Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1963, Blaðsíða 15
Iðnaðarskýrslur 1960
13*
383-5
386
391-2
393-4
399
Skipasmíði og viðgerðir (bæði tréskipa og stálskipa), slippvinna
o. fl. þess háttar.
Bifreiða-, bifhjóla- og reiðhjólagerð og viðgerðir.
Bifvélavirkjun, bifreiðayfirbyggingar, reiðhjólasmíði og viðgerðir.
Aths.: Hjólbarðaviðgerðir eru í grein nr. 300.
Flugvélasmíði og viðgerðir.
Flugvélavirkjun.
Aths.: Þessari grein hefur verið sleppt árin 1951—55 í yfirlitum um slysatryggðar
vinnuvikur (sbr. töflu I).
Annar iðnaður.
Ljósmyndunar- og sjóntækjagerð.
Gleraugnasmíði.
Aths.: Þessi grein er fyrst tekin með vinnuvikuyfirlitum árin 1959 (sbr. töflu I).
Úrsmíði, úrviðgerðir, skartgripagerð og góðmálmasmíði.
Aths.: Þessi grein samsvarar nákvœmlega nr. 393-5 í fyrri skýrslum. ISIC núm-
erinu hefur aðeins verið breytt og númer 395 er nú fyrir hljóðfæragerð í stað
396 áður.
Óflokkaður iðnaður.
a. Ymiss konar plastiðnaður.
Framleiðsla einangrunarplasts, plastleikfanga, veggflísa úr
plasti, gólf- og handriðalista úr plasti, ýmiss konar húsmuna
úr plasti o. fl.
b. Burstagerð.
c. Ymislegt.
Framleiðsla rimlagluggatjalda, leikfanga (annarra en úr plasti),
flugelda, skiltagerð ýmiss konar og verksmiðjupökkun korn-
vöru, sykurvöru o. fl.
Aths.: Samkvæmt ISIC er pökkun matvöru, sem hér er um að ræða, talin
með heildsölu (nr. 611), og flugeldagerð í nr. 311, og er því hér um frávik
að ræða. Grein nr. 399 er fyrst flokkuð í þrcnnt árið 1959.
3. Skýring hugtaka og einstakra dálkafyrirsagna í töflum.
Definition of concepts and explanation of headings in tables.
í þessum kafla verða skýrð ýmis hugtök, sem notuð eru í skýrslunum, þ. á m.
í dálkafyrirsögnum í yfirlitum og töflum hér fyrir aftan.
Úrtakið (sjá töflu I).
Áður hefur verið gerð grein fyrir því, hvernig til úrtaksrannsóknarinnar var
stofnað, og hve stórt úrtakið var, miðað við iðnaðinn í heild. í 3. yfirliti og töflu II
er greint nánar frá stærð úrtaksins (þ. e. a. s. þeirra fyrirtækja í úrtakinu, sem skil-
uðu skýrslu) í einstökum iðnaðargreinum, bæði miðað við fjölda fyrirtækja og slysa-
tryggt vinnuafl. Hlutfallsleg hlutdeild úrtaksins í slysatryggðum vinnuvikum verka-
fólks og annars starfsfólks í einstökum undirgreinum iðnaðarins 1959 (úrtakshlut-
fallið) er notuð til að reikna út heildartölur greinanna í töflum III—XI og í tilsvar-
andi yfirlitum.
Ýmislegt er hægt að finna að þessari aðferð við útreikning heildartalna, en
ekki var talinn kostur á annarri betri. Þar eð yfirleitt er ekki um að ræða alveg
samkynja framleiðslustarfsemi innan hverrar undirgreinar, er vafasamt að telja
sama hlutfall vera milli vinnuvikna annars vegar og einstakra gjalda-, tekna-,
eigna- og skuldaliða hins vegar hjá fyrirtækjum í úrtakinu og öðrum fyrirtækjum.