorku og vatnsorku.
Umhverfisráðherrann leggur mikla áherslu á umhverfismat fyr-
ir framkvæmdir, sem verður að teljast heilbrigð áhersla.
Hins vegar er það stórskaði fyrir efnahagslífið að er-
lendir aðilar skuli hrökklast frá landinu vegna þess
hve langan tíma það tekur að klára slíkt mat. Við
megum ekki við þjóðhagslega ósjálfbærri um-
hverfisstefnu, bæði vegna stöðunnar í efna-
hagsmálum og vegna þeirrar umhverfisvár
sem blasir við heimsbyggðinni.
spurningin
„Það bara fer eftir
því hvað árin
verða mörg, en
kannski væri það
frekar hlýtt
viðmót.“ Árni
Johnsen
alþingismaður
krefst fimm
milljóna króna í
bætur fyrir
ummæli Agnesar Bragadóttur þar
sem hún kallaði hann glæpamann og
stórslys í þættinum Í bítið á bylgjunni.
Hvað myndi árni
kosTa allur?
sandkorn
n Óvissan um það hver tekur við
Landsvirkjun af Friðrik Sophus-
syni er algjör þótt aðeins séu ör-
fáar vikur þar til nýr forstjóri tekur
við. Nokkur uggur er uppi um að
enn ein pólitíska ráðningin líti
dagsins ljós
og Vilhjálm-
ur Þ. Vil-
hjálmsson,
fyrrverandi
borgarstjóri,
verði ráð-
inn. Aðrir
sem nefndir
eru til sögu
eru Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbankans, og
Edda Rós Karlsdóttir, yfir-
maður greiningardeildar sama
banka. Þá hefur nafn Þorsteins
Pálssonar, ritstjóra Fréttablaðs-
ins, borið á góma. Líklegt er að
ráðning forstjórans verði á fag-
legum grunni þar sem annað
myndi skapa gríðarlega ólgu sem
Sjálfstæðisflokkurinn má ekki við
þessa dagana.
n Edda Rós Karlsdóttir kemur
af fjöllum varðandi meinta um-
sókn. Hún var á kafi í heimil-
isverkum þegar nafn hennar
dúkkaði upp í útvarpi varðandi
stöðuna hjá Landsvirkjun. Hvort
það varð til þess að hún sendi inn
umsókn liggur ekki fyrir. En Edda
er af mörgum talin einkar hæf til
að takast á við verkefnið og víst er
að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
yrði hæstánægð með það lóð á
vogar jafnréttis að fá konu til að
stýra þessu eina stærsta fyrirtæki
landsins.
n Flugríkir Rússar eru orðnir tíðir
gestir á Íslandi eftir að Kaninn
hvarf á braut og skildi landið eftir
óvarið. Hver
einkaþotan
af annarri
svífur til Ís-
lands með
olíugarka og
fylgdarlið
innanlands.
Meðal þeirra
sem komið
hafa hingað reglulega er Roman
Abramovitsj, eigandi Chelsea.
Aðrir stærri eru einnig hér á ferð
eða væntanlegir, svo sem Pútín
sjálfur. Áhugi Rússa beinist að
orkulindum Íslendinga og þeir
vilja greinilega verða sverð og
skjöldur Íslendinga.
n Árni Johnsen alþingismaður
er á miklu flugi þessa dagana.
Milli þess sem hann undirbýr
málsókn á hendur blaðamanni
Morgunblaðsins kemur hann frítt
fram við hin-
ar og þessar
athafnir
eins og fram
kom í viðtali
hjá Sverri
Stormsker á
Útvarpi Sögu
þar sem
fram kom að
hann tekur aldrei krónu fyrir að
koma fram á skemmtunum. Árni
eignaðist hug og hjarta Vestfirð-
inga þegar hann stóð fyrir söfnun
vegna vörslusviptingar landbún-
aðarvéla Ástþórs Skúlasonar,
lamaða bóndans á Rauðasandi.
Ástþór fékk vélar sínar aftur og
náði að ljúka við heyskap.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
áskriftarsÍmi: 512 7080, auglýsingar: 512 70 40.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Þetta var alla-
vega fólk. Eitur-
lyfjaneytendur
og menn sem
höfðu framið stórglæp.“
n Fannar Gunnlaugsson um það fólk sem hann
mátti dúsa með í fangelsi í Bandaríkjunum fyrir
að skila inn umsókn um græna kortið tveimur
dögum of seint. - DV
„Í lokin tök-
umst við í
hendur, fáum
okkur bjór og
allir eru ánægðir.“
n Eiður Smári um hvað hann elskar mest við
fótboltann. Að þar séu engin vandræði og að allir
séu vinir að leik loknum. - fotbolti.net
„Mér fannst í fyrsta lagi
bjánalegt að hafa ekki
farið á tónleika með henni
en vera búin að stæla
hana eins og vindurinn.“
n Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona,
um ástæðu þess að hún er að fara á tónleika með
Tinu Turner. - DV
„Þetta var í raun
eins og að spila
handbolta í
gufuklefa.“
n Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, um
aðstæður þegar liðið lék gegn Cyprus Collage um
þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. - Fréttablaðið
„Ég verð ekkert hlaupandi
um á hjólabuxunum með
gúrku í nærbuxunum eins
og Axl.“
n Fyrrverandi Idol-stjarnan
Snorri Snorrason sem ætlar
að túra um landið og syngja lög
með ræflarokkaranum Axl Rose.
- Fréttablaðið
bókstafLega