Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1963, Síða 23

Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1963, Síða 23
Iðnaóarskýrslur 1960 21* nýs verðs, vegna þess að ferskfiskverð var breytilegt á árinu og einnig all- misjafnt eftir stöðum á landinu og fyrirtækjum, þar sem útvegsmenn og fisk- iðnaðarfyrirtæki deildu lengi um fiskverðið. Reynt hefur verið að miða við meðalfiskverð eftir gengisbreytinguna, eins og það var hjá hinum einstöku fyrirtækjum, sem létu í té skýrslu. Þá vísast til sérstakra athugasemda við slátrun og mjólkuriðnað hér fyrir aftan. 4) Beðið var um það á skýrslueyðublaðinu að færa tekjur af framleiðsluvörum og seldri þjónustu (verzlunarvörum, þar sem um þær er að ræða) til verðlags eftir efnahagsráðstafanir. Aukin hagkvæmni í innkaupum iðnaðarfyrirtækja (sbr. lið nr. 2) varð til þess, að verðlag sumra afurða þeirra hækkaði minna við efnahagsráðstafanirnar en hefði orðið, ef haldið hefði verið áfram að flytja inn sömu tegundir hráefna. Umreikningur tekjuhliðarinnar hefur því í sumum tilvikum valdið lítilli hækkun. Til þess að gera hagnað fyrirtækjanna ekki óeðlilega lítinn, var lögð mikil áherzla á að samræma hækkun kostnaðarlið- anna hækkun tekjuliðanna, eftir því sem kostur var, sbr. hð nr. 2 að framan, en hæpið er, að það hafi tekizt sem skyldi. Ekki var beðið um það á skýrslueyðu- blaðinu að umreikna leigutekjur af fasteignum, vaxtatekjur og aðrar tekjur til nýs verðlags, enda skipta þeir liðir litlu máli. Um leigutekjur gildir það sarna, sem áður hefur verið sagt um húsaleigu, og um vaxtatekjur það sama, sem sagt hefur verið um vaxtagjöld. 5) Beðið var um það á skýrslueyðublaðinu, að umreiknað væri til verðlags eftir efnahagsráðstafanir vátryggingamat bygginga, annarra fasteigna, innréttinga, véla, tækja (þ. á m. flutningatækja) og áhalda. Erfitt er að ganga úr skugga um, hvort það hefur verið gert eða ekki, en gera verður ráð fyrir, að byggingar séu jafnan færðar upp, þar sem skylt er að brunatryggja þær, og brunabóta- verðmætið fylgir hækkun vísitölu byggingarkostnaðar. Hætt er við, að um- reikningur til nýs mats á vélum og tækjum hafi ekki verið framkvæmdur af öllum, og er erfitt að sjá við því. Hins vegar hafa vörubirgðir verið umreikn- aðar til nýs verðlags, enda skyldi sá umreikningur sýndur í skýrslunni. Framleiðsluverðmœti og vinnsluvirði (sjá töflu X). Heildarverðmæti framleiddra vara (þ. á m. hálfunninna vara) hjá iðnaðarfyrir- tækjum og veittrar þjónustu, sem telst til iðnaðar samkvæmt áður nefndri flokkun atvinnulífsins, er nefnt iðnaðarframleiðsluverðmæti í skýrslum þessum (sjá 4. dálk töflu X). Söluverðmæti verzlunarvara (þ. e. vara, sem eru seldar í sama ástandi og þær voru keyptar) hjá iðnaðarfyrirtækjum og tekjur af leigu fasteigna og ýmissi veittri þjónustu, sem ekki telst til iðnaðar, er nefnt annað framleiðsluverðmæti (sjá 5. dálk töflu X). Ætlunin var, að þessar skýrslur næðu aðeins yfir iðnaðarstarfsemi þeirra fyrir- tækja, sem stunda iðnað aðallega, en annarri starfsemi þeirra skyldi sleppt, nema aðgreining væri ekki möguleg. í samræmi við það hafa flest úrtaksfyrirtækin aðeins tahð fram iðnaðarframleiðsluverðmæti, en annað framleiðsluverðmæti kemur aðeins fram á skýrslum þeirra fyrirtækja, sem hafa ekki treyst sér til að grcina kostnaðar- liði við verzlun, leigu fasteigna o. þ. h. frá kostnaði við hina eiginlegu iðnaðarstarf- semi, þótt söluverðmætið sé aðgreinanlegt. í raun og veru er „annað framleiðslu- verðmæti“ iðnaðarfyrirtækja því mun meira en fram kemur í töflu X. Þar er aðeins tahn starfsemi, sem fyrirtækin hafa ekki treyst sér til að skilja frá hinni eiginlegu iðnaðarstarfsemi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Hagskýrslur um iðnað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um iðnað
https://timarit.is/publication/1130

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.