Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.01.1905, Blaðsíða 288
282
sagði einu sinni, jeg hef gefið út 30 verzlunarlej'fi (á 10 árum) og af þeim verzl-
unum standa 2 nú.
Utlendar verzlanir, eða verzlanir sem voru eign útlendra manna. búsettra ut-
anlands voru
1891—95 meðaltal (4 ár)................. 36 eða 24.5% af kauptúnaverzlunum
1896—00 — (5 ár) .................. 45 — 23.1-------------- --
1901—03 — (3 ár)..................44,5 — 18.7-------------- --
Þeiin fækkar hlutfallslega, enn ef viðskiptaupphæð þeirra væri borin saman
við viðskiptaupphæð hinna og heildarinnar, þá yrði hún miklu meiri en talan á
mönnunum segir til. Útlendu kaupmennirnir eru opt ríkir menn, og hafa ótakmark-
að lánstraust erlendis. Úað hafa einstakir innlendir kaupmenn líka, en þeir eru
víst færri.
VIII. Skipakomur eða siglingar.
Skipakomur eða siglingar til Islands hafa ekki áður verið teknar til með-
ferðar í yfirlitinu. I öðrum löndum kemur út árlega heil bók (Landshagsskýrslur)
um þetta efni. Líklega hefur því verið svo lítill gaumur gefinn fyrir þá sök, að
landsmenn eiga svo lítið af skipunum sem flytja vörurnar að og út. En í raun og
veru eru skipakomur, eða siglingar til og frá landinu eins hugnæmar fyrir því. Ef
landsmenn ættu skipin, þá væru siglingarnar tekjugrein fvrir Island, en eins og nú
er, eru þær útgjaldaliður fyrir landið. Allar þessar skipagöngur verðum við að
borga öðrum þjóðum, þegar við eigum hvorki skipin nje mennina á þeim.
í töflu IX er listi yfir skipakomur eða siglingar frá 1891—1903. Úað verð-
ur að geymast seinni timum að lengja skýrsluna aptur í tímann, t. d. 1881. Þessar
siglingar voru alls
1891—95 meðaltal (4 ár) 330 skip, farmrúm 54 þús. smálestir
1896—00 — (5 ár) 368 — 70 — —
1901—03 — (3 ár) 372 — 85 —
Mikill er munurinn frá 1262, þegar íslendingar sömdu við Noregskonung um að
hann Ijeti koma hingað 6 skip á ári.
Af þessum skipum hafa komið frá Danmörku:
1891—95 meðaltal (4 ár) 110 skip, farmrúm 16 þús. smálestir
1896—00 — (5 ár) 83 — 19 — —
1901—03 — (3 ár) 90 — 25 — —
Frá Noregi hafa komið :
1891—95 meðaltal (4 ár) 78 skip, farmrúm 10 þús. smálestir
1896—00 (5 ár) 87 — 14 — —
1901—03 (3 ár) 101 — 20 —
Frá Bretlandi liafa komið:
1891—95 meðaltal (4 ár) 139 skip, farmrúm 27 þús. smálestir
1896—00 (5 ár) 169 — 32
1901—03 (4 ár) 157 — 37 —
Frá öðrnm löndum aðallega Þýzkalandi, hafa komið:
1891—95 meðaltal (4 ár) 3 skip, lármrúm 0.6 þús. smálestir
1896—00 (5 ár) 29 — 4.5 —
1901—03 (3 ár) 24 — 3.0 — —