Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Side 15
þriðjudagur 9. september 2008 15Umræða
Síðasti þátturinn í sápuóperunni
„Borgarstjórn í hers höndum“ virðist
vera hafinn. Spurningin er hvort nýj-
asti meirihlutinn nær að klára verk-
efnið þar sem það virðist vera aðal-
málið að höggva mann og annan.
Það sárasta fyrir gamlan sjálfstæðis-
mann eins og mig er að sjá ungling-
ana í borgarstjórnarflokki sjálfstæðis-
manna í Reykjavík klúðra svona fylgi
flokksins í Reykjavík, sem áður var
sterkasta vígið, sem farið er að hafa
áhrif á fylgi flokksins utan höfuðborg-
arsvæðisins einnig. Klaufagangur-
inn í sambandi við REI/GGE-
málið er
dæmigerður og ég er hræddur um að
sjálfstæðismenn í Reykjavík verði að
endurskoða allt samskiptakerfi sitt
bæði við stuðningsmenn flokksins og
embættismenn í borgarkerfinu.
Þess sjást nú merki að menn eru
farnir að flýja vettvanginn þar sem
Gísli Marteinn, sem var höfuðpaur-
inn í REI-klúðrinu, ætlar að fara til
náms erlendis til þess að læra til borg-
arfulltrúa.
Gott hjá
þér,
Gísli,
þó
fyrr
hefði verið. Þetta minnir á það þegar
Jón Baldvin hélt utan til að læra til for-
sætisráðherra. Vonandi gengur Gísla
Marteini betur.
Það er þó lán í óláni að nýi borg-
arstjórinn í REIkjavík er Hafnfirðing-
ur og vonandi tekst Hönnu Birnu að
rétta skútuna af. REIkvíkingar geta
nefnilega lært ýmislegt af Hafnfirð-
ingum, til dæmis hvernig á að stjórna
sveitarfélagi. Við kunnum til dæmis
að stjórna hafnarmálum, umhverfis-
málum, skipulagsmálum og það sem
ef til vill er mikilvægast - orkumálum.
Svo eigum við líka flugvöll, Hamra-
nesflugvöll, vígðan 4. júní 1988 af þá-
verandi samgönguráðherra, Hafn-
firðingnum Matthíasi Á. Mathiesen,
og okkur datt auðvitað ekki í hug að
setja hann (flugvöllinn) niður
við endann á Lækjargöt-
unni, eins og REIkvíking-
ar, heldur utan við bæ í
hrauninu sunnan Hafn-
arfjarðar.
Ég hef áður bent
REIkvíkingum á það
að þeir eiga gott flug-
vallarstæði í Geldinga-
nesinu, en þá
verða þeir líka að gera Sundabrautina
almennilega úr garði og setja hana í
stokk. Það sárgrætilegasta við þessa
hörmungarsögu er sú staðreynd að
einu borgarfulltrúarnir sem geta lyft
höfðinu hátt og með sæmd eru full-
trúar Framsóknarflokksins, þeir Björn
Ingi Hrafnsson og varamaður hans
hinn óþekkti Óskar Bergsson sem
staðið hefur sig með miklum ágæt-
um og er nú vísast orðinn bjargvættur
Sjálfstæðisflokksins í REIkjavík.
Ég óska sjálfstæðismönnum í
REIkjavík, þessum fáu sem eftir eru,
til hamingju með nýja meirihlutann
og vona að þeim
gangi allt í
haginn það
sem eftir er
kjörtíma-
bils-
ins.
Hver er maðurinn?
„sonja sigurðardóttir sundkona.“
Hvað drífur þig áfram?
„Hugarfarið drífur mig áfram.“
Uppáhaldsstaður úr æsku?
„suður-afríka. Ég hef einu sinni
komið þangað. það var frábært.“
Hvað gleður þig mest?
„að komast áfram í lífinu.“
Hvenær byrjaðir þú að æfa
sund?
„Ég var sjö ára gömul.“
Var þetta þín stærsta
stund í sundinu?
„já, hún var það. það var þó líka
gaman að keppa á Opna breska,
Opna þýska og Opna danska sem
eru allt meistaramót.“
Hvert stefnir þú?
„Ég stefni á Ólympíuleikana í London
2012.“
Er góður andi í íslenska
ólympíuhópnum?
„já. Hann er mjög góður. alveg
frábær.“
Hvernig eru aðstæður fyrir
fatlaða á leikunum?
„aðstæðurnar eru bara frábærar.
Nema reyndar gólfið á leikvanginum.
það var allt fullt af snúrum.“
Mættu Íslendingar taka Kínverja
til fyrirmyndar í þeim málum?
„já. það mætti bæta aðgengið
almennt fyrir hjólastóla á Íslandi.“
Eitthvað sérstakt sem þú
ætlar að gera í Kína?
„Ég ætla að skoða Kínamúrinn. síðan
ætla ég líka í bæinn að skoða og kíkja
í búðir.“
Hvað er á döfinni hjá þér?
það er smá sumarfrí þegar ég kem
heim og svo bara halda áfram á fullu
í skólanum.“
Ó REIkjavík, ó REIkjavík
MEð lÍfið Í lúKUnUM Nokkurra daga gamlir pönduhúnar komast fyrir í lófa starfsmanns á Chengdu-rannsóknarstöðinni í Kína þar sem risapöndur eru ræktaðar með
aðstoð gervifrjóvgunar. þeim er síðan sleppt út í náttúruna þegar þær stækka í því skyni að sporna við gífurlegri fækkun risapandna. MYnD DV / GEttY
Ætlar þú að ferðast í vetur?
„geri ekki ráð fyrir því, ekkert planað
að minnsta kosti.“
Jón Karl HallDórsson
33 ára vaKtaviNNumaður
„Nei, kannski um jólin.“
aricK PlUto
31 árs starfsmaður Hjá ÍstaK
„býst ekki við því, ég ferðast á sumrin
aðallega.“
særún inGiMUnDarDóttir
48 ára afgreiðsLuKONa
„já, ég ætla til englands í frí.“
finnUr ósKarsson
64 ára starfsmaður á pLaNi
Dómstóll götunnar
„já, það getur verið, ætla líklegast til
flórída um páskana.“
Árni ÞorstEinsson
32 ára söLumaður
kJallarI
mynDIn
sonJa siGUrðarDóttir
stóð sig frábærlega í 50 metra
baksundi í vatnsteningnum víðfræga
í peking á Ólympíumóti fatlaðra.
sonja synti á sínum besta tíma í tvö
ár en missti því miður af sæti í
úrslitum þrátt fyrir gott sund. Hún
segir andann í íslenska hópnum
frábæran og ætlar að skoða
Kínamúrinn áður en heim verður
haldið.
Stefni á Ólympíu-
leikana 2012
maður DagsIns
MYnD ifsPort.is
HErMann
Þórðarson
fyrrverandi flugumferðar-
stjóri skrifar
„Þetta minnir á það
þegar Jón Baldvin
hélt utan til að læra
til forsætisráðherra.“