Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2008, Blaðsíða 26
fimmtudagur 23. október 200826 Norðurland
Líkamsrækt til heil-
brigðis og vellíðunar
SíðaSta orðið
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á
morgnana? „að fagna nýjum degi.“
Hver er sérgrein þín í eldhúsinu?
„Það er sósan með lambaketinu.“
Hvaða kvikmyndahetju lítur þú upp til?
„enginn hefur enn toppað upplifun
bernskunnar í dalvíkurbíó: tarzan.“
Hvar ólst þú upp? „Á dalvík.“
Ef ekki þingmaður, hvað þá? „Hver veit?“
Hvað drífur þig áfram? „Nýjar áskoranir.“
Hvaða lag kemur þér alltaf í gott skap?
„Næturlag úr fjörðum, sungið af kristjönu
arngrímsdóttur.“
Hver er uppáhaldsborgin þín? „Það er
höfuðborg hins bjarta norðurs: akureyri.“
Hvað hefur Eyjafjörður fram yfir aðra
landshluta? „Þar liggja rætur mínar og
þangað sæki ég styrk minn og lífsfyllingu.“
Hver er þín helsta fyrirmynd? „engin ein
manneskja.“
Hverju sérðu mest eftir? „glötuðum tíma.“
Ef þú mættir gefa íslensku þjóðinni
gjöf, hvað myndirðu gefa henni?
„Sparsemi.“
Hvar líður þér best? „Heima.“
Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?
„berjalaut í böggvisstaðafjalli. Lyngið, litirnir,
útsýnið inn Svarfaðardalinn og út eyjafjörð
er dásemdin ein.“
Hver er fremsti stjórnmálamaður heims
fyrr og síðar? „Pass.“
Hvenær felldir þú síðast tár? „Í gær-
kveldi.“
Hvernig er heimilisverkunum skipt? „Við
hjónin höldum tvö heimili. Hún annast
akureyri en ég sé um reykjavík.“
Stundar þú líkamsrækt? „Já. Ég skokka,
lyfti og geng.“
Hvert er takmark þitt í lífinu? „að verða
betri maður.“
Hvaða bók getur þú lesið aftur og
aftur? „Ég get lesið Njáls sögu aftur og
aftur.“
Hver voru áhugamál þín sem ungling-
ur? „fjaran, bryggjan og íþróttir.“
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? „Ég ætlaði að verða flugmaður.“
Hvernig er fullkomið laugardagskvöld?
„góður matur og samvera með fjölskyldu og
vinum.“
Hver er þinn helsti kostur? „Þolgæði.“
Hvern hefur þig alltaf dreymt um að
hitta?
„Snorra Sturluson því hann var stórbrotinn
einstaklingur á umbrotatímum.“
Áttu gæludýr? „Nei.“
Finnst þér gaman í vinnunni? „iðulega.“
Hvaða skref væri mest til heilla
íslenskri þjóð? „Þekking og aukinn þroski.“
Hvernig veður hentar best til göngu-
túra? „Logn og milt veður.“
Síðasta orðið? „bjartsýni.“
Takmarkið
að verða
betri maður
Síðasta orðið á Kristján
Þór Júlíusson alþingis-
maður og fyrrverandi
bæjarstjóri á Akureyri til
margra ára. Kristján er
öflugastur í sósugerðinni
þegar kemur að eldhús-
verkum og felldi síðast tár
í gær. Hann væri til í að
kenna landanum spar-
semi og segir berjalaut í
Böggvisstaðafjalli falleg-
asta stað á landinu.
m
yn
d
P
ET
ro
m
yn
d
ir
/Þ
ó
rH
a
ll
u
r