Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Blaðsíða 19
þriðjudagur 9. september 2008 19Sviðsljós
Silfurtilboð í september
Andlitsbað: kr. 5000,–
Líkamsnudd: kr. 4900,–
Litun og plokkun: kr. 2800,–
L a u g a v e g u r 6 6 , 2 . h . S í m i 5 5 2 2 4 6 0
S N Y R T I S T O F A N
Gildir til 15. sept.
Töff Tvíeyki
á Tískusýningu
Lindsay Lohan og Samantha Ronson voru sætar saman á
tískusýningu systur Samönthu á laugardagsmorguninn.
Samantha Ronson og Lindsay Lo-
han mættu galvaskar á tískuvikuna í
New York á laugardagsmorguninn til
að fylgjast með tískusýningu Char-
lotte Ronson, systur Samönthu. Char-
lotte sýndi vorlínu sína og sátu stelp-
urnar sætar og svalar í fremstu röð.
Ljósmyndarar flykktust að stelpun-
um og þustu hreinlega framhjá öðr-
um stjörnum líkt og Sean Lennon.
Lohan skartaði níðþröngum
og kynþokkafullum kjól sem var
renndur í bakið og bláum skóm við.
Ronson aftur á móti var ekkert að
skella sér í sparikjólinn fyrir syst-
ur sína heldur rokkaði bara feitt í
svörtum stuttermabol og vesti við
gráar niðurþröngar buxur. Þrátt fyr-
ir að sjást yfirleitt með hatt á höfð-
inu skildi Ronson hann eftir heima í
þetta skiptið og sýndi í staðinn nýja
strákakollinn sinn.
Með rennilás á bakinu
Lindsay var sjóðandi heit í
níðþröngum kjól með
rennilás í bakið.
Í fylgd öryggisvarða
Ljósmyndarar flykktust í
kringum stelpurnar sem
fengu fylgd öryggisvarða
inn á tískusýninguna.
Full aðdáunar Lindsay horfir hér full
aðdáunar á samönthu sína meðan hún
tekur mynd fyrir sessunaut þeirra á
sýningunni.
Kærustupar eða ekki? Lindsay og
samantha líta út fyrir að vera eins og
hvert annað kærustupar þrátt fyrir að
hafa aldrei viljað viðurkenna
samband sitt.
fríða
og Dýrið
Evan Rachel Wood og Mickey
Rourke knúsuðust í Feneyjum:
Evan Rachel Wood virðist laðast að ófríðum eldri mönn-
um en þessi unga fagra stúlka er sem kunnugt er kærasta
Marilyn Manson og unir sér hér vel við að knúsa Mick-
ey Rourke í Feneyjum.
Rourke og Wood leika
saman í myndinni The
Wrestler og léku á als
oddi á rauða dreglinum
á kvikmyndahátíðinni í
Feneyjum á dögunum.
Rourke var ófeiminn
við að smella kossum á
hálsinn á Wood og voru
margir sem höfðu orð
á því að hér væri um að
ræða eins konar Fríðu
og Dýrið myndatöku.
The Wrestler hefur
fengið gríðargóðar við-
tökur og hlaut meðal
annars Gullna ljónið á
Feneyjahátíðinni fyrir
bestu myndina.
Glæsileg í grænu
evan rachel var glæsileg
að vanda en mickey var
hálfsjúskaður greyið.
Koss á hálsinn
rourke var ófeiminn við að smella
kossi á hálsinn hennar evan.
Sjúskaður með sígó mickey
rourke ku sýna stórleik í the
Wrestler en var töffaralegur og
nett sjúskaður að vanda í
Feneyjum.
Áhugasamar um
tískuna Lindsay og
samantha fylgdust af
áhuga með vorlínu
Charlotte ronson.
keira komin
með lífvörð
Keira Knightley hefur ráðið sér lífvörð eftir að hafa verið áreitt á
götum úti. Leikkonan varð mjög skelkuð eftir að vegfarandi hoppaði í
veg fyrir hana og öskraði á hana mjög dónalegum orðum nálægt heim-
ili hennar í Richmond í London. Hin tuttugu og þriggja ára gamla leik-
kona eyddi mestöllum tímanum í eftirpartíi frumsýningar The Duchess
í einkaherbergi þar sem hún óttaðist svo mjög um eigið öryggi. Kærasti
leikkonunnar, Rubert Friend, kom að sjálfsögðu með á frumsýninguna
og mátti að sögn sjónvarvotta ekki víkja frá Keiru allt kvöldið.