Lögmannablaðið - 01.06.2002, Qupperneq 10

Lögmannablaðið - 01.06.2002, Qupperneq 10
10 2 / 2 0 0 2 rétt að berjast fyrir einu ákveðnu endurgjaldi þar sem slíkt hentaði ekki öllum rekstrartegundum. Það sem mestu máli skipti væri að kynna umbjóð- anda sínum fyrirfram um hvert endurgjald vegna vinnunnar væri en það færi almennt saman að þeir sem vinna vinnuna sína vel fái fullnægjandi end- urgjald fyrir hana. Jakob R. Möller hrl. tjáði sig um hugmynd Helga Jóhannessonar um skyldu- bundna endurmenntun og benti á að þar sem slík skylda væri til staðar færu menn almennt ein- göngu á námskeið hennar vegna en ekki til að endurmenntast. Því væri nauðsynlegt að ræða þetta málefni ítarlega meðal félagsmanna áður en tillaga um slíkt yrði send dómsmálaráðherra. Mál- efnið væri hins vegar góðra gjalda vert. Róbert Árni Hreiðarssonar hdl. lýsti yfir ánægju sinni með að stjórnin væri að kanna þóknunarmál lög- manna en ítrekaði þá skoðun sína að leggja bæri niður úrskurðarnefndina. Mótmælti hann að nefndin þyrfti að vera til staðar þrátt fyrir að hún fjallaði um önnur mál en eingöngu þóknun lög- manna enda mætti leggja öll mál nefndarinnar undir dómstóla þar sem öll meðferð væri sýni- legri, opnari og mun kostnaðarminni fyrir félagið sjálft. Gunnar Jónsson hrl. lagði áherslu á mikil- vægi þess að halda agavaldinu hjá félaginu sjálfu. Úrskurðarnefndin væri mikilvæg til að halda sjálf- stæði félagsins og sá kostnaður sem því fylgdi væri vel þess virði. Aðalfundur félagsdeildar Lögmannafélags Íslands. Í framhaldi af aðalfundi Lögmannafélagsins var haldinn aðalfundur félagsdeildar LMFÍ, sam- kvæmt auglýstri dagskrá. Á dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt sam- þykktum félagsins, auk tillögu um breytingar á 2. mgr. 4. gr., 2. mgr. 5. gr. 1., 3. og 4. mgr. 13. gr. reglna félagsdeildar og tillaga um aukið samstarf félagsdeildar LMFÍ og Lögfræðingafélags Ís- lands. Fráfarandi formaður félagsins, Ásgeir Thoroddsen hrl., bar upp tillögur að breytingum á reglum félagsdeildar, en í ljósi þess að fundar- menn höfðu fellt breytingartillögu á samþykktum LMFÍ, sem voru samhljóða breytingatillögu á 2. mgr. 4. gr. reglna félagsdeildar, kvað hann stjórn- ina draga til baka breytingatillögu sína á ákvæð- inu og var hún því ekki borin undir atkvæði. Aðrar breytingatillögur á reglum félagsdeildar voru hins vegar bornar undir atkvæði fundarmanna og sam- þykktar óbreyttar. Samþykktir félagsins og reglur félagsdeildar, með þeim breytingum sem gerðar voru á fund- unum, er að finna í handbók lögmanna á heima- síðu félagsins – www.lmfi.is. Tillaga um aukið samstarf félagsdeildar og Lögfræðingafélags Íslands var einnig samþykkt mótatkvæðalaust, en í umræðum um hana lagði Jakob R. Möller hrl. áherslu á mikilvægi þess að fara varlega í sameiningar og/eða samstarf, til að rýra ekki ímynd félagsins. Um skýrslu stjórnar og ársreikninga var vísað til þess að reikningar hafi þegar verið kynntir samhliða afgreiðslu sömu dagskrárliða skyldu- bundna hluta félagsins á aðalfundi félagsins. Eng- inn kvaddi sér hljóðs undir þessum dagskrárliðum og var reikningar félagsins samþykktir samhljóða. Enginn kvaddi sér hljóðs undir dagskrárliðnum önnur mál.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.