Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Síða 20
þriðjudagur 9. september 200820 Fókus
Circus AgorA hefur víst skemmt fólki
um 20 ára skeið og í ljósi þess hversu
miklu yngri Jan Ketil Smørdal er á
heimasíðu fjölleikahússins en hann
er í raun og veru er ekki ástæða til
að efa það. Annars verður að viður-
kennast að sumt það á síðunni, sem
kann að draga fólk í Circus AgorA,
reynist ekki vera til staðar þegar á
hólminn er komið. En því er ekki að
neita að Smørdal og félagar bjóða
upp á hina ágætustu skemmtun.
Fjölleikahús ganga auðvitað út
á að koma ákveðnum atriðum fyr-
ir, trúðunum, loftfimleikafólkinu,
manneskjunni sem getur teygt lík-
amann á óskiljanlega vegu og þar
fram eftir götunum. Og þó þetta
form bjóði ekki upp á mikinn frum-
leika hefur það sannað sig í tímans
rás og því aðeins hægt að fara fram á
að það sem er í boði sé vel gert.
Það er hreint með ólíkindum hvað
sumt fólk getur verið liðugt. Allavega
var það svo að ungfrú Christina gat
fett sig og brett á svo ólíklega vegu
að því verður vart lýst með orðum.
Kannski er nóg að segja að undirrit-
aðan og í það minnsta einn annan
áhorfanda verkjaði hálfpartinn við
að horfa á hina tólf ára stúlku beygja
líkama sinn í bak og fyrir. Sennilega
á við um þetta atriði að sjón er sögu
ríkari. Samt var óneitanlega kyndugt
að horfa á stúlkuna standa á upp-
hækkun, beygja sig aftur á bak og
nota tennurnar til að ná upp blómi
sem hafði verið sett á jörðina. Og
svo að sjálfsögðu reisa sig við. Ef þú
vilt sannreyna hversu erfitt þetta
er hvet ég þig til að beygja þig aft-
ur á bak, setja hendur á gólf og lyfta
þér síðan upp. Ímyndaðu þér svo
að setja andlitið tuttugu til þrjátíu
sentímetra niður fyrir fæturna og þá
sérðu hvernig þetta er. Þetta vekur
samt spurningar um hvað er búið að
leggja á manneskju sem getur teygt
sig með þessum hætti.
Fjölleikahús geta ekki án trúða
verið, svo mikið er ljóst. Og trúðarn-
ir tveir sem skemmtu gestum stóðu
vel fyrir sínu. Annar kom fram nokk-
uð oft milli atriða og gekk grín hans
oftast nokkuð vel upp. Sumt var eins
og gefur að skilja meira fyrir börn
en fullorðna en ég hugsa að flestir
gestir hafi verið ánægðir með fram-
komu hans. Hinn trúðurinn kom
aðeins fram einu sinni en það var
líka sérlega skemmtileg framkoma.
Mr. Jumping er trúður á trampól-
íni, gengur inn í gervi drukkna loft-
fimleikamannsins sem verður loft-
hræddur þegar á hólminn er komið.
Frábær blanda af gríni og loftfim-
leikum.
En auðvitað voru engin dýr á
staðnum. Það er mínus, en óhjá-
kvæmilegt í ljósi íslenskra reglna um
innflutning á dýrum.
Það verður ekki hjá því komist að
nefna verðlagið í Circus AgorA. Það
fer ekki framhjá þeim sem kaupa
miða að verðið er tæpar fjögur þús-
und krónur fyrir fullorðna og tæp-
ar þrjú þúsund krónur fyrir börn.
Það kann að hafa haft eitthvað með
það að gera að tjaldið var pínlega
tómlegt á þrjúsýningunni síðasta
laugardag, sýningu sem hefði fyr-
irfram mátt ætla að yrði vel sótt af
fjölskyldufólki. En skemmtunin er
góð og kannski peninganna virði.
Hún var ein og hálf klukkustund að
lengd og eitt fimmtán mínútna hlé á
milli þannig að öllu er aflokið tæp-
um tveimur klukkustundum eftir að
sýningin hefst. Okrið í sjoppunni er
öllu verra. 450 krónur fyrir tiltölulega
lítinn poppskammt og heilar 250
krónur fyrir fernu af Svala er óheyri-
lega há fjárhæð. Ég kann ekki lýsing-
una á norsku en á íslensku er til gott
orð yfir þetta: okur.
Brynjólfur Þór Guðmundsson
á þ r i ð j u d e g i
Land og synir í BæjarBíói
Kvikmyndasafnið sýnir Land og syni í leikstjórn Ágústs guðmundssonar í kvöld
klukkan 20. myndin var frumsýnd árið 1980 en hún er byggð á frægri skáldsögu
IndrIða g. ÞorsteInssonar. myndin var sú fyrsta sem rataði upp á bíótjald af þeim
þremur leiknu myndum sem nýstofnaður Kvikmyndasjóður Íslands styrkti. sýningin
fer fram í bæjarbíói og kostar 500 kall.
TrÚðSLÆTi Og
LOFTFiMLeiKArnýtt frá Páli óskari
Nýtt myndband Páls Óskars við
lagið Sama hvar þú ert er komið
í spilun. Þetta er fyrsta smáskífan
af safnplötunni Silfursafnið sem
kemur út 1. nóvember. Lagið er eftir
Sigurjón Kjartansson, texti eftir Pál
Óskar og ný útsetning var unnin af
Örlygi Smára en lagið kom fyrst út
á fyrstu sólóplötu Páls Óskars, Stuð,
fyrir fimmtán árum. Myndbandið
var unnið af grafíklistamanninum
Kristjan Zaklynsky. Myndbandið er
nú sýnt á öllum íslenskum sjón-
varpsstöðvum sem sýna tónlist-
armyndbönd. Einnig er hægt að
nálgast myndbandið á Youtube og
myspace.com/palloskar.
Fés og fígúrur
Ljósmyndasýning Ellerts Grétarsson-
ar, Fés og fígúrur – kynjamyndir í ís-
lenskri náttúru, var opnuð í Fótógrafí
síðasta laugardag. Á sýningunni eru
yfir tuttugu myndir sem sýna hinar
fjölbreyttustu kynjamyndir sem orðið
hafa á vegi ljósmyndarans í göngu-
ferðum hans í íslenskri náttúru: Alls
kyns kynjaverur, tröll, skessur og
þursar, kynngimagnaðar forynjur
og margvísleg furðufés. Ellert starfar
sem ljósmyndari og blaðamaður hjá
Víkurfréttum á Suðurnesjum. Hann á
að baki fjölda einka- og samsýninga
hér heima og erlendis og hefur unnið
til alþjóðlegra verðlauna fyrir ljós-
myndir sínar.
Mýrin
í víking
Kvikmyndin Mýrin verður frum-
sýnd í Frakklandi á morgun. Á
kvikmyndavefnum logs.is kemur
fram að myndinni verði dreift í
fjörutíu eintökum á vegum Mem-
ento Films sem telst óvenju mikið
þegar um norræna mynd er að
ræða. Á vef Norræna kvikmynda-
sjóðsins er fjallað ítarlega um
málið. Baltasar Kormákur, leik-
stjóri myndarinnar, er nú staddur
í Frakklandi til að ýta henni úr
vör. Myndin verður svo frumsýnd
í Bretlandi á föstudaginn á vegum
The Works, en nýlega valdi Sund-
ay Times hana á lista sinn yfir tíu
bestu glæpamyndirnar.
Fór á Thai matstofuna við Suður-
landsbraut (bláu húsunum við Faxafen
nánar tiltekið) í hádeginu í gær. Þokka-
legt að gera, um tíu kúnnar á svæðinu.
Afgreiðslan gekk fljótt fyrir sig enda
nokkrir á vakt. Hádegistilboðið hljóðar
upp á 2 til 3 rétti að eigin vali af þeim
fjórum sem eru í borðinu. Hinir til-
nefndu réttir eru djúpsteiktar rækjur,
kjúklingavængir í súrsætri sósu, núðlur
með svínakjöti og svínakjöt í pha nang.
Ég valdi þá tvo síðastnefndu og borg-
aði fyrir það 950 krónur. Ég veit ekki
hvort sömu eigendur eigi Thaishop
matstofuna uppi á Lynghálsi en þeg-
ar ég fór þangað síðasta vetur var sami
háttur á með 2 eða 3 rétti að eigin vali.
Þá þurfti maður hins vegar að borga
150 krónum meira fyrir þá auknu fjöl-
breytni sem fólst í að kaupa sér smakk
af þremur réttum. Undarlegt svo ekki
sé meira sagt og plús í kladda matstof-
unnar við Suðurlandsbraut fyrir að
vera ekki með slíkt misrétti.
Afgreiðslustúlkan var ekki sú
brosmildasta. Svo fór hún að hlusta
á samræður samstarfsfólks síns þeg-
ar ég var í miðri setningu við að svara
hvað ég ætlaði að fá að drekka. „Bara
vatn,“ sagði ég í fálæti mínu. Engin við-
brögð. Stúlkan horfði með glennt eyru
á kollegana. Eftir 4 til 5 sekúndur leit
hún aftur á mig. „Fanta?“ „Nei, vatn.“
„Jaaaá.“
Skammturinn var veglegur. Það
veglegur að ég náði ekki að klára sem
telst til tíðinda þegar minn magi er
annars vegar. Núðlurnar voru svolítið
slepjulegar en smökkuðust mun bet-
ur en útlitið gaf til kynna. Á meðan ég
gæddi mér á matnum var gott að geta
stytt sér stundir við að horfa á veggina
og myndirnar sem þar héngu. Veggirn-
ir voru gulir og bláir með myndum af
konungi Taílands og fleira skrauti sem
minnti á heimaslóðir eigenda stað-
arins. Var því svolítið eins og maður
væri á taílenskum dögum á Akureyri
og búið væri að breyta KA-heimilinu
í skyndibitastað. Svo var líka hægt að
hafa gaman af vinkonunum þrem-
ur sem sátu við hliðina á mér. Ein
keypti sér hádegistilboð, tvær borðuðu
skammtinn og sú þriðja sá um að tala.
Mesti mótormouth sem ég hef heyrt
í, að Akureyringum meðtöldum. Bíla-
dagar hvað?
Kristján Hrafn
Guðmundsson
fór á Thai matstofuna við
Suðurlandsbraut.
Hraði: HHHHH
VEitinGar: HHHHH
Viðmót: HHHHH
umHVErfi: HHHHH
VErð: HHHHH
Veglegur skammtur
í skyndi
Leiðrétting
Kvikmyndin Reykjavík-Rotterdam í
leikstjórn Óskars Jónassonar verður
ekki frumsýnd 19. september eins
og DV greindi frá í gær heldur 3.
október.
fjölleikahús
CirCus AgorA
Leikstjóri: jan Ketil smørdal
aðalhlutverk: miss Christina, mr. jumping,
Katia, duo rubstov og fleiri.
ágætis skemmtun Fólk ætti að geta skemmt sér ágætlega á Circus agora sem verður í reykjavík næstu daga og síðan í
reykjanesbæ og á selfossi.