Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Síða 17
Íslenska landsliðið í körfubolta hef-
ur leik í B-deild Evrópukeppninnar á
morgun. Liðið mætir þá Danmörku í
fyrsta leik sínum í riðlinum í Laug-
ardalshöll klukkan 20.45. Tímasetn-
ingin er ekki sú besta, hvorki fyrir
áhorfendur með fjölskyldur né fjöl-
miðla en það er lítið sem KKÍ getur
gert í því. Leikurinn fer fram sama
dag og karlalandsliðið mætir Skot-
um á Laugardalsvelli.
„Evrópska körfuknattleikssam-
bandið vill eðlilega ekki vera að
hliðra til leikjum frekar en knatt-
spyrnusamböndin. Við áttum okk-
ur á að þetta er ekki besti tíminn,
hvorki fyrir áhorfendur né fjölmiðla,
en við vonum að sem flestir geti
mætt. Þessi dagur er alþjóðlegur
leikdagur bæði í körfubolta og fót-
bolta. Síðustu ár hefur fólk mætt
beint af Laugardalsvellinum og inn
í Höll til okkar. Við vonum að fram-
hald verði á því,“ sagði Hannes Jóns-
son, formaður KKÍ, á blaðamanna-
fundi í gær.
Ekkert B neitt
„Þetta er engin B-keppni neitt. Í
þessari deild eru mörg sterk lið og
samkeppnin er mikil. Það er lagt al-
veg jafnmikið í B-deildina og A svo
það sé alveg á hreinu,“ sagði Sigurð-
ur Ingimundarson landsliðsþjálfari
ákveðinn í gær. Með Íslendingum
eru í riðli Danir, Austurríkismenn og
Svartfellingar sem eru taldir langs-
igurstranglegastir. Þetta er í fyrsta
skipti sem þeir keppa undir eigin
merkjum.
„Fyrirfram er talið að það sé forms-
atriði fyrir Svartfjallaland að klára
þennan riðil og eðlilega þar sem
þeir eru með besta mannskapinn.
Þeir fengu samt eflaust smá sjokk
þegar þeir unnu Hollendinga að-
eins með sjö stigum og þurftu mik-
ið að hafa fyrir þeim sigri. Austur-
ríkismenn unnu Dani um daginn og
það skal enginn vanmeta þá. Fyrsti
leikurinn gegn Dönum er algjör lyk-
illeikur fyrir okkur upp á framhald-
ið og við munum leggja mikið í að
vinna þann leik,“ sagði Sigurður.
Klárlega litla liðið
Þessi fjögurra leikja hrina er háð
á 10 dögum. Svo er seinni umferð-
in leikin á sama tíma eftir eitt ár en
tvö efstu liðin í riðlinum komast
upp í A-deild. Þetta er í fyrsta skiptið
í langan tíma sem besti körfuknatt-
leiksmaður landsins, Jón Arnór Stef-
ánsson, tekur þátt í öllum leikjum Ís-
lands í keppninni. „Vá, ég man ekki
einu sinni hvað það er langt síðan ég
náði heilli keppni,“ sagði Jón Arnór
við DV í gær og lýsti um leið ánægju
sinni með að geta klárað heilt verk-
efni með landsliðið. Hann tekur í
sama streng og þjálfarinn með fyrsta
leikinn gegn Dönum.
„Það þarf ekkert að fara í grafgöt-
ur með það að við erum litla liðið í
þessum riðli. Fyrsti leikurinn verð-
ur mjög mikilvægur fyrir okkur til að
fá sjálfstraust í hina leikina. Danir
og Austurríkismenn eru lið sem við
getum horft til sigurs gegn bæði hér
úti og heima. Svartfjallaland og Hol-
land eru meira sigrar sem við vær-
um að stela. Það sem við þurfum að
fá upp í öllum leikjum er mikil bar-
átta, góð hittni og þessi íslenska leik-
gleði,“ sagði Jón Arnór við DV í gær.
þriðjudagur 9. september 2008 17Sport
Sport SíðaSti lEiKur u21 undir 21 árs landslið Íslands leikur síðasta leik sinn í undankeppni evrópumótsins 2009 gegn slóvakíu á Víkingsvelli klukkan 17 í dag. Ísland tapaði á föstudaginn fyrir austurríki ytra, 1-0, og situr í 4. og næstsíðasta sæti riðilsins með sex stig ásamt Kýpur. strákarnir hafa aðeins unnið einn leik af sjö hingað til, gegn belgum ytra, 1-2. austurríki er langefst í riðlinum með 20 stig en á eftir þeim koma slóvakar með 9, belgía með 8 og Ísland og Kýpur reka lestina með 6 stig.
Karlalandsliðið í körfubolta hefur keppni í B-deild Evrópumótsins annað kvöld klukkan
20.45 í Laugardalshöll. Ísland mætir þar Danmörku en liðin hafa skipt sigrum jafnt á
milli sín í leikjum innbyrðis. „Fyrsti leikurinn er mjög mikilvægur,“ segja þjálfarinn
Sigurður ingimundarson og stórstjarnan Jón arnór Stefánsson.
alls engin
b-k ppni
Það er margt sem er íslenska
landsliðinu í haginn gegn því
skoska sem við mætum á miðviku-
dagskvöldið. Eins og breskri þjóð
sæmir eru Skotar í sárum eftir tap-
ið í Makedóníu þar sem menn eru
ekki á einu máli um hvort tapið
hafi verið verðskuldað eða ekki.
Stjörnuframherji liðsins er hætt-
ur að leika undir stjórn þjálfarans,
annar er tæpur vegna meiðsla og
þjálfarinn gefur ekkert út á hvort
sigur gegn Íslandi sé nauðsyn.
Mörgum breskum blöðum
fannst lítið koma til leiks Skot-
lands gegn Makedóníu í fyrsta leik
þess í riðlinum þar sem það tapaði
1-0. Markið skoruðu heimamenn
strax í byrjun leiks. Þjálfari liðs-
ins, George Burley, sagði: „Við vor-
um ekki góðir í fyrri hálfleik og við
ræddum það inni í hálfleiknum. Í
seinni hálfleik vorum við miklum
mun betri og þá frammistöðu vil
ég sjá gegn Íslandi á miðvikudag-
inn.“ Hann komst hjá því að svara
spurningu eins blaðamannsins
um hvort sigur gegn Íslandi væri
algjör nauðsyn með því að segja
takmark þeirra um að ná 17 stig-
um vera enn mögulegt.
Trúin er ekki mikil á skoska liðið
sem var aðeins hársbreidd frá því
að komast á Evrópumótið í sumar
upp úr gífurlega erfiðum riðli með
Frakklandi og Ítalíu. Það er stutt
á milli hláturs og gráts í bresk-
um fótbolta og trúin á þjálfarann,
George Burley, hefur minnkar. Lee
McCulloch, framherji liðsins, er
hættur að leika undir stjórn Bur-
leys og búast skoskir miðlar við að
fleiri fylgi í kjölfarið. Sérstaklega
ef úrslitin gegn Íslandi verða ekki
góð. Það er sigur og ekkert annað.
Þá er Kenny Miller, framherji Celt-
ic, tæpur vegna meiðsla og hefur
U21 árs framherjinn Steven Flet-
cher verið kallaður í hans stað.
Skoska knattspyrnusamband-
ið reynir hvað það getur að beina
athyglinni að umgjörð Makedóna
sem hleyptu ekki þúsund stuðn-
ingsmönnum Skota inn á völl-
inn þó þeir hefðu miða. Það er
þó nokkuð ljóst að skoskir blaða-
menn munu ekkert spyrja um það
þegar Burley situr fyrir svörum á
blaðamannafundi í dag.
tomas@dv.is
Einn framherji hættur, einn tæpur og trúin ekki mikil á skoska liðið:
ÓLGA Í SKOSKU HERBÚÐUNUM
SONJa SYNti VEl
sundkonan sonja sigurðardóttir
synti á sínum besta tíma í tvö ár,
57,90 sekúndum, í 50 metra sundi á
Ólympíumóti fatlaðra í peking í
gærmorgun. tíminn dugði sonju
ekki í átta manna úrslit en hún varð
tíunda af fjórtán keppendum. sonja
sagði eftir sundið að þó takmark
hennar hefði ekki náðst, sem var að
komast í úrslit, væri hún nú strax
farin að huga Ólympíumótinu í Lond-
on 2012. „það eru minna en 1.500
dagar þangað til svo það er ekki
seinna vænna að fara að undirbúa
sig fyrir það,“ sagði sonja.
BraDY EKKi
MEira MEð
Verðmætasti leikmaður NFL-
deildarinnar, leikstjórnandi New
england patriots tom brady, meiddist
í fyrsta leik liðsins á sunnudaginn og
verður ekki meira með í ár. Kald-
hæðni örlaganna er sú að brady hefur
átt við meiðsli að stríða í hægra hné
en fékk mikinn skell á það vinstra í
leik gegn Kansas City Chiefs sem
orsakaði meiðslin. brady leiddi
patriots til fullkomins tímabils í fyrra
þar sem það tapaði ekki leik í
deildarkeppninni en tapaði þó
úrslitaleiknum, super bowl, fyrir New
York giants. patriots vann leikinn
gegn Kansas 17-10 þar sem
varaleikstjórnandinn matt Cassel
lagði upp eitt snertimark.
KalDar KVEðJur
til HYYPia
Finnski varnarmaðurinn hjá
Liverpool, sami Hyypia, er ekki í 25
manna hóp Liverpool sem hefur
þátttökurétt í meistaradeild evrópu.
Kemur þetta mikið á óvart þar sem í
hópnum eru leikmenn sem munu
líklega aldrei spila og Hyypia hefur
verið fastamaður í liðinu undanfarin
ár. reglur meistaradeildinnar kveða
á um að átta uppaldir leikmenn
verði að vera í hópnum. Hyypia
byrjaði fyrsta leik Liverpool á
tímabilinu í sigurleik gegn
sunderland, 1-0, en slóvakinn
martin skrtel tók stöðu hans eftir
það. benitez hefur því úr að velja
þeim Carragher, skrtel og dananum
daniel agger sem er allur að ná sér
eftir meiðsli.
tÓMaS ÞÓr ÞÓrðarSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
George Burley það er farið að
hitna undir honum.
Þjálfarinn og fylgdarlið sigurður
ingimundarson landsliðsþjálfari við hlið
Hannesar jónssonar formanns KKÍ
Klárar keppnina jón
arnór stefánsson
verður með Íslandi í
öllum leikjunum.