Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.01.1907, Page 121
115
3. Sjálfsmorðin á landinu eru sem belur fer fá, því fólksfjöldinn er lítill;
þess vegna er eini vegurinn, til þess að fá nokkuð sem á má bj’ggja, að taka mörg
ár fyrir i einu. Þá fyrst hverfur tilviljunin inn í heildina, og tilviljanirnar jafna þá
hver aðra upp. í 25 ár hafa fyrirfarið sjer 130 karlar og 38 konur, alls 168 manns,
Meðan ein kona fyrirfór sjer, gjörðu 3—4 karlmenn enda á lífi sínu, optar 4 en 3.
Meðaltölin voru 1881—90 3.1 karlar 2.1 konur = 5.2 manns
----— 1891—00 5.3 — 1.3 — == 6.6 —
----— 1901—05 4.6 — 0.4 — = 5.0 —
Það eru sjálfsmorð kvenna, sem allt af fækka, og fækka mikið. Enginn efi
er á því, að hagur kvenna hefur rýmkað við vistlausnirnar 1893, og að þær eiga
betra með að standa einar, og sjá samt fyrir sjer, einkum í þeim kaupstöðum,
sem liafa verið að myndast, og nú eru orðnir til, en áður var. En nú veit maður
ekki aldur þeirra, sem fvrirfara sjer, en fólk milli tvítugs og þrítugs fyrirfer sjer
optlega af ástamálum. Væri það einnig að leggjast niður hjá konum hjer á landi,
þá væri það vottur um að rómantiski hugsunarhátturinn, sem lá hjer í landi, í
hugum fólks, kveðskap og skáldsögum, sje horfinn, og annar lieilbrigðari bugsunar-
báttur kominn í staðinn. Fólk hjer á landi gæli fengið sterkan hugsunarhátt af
því að lesa fornsögurnar. Fornsögukonurnar deyja stundum af sorg, eins og t. d.
Oddný Eykyndill og Helga fagra, en þær fyrirfara sjer aldrei. Yfirleilt hefur sjálfs-
morðum fækkað á þessum 25 árum, þó tímabilið 1891—00 liafi verið liátt; þá var
mannfjelagið í Ieysingu, ef svo mætti segja; flskiverin voru að flosna upp fyrir
yíirgang útlendra fiskimanna; innflutningur á lifandi fje til Bretlands var bannaður
eptir 1895, og' var þar stórtjón fyrir fjársveilir og búnað. Þess vegna hefur liert
ákaflega að fjölda lieimilisfeðra og einstakra karlmanna á þeim árum, og það hefur
orðið orsökin til þess, að þ'eir leggja þá optar hönd á sjálfa sig en annars. Mann-
fjelagið er að komast úr þessari leysingu eptir aldamótin, þótt töluvert vanti á það,
að hún sje afstaðin enn.
I hlutfalli við fólkstöluna á landinu dregur þó enn meira úr sjálfsmorðunum
síðari árin en ársmeðaltölin sýna, því fólkinu liefur fjölgað þessi 25 ár.
1881—90 fyrirfóru sjer árlega ...... 1 af hverjum 13800 m.
1891—00 *-----------— — 1 —----------------- 11300 —
1901—05 — — 1 —---------------- 15900 --
4. Drukknanir eru langtíðustu slysfarirnar hjer á landi, sem eðlilegt er,
þar sém fiskiveiðarnar eru stundaðar eins almennt og lijer. í 25 ár hafa drukknað
hjer alls ............................................................ 1717 m.
1881—90 .............. 723 karlm.............. 39 konur...........
1891—00 ............ 650 — ...............20 — ........
1901—05 ........... 265 — 1638 karlm. 20 — 79 konur ... 1717 —
Meðaltölin, sem koma á hvert tímabil, verða þannig:
1881—90 ...................... 72.3 karlm. 3.9 konur samtals 76.2 m.
1891—00 .................... 65.2 — 2.0 — — 67.2 —
1901—05 ...................... 53.0 — 4.0 — — 57.0 —
Drukknunum hefur fækkað óðum tímabil eptir tímabil. Til þess að geta
borið 5 árin síðustu saman við liin 10, en þá drukknuðu alls 265 karlar og 20
konur, verður að margfalda þær' tvær tölur með tveimur. Ef litið er á árlegt
meðaltal drukknaðra síðasta dálkinn fækkar þeim sem árlega hafa drukknað um 10
manns á liverju af þessum þremur tímabilum. Drukknanir kvenna verða næstum
ávallt á ferðalögum, og opt í ám og vötnum; að konur drukkna heldur tíðar nú
en áður sýnist koma af því, að þær flytja sig optar úr stað nú en áður var, Það